Jón Óttar skuldar 300 þúsund fyrir blómum á sama tíma og hann fjárfestir í fjölmiðlum

Hjónin Jón Óttar Ragn­ars­son og Margrét Hrafns­dóttir skulda blóma­búð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 300 þús­und krónur vegna blóma í brúð­kaupi þeirra. Jón Óttar er á sama tíma sagður hafa fjár­fest í tug­millj­óna króna hlut í Vef­press­unni með Birni Inga Hrafns­syni, mági sínum.

Jón Óttar skuldar 300 þúsund fyrir blómum á sama tíma og hann fjárfestir í fjölmiðlum

Hjónin Jón Óttar Ragn­ars­son og Margrét Hrafns­dóttir hafa ekki greitt um 300 þús­und króna skuld við blóma­búð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eigendur búð­ar­innar stað­festa þetta í sam­tali við Stundina en kjósa að tjá sig ekki um skuld­ina utan þess að þeir hafi mikið reynt að sækja hana, en án árang­urs. Um er að ræða fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki í minni kant­inum og því ljóst að málið kom sér illa fyrir þá sem standa að baki blóma­búð­inni. Gefa þeir til kynna að þeir hafi að lokum gef­ist upp á að inn­heimta skuld­ina og vilji því setja málið að baki sér.

Skuldin er til­komin vegna blóma í brúð­kaupi þeirra hjóna sem fór fram í lok árs 2013. Alls nam kostn­aður vegna blóma í brúð­kaup­inu um hálfri milljón króna. 200 þús­und krónur hafa verið greiddar af þeirri upp­hæð.

Skuld hjón­anna við blóma­búð­ina vekur athygli vegna þess að Jón Óttar hefur verið að kaupa hluti í fjöl­miðlum. Þann 30. des­em­ber var greint frá því á Press­unni að Jón Óttar hefði fjár­fest í tíu pró­senta hlut í Press­unni. „Jón Óttar hefur keypt nýtt hlutafé í Press­unni sem var gefið út í til­efni af kaupum félags­ins á stærstum hluta hluta­fjár í DV ehf. Eftir kaupin á Jón Óttar um ell­efu pró­senta hlut í Press­unni,“ segir í frétt Pressunnar.

Björn Ingi Hrafns­son, helsti eig­andi Pressunnar, er mágur Jóns Óttars.

Hvaðan koma peningarnir?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár