Jörgen Már dæmdur fyrir heimilisofbeldi en birtir ný myndbönd þar sem hann situr fyrir fórnarlambi

Jörgen Már Guðnason, sem kallar sig Loka Hrafn Guðnason í dag, hefur í tvígang verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn sam­býl­is­konum. Hann fær þó milda dóma og heldur áfram að hrella þær.

Jörgen Már dæmdur fyrir heimilisofbeldi en birtir ný myndbönd þar sem hann situr fyrir fórnarlambi

Þrátt fyrir ítrekuð dóms­mál og um tíma nálg­un­ar­bann heldur Jörgen Már Guðnason áfram að hrella fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sína, Olgu Genova. Jörgen hefur verið dæmdur fyrir heim­il­is­of­beldi gegn tveimur fyrr­ver­andi sam­býl­is­konum sínum, nú síð­ast var hann dæmdur í júní vegna heim­il­is­of­beldis gegn Olgu. Hann fékk þó aðeins þriggja mán­aða fang­els­is­dóm.

Á Youtube-síðu hans má sjá mynd­bönd sem Jörgen hefur tekið af húsi Olgu. Mynd­böndin sem eru þrjú voru öll sett inn á Youtube fyrir um mán­uði síðan. Jörgen var dæmdur í nálg­un­ar­bann gegn Olgu en það er ekki lengur virkt. Í við­tali við DV í fyrra lýsti Olga því hvernig Jörgen hefur setið fyrir húsi hennar ítrekað. Eitt skipti flaug múr­steinn í gegnum svefn­her­berg­is­glugga hennar. Í sam­tali við Stundina segir Jörgen að ástæðan fyrir því að hann sé að birta umrædd mynd­bönd að hann sé að fylgj­ast með eign­inni sinni. 

Stundin ræddi við Olgu sem er hvergi bangin þrátt fyrir áreitið. „Hann er á Akureyri svo akkúrat núna er rólegt. Annars er hann alltaf keyra fram hjá hús­inu,“ segir Olga. 

Að sögn lög­manns Olgu hafa fleiri mál gegn Jörgen verið til­kynnt til lög­reglu en ekki tíma­bært að fjalla um þau mál. Rétt er að taka fram að það falla ekki oft dómar í heim­il­is­of­beld­is­málum en þó hefur Jörgen í tvígang verði dæmdur fyrir slíka glæpi.

Jörgen skipti nýverið um nafn og heitir nú Loki Hrafn Guðnason. Olga höfð­aði meið­yrða­mál gegn honum vegna fjölda ummæla hans á net­inu. Dómur féll í því máli í mars síð­ast­lið­inn og fékk Jörgen þungan dóm. Meið­yrðin beindust meðal ann­ars að keim­líkum mynd­böndum og hann birti fyrir mán­uði síðan.

 

Tekin kverkataki

Nýjasti dómur gegn Jörgen féll 12. júní síð­ast­lið­inn og er lýst alvar­legu broti í dóms­skjal­inu, þrátt fyrir að fang­els­is­dómur hafi verið stuttur. Ákæran var í þremur liðum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár