Mynd: haestirettur.is

Kunningjaveldi dómstólanna og konurnar sem fengu nóg

Íslensk stjórn­völd hafa um ára­bil hunsað ábend­ingar umboðs­manns Alþingis og GRECO er að snúa að dóm­stóla­kerf­inu og stjórn­sýslu þess. „Stjórn­sýsla dóm­stól­anna er í meg­in­at­riðum veik­burða og sund­ur­laus,“ segir í skýrslu sem unnin var fyrir Dóm­stóla­ráð árið 2011. Lítið hefur breyst síðan og ný dóm­stóla­lög taka ekki á göllum kerf­is­ins nema að mjög tak­mörk­uðu leyti.

Ný lög um dóm­stóla festa í sessi kerfi þar sem dóm­ara­stéttin hefur eft­ir­lit með sjálfri sér án þess að lúta með ótví­ræðum hætti meg­in­reglum stjórn­sýslu­réttar og kröfum um gagn­sæi og virkt aðhald. Með lög­unum er ekki brugð­ist við ábend­ingum umboðs­manns Alþingis um nauð­syn þess að setja stjórn­sýslu dóm­stóla skýr­ari umgjörð með hlið­sjón af máls­með­ferð­ar­reglum stjórn­sýslu­réttar né hefur verið tekið mið af ýmsum ábend­ingum GRECO, sam­taka ríkja í Evr­ópu­ráð­inu gegn spill­ingu, er snúa að íslensku dóm­stóla­kerfi. Þá er þess enn að bíða að leyst verði úr réttaró­viss­unni sem lengi hefur ríkt um eft­ir­lits­hlut­verk umboðs­manns Alþingis gagn­vart stjórn­sýslu dóm­stóla. 

Þann 26. maí síð­ast­lið­inn sam­þykkti Alþingi tvö laga­frum­vörp sem miða að umbótum á rétt­ar­kerf­inu og stjórn­sýslu dóm­stóla, meðal ann­ars með stofnun milli­dóms­stigs og til­færslu allrar stjórn­sýslu dóm­stól­anna undir nýja stofnun á vegum dóm­stól­anna sem mun heita Dóm­stóla­sýslan. Með laga­breyt­ing­unum er tekið á ýmsu sem talist hefur til ágalla á íslensku dóm­stóla- og rétt­ar­kerfi en skautað fram­hjá öðrum atriðum. „Stjórn­sýsla dóm­stól­anna er í meg­in­at­riðum veik­burða og sund­ur­laus,“ full­yrti Gunnar Helgi Krist­ins­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, í skýrslu um stjórn­sýslu dóm­stól­anna sem hann vann fyrir dóm­stóla­ráð árið 2011. Lítið hefur breyst síðan og ný dóm­stóla­lög taka ekki á göllum kerf­is­ins nema að afar tak­mörk­uðu leyti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár