Mynd: Kristinn Magnússon

Íslenska byltingin

Bylting hefur orðið í afstöðu fólks til stjórn­mála­flokka frá því Alþingis­kosn­ingar voru haldnar fyrir tveimur árum þegar Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur náðu tæpum meiri­hluta. Kannanir mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tæk­is­ins MMR hafa und­an­farið sýnt að hinn nýi flokkur Pírata myndi fá þriðj­ungs­fylgi. Í kosn­ingum núna færu 20 nýir píratar inn á Alþingi. Stundin greindi hvaða fólk Íslend­ingar myndu missa úr sinni þjón­ustu, hvaða fólk kæmi í stað­inn og hverju það vill breyta.

Í lýð­ræð­is­fyr­ir­komu­lag nútím­ans ríkir full­trúa­lýð­ræði, sem þýðir að almenn­ingur hefur val á 1461 dags fresti, nema full­trú­arnir ákveði annað með því að slíta sam­starfi. Kjör­tíma­bil rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra er nú rúm­lega hálfnað en stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur aldrei verið minni. Skoð­ana­kann­anir síð­ustu mán­uði gefa til kynna að ákveðin hug­ar­fars­breyt­ing eigi sér stað meðal kjós­enda. Flokks­fylgi er á miklu flakki og krafan um nýjar áherslur er orðin ansi hávær. Síðustu mán­uði hefur fyr­ir­fram ólík­legur val­kostur sótt mjög í sig veðrið og mælist nú stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins - Píratar.   

Niðurstöður kannana

Þann 19. mars síð­ast­lið­inn mæld­ust Píratar í fyrsta skipti með mesta fylgi allra flokka á Íslandi í könnun MMR. Fylgi Pírata mæld­ist þá 23,9 pró­sent, en var 12,8 pró­sent ein­ungis mán­uði fyrr. Nú er fylgið komið upp í 32,7 pró­sent og mæl­ast Píratar langstærstir allra flokka á Íslandi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er næst­stærstur með 23,1 pró­sent fylgi, Sam­fylk­ingin kemur næst með 13,1 pró­sent, Vinstri græn með 10,4 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, er ein­ungis með 8,6 pró­senta fylgi. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna tveggja er því aðeins 31,7 pró­sent sam­kvæmt nið­ur­stöðum MMR. Þess má geta að sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup mælist fylgi Pírata enn meira en hjá MMR, eða 34,1%.
Píratar sækja fylgi sitt helst til ungs fólks. Þannig segj­ast 44,5 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 29 ára myndu kjósa Pírata ef kosið yrði til Alþingis í dag. Vandinn er sá að kosn­inga­þátt­taka ungs fólks hefur verið ansi dræm og benda rann­sóknir til þess að hún fari enn minnk­andi. Hætta er á að þeir sem segj­ast myndu kjósa Pírata í skoð­ana­könn­unum myndu ekki fjöl­menna á kjör­stað þegar til kast­anna kemur. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands var kosn­inga­þátt­taka fólks á aldr­inum 20-24 ára ein­ungis 45,4 pró­sent í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en hæst var hlut­fallið á ald­urs­bil­inu 65 til 69 ára, eða 82,8 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin sækja fylgi sitt helst til þessa ald­urs­hóps. 

Framsókn tapar 14 þingmönnum

Stundin not­aði nið­ur­stöður síð­ustu MMR könn­unar til þess að reikna út hvaða ein­stak­lingar kæmu nýir inn á þing ef kosn­ingar færu fram núna og nið­ur­stöður yrðu í sam­ræmi við sömu skoð­ana­könnun. Í ljós kemur að 24 nýir þing­menn tækju sæti á Alþingi í kosn­ingum núna, en á sama tíma myndu Íslend­ingar missa 24 þing­menn úr sinni þjón­ustu. Píratar myndu bæta mest við sig og fá alls tutt­ugu nýja þing­menn inn á Alþingi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi tapa flestum þing­mönnum, eða alls fjórtán. 
Þann fyr­ir­vara verður að setja við nið­ur­stöður kann­ana MMR að ekki er fylli­lega mark­tækt að ganga út frá nið­ur­stöðum fyrir hvert kjör­dæmi. Vikmörk eru há vegna þess hve fá svör eru þegar svar­endum könn­un­ar­innar er skipt í hópa eftir kjör­dæmum. Kann­an­irnar gefa hins vegar ákveðna vís­bend­ingu um þá hug­ar­fars­breyt­ingu sem er í gangi meðal kjós­enda. 

Óánægjufylgi og mótmæli

Fjöl­margir stjórn­mála­fræð­ingar hafa verið fengnir til þess að reyna að skýra fylg­is­aukn­ingu Pírata und­an­farin miss­eri. Flestir virð­ast sam­mála um að um svo­kallað óánægju­fylgi sé að ræða og að fylg­is­aukn­ingin hafi ekk­ert með hug­mynda­fræði Pírata að gera heldur séu kjós­endur með þessu að mót­mæla gamla fjór­flokknum. Þannig sagð­ist Gunnar Helgi Krist­ins­son í við­tali á Kjarn­anum í síð­asta mán­uði, ekki vilja túlka fylg­is­aukn­ingu Pírata sem ein­hvers konar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við stefnu­mál flokks­ins. „Ég hef grun um að ansi fáir af þessum 30 pró­sentum hafi skýra mynd af stefnu­málum Pírata, þetta er meira þannig að fólk sé að leita sér að val­kostum við ríkj­andi ástand,“ sagði hann. Þá sagði Stefanía Ósk­ars­dóttir, í sam­tali við Morg­un­blaðið, að fólk noti oft skoð­ana­kann­anir til þess að koma á fram­færi skila­boðum, en kjósi síðan eitt­hvað allt annað í næstu kosn­ingum. Birgir Guð­munds­son sagð­ist, í við­tali við DV, telja ólík­legt að Píratar haldi svo háu fylgi þegar komi að kosn­ingum. 
Eini stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn sem hefur afdrátt­ar­laust tengt fylg­is­aukn­ingu Pírata við mál­flutn­ing og fram­göngu þing­manna flokks­ins er Grétar Þór Eyþórs­son. Í sam­tali við Frétta­tím­ann í mars síð­ast­liðnum sagði hann Pírata til dæmis hafa verið bein­skeytta í umræðum um inn­flytj­enda­mál. „Það verður þó að hafa í huga að við vitum ekk­ert hvort þetta fylgi helst áfram og best að fara var­lega í yfir­lýs­ingar um slíkt,“ bætti hann við. 

Flokksfylgi á flakki

„Ungt fólk finnur sig ekki í leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar og flokks­holl­usta hefur farið minnk­andi á Íslandi eftir hrun,“ segir Hulda Þór­is­dóttir, lektor við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, en hún hefur sér­hæft sig í rann­sóknum á sviði stjórn­mála­sál­fræði. Hún segir hug­ar­fars­breyt­ing­una sem skoð­ana­kann­anir gefa vís­bend­ingu um nátegnda hrun­inu, sem sé rót margs í íslensku sam­fé­lagi. „Það varð gríð­ar­legt hrun í póli­tísku trausti við hrunið og þar með fór þetta fasta flokks­fylgi mjög mikið á flakk og afar margir hafa ekki fundið sér aftur neinn heima­flokk. Eins og við sjáum á þessum skoð­ana­könn­unum þá gildir um marga sem núna segj­ast styðja Pírata að þeir kusu síð­ast Fram­sókn­ar­flokk­inn og einnig Bjarta fram­tíð. Hverjir kusu þessa flokka síð­ast? Það voru þeir sem voru að leita að ein­hverju nýju. Það eru vit­an­lega mjög ólíkir kjós­endur sem kusu Framsókn og Bjarta fram­tíð, en þeir eiga það þó eitt sam­eig­in­legt að hafa ekki viljað hina kost­ina,“ segir Hulda. 

Hún segir marga kjós­endur enn leit­andi að nýjum val­kosti. Áfram­hald­andi fylg­is­aukn­ing Pírata stafi nú undir það síð­asta lík­lega einnig af því að fólk 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár