Hvetur þingið til að mæta kröfum byltingarinnar

Vara­þing­maður hvatti rík­is­stjórn­ina, þingið og þjóð­ina til að bregð­ast við í kjöl­far #FreeTheNipple og Beauty tips bylt­ing­ar­innar. Hér er ræðan sem allir eru að tala um.

Hvetur þingið til að mæta kröfum byltingarinnar

Ræða Andrésar Inga Jóns­sonar, vara­þing­manns Vinstri grænna, í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi í gær hefur vakið tals­verða athygli. Þar fjall­aði hann um staf­rænu kvenna­bylt­ing­arnar undir for­merkjum #FreeTheNipple og nú síð­ast #þöggun og #kon­ur­tala.

„Und­an­farnar vikur og mán­uði hefur ótrú­leg orka leyst úr læð­ingi á Íslandi. Þessi orka snýst öll um að úthýsa þögn­inni, varpa ljósi á sam­fé­lags­mein, hrópa á rétt­lát­ara og betra sam­fé­lag. Hér á ég við kvenna­bylt­ing­una sem gegnir ýmsum nöfnum. Sam­fé­lags­bylgju sem tók að rísa á sam­fé­lags­miðlum undir yfir­skrift #FreeTheNipple og hefur síðan tekið á sig ýmsar myndir. Byltingu sem er að mestu borin uppi af ungum konum,“ segir Andrés Ingi og við­ur­kennir að honum hafi brugðið við þegar bylgjan reis. „Ég hafði ekki áður áttað mig á því hvað hrelliklám, ein útgáfa af raf­rænu ofbeldi, er stór hluti af lífi ungra kvenna. Hversu margar höfðu upp­lifað það á eigin skinni og hversu margar hafa búið í stöð­ugum ótta við að við­kvæmum myndum af þeim væri deilt með hverjum sem er, hvenær sem er, hvar sem er. Án þeirra sam­þykkis. Mér brá, af því að þótt ég vissi af vand­anum hafði ég ekki áttað mig á því hversu útbreiddur og hversu alvar­legur vandi hrelliklám væri. En ég fyllt­ist á sama tíma mik­illi von og gríð­ar­legu stolti þegar ég sá þús­undir ungra kvenna standa saman gegn óværunni, fastar fyrir og óhræddar.“

Sjá einnig: Brjósta­fárið: Vald­efl­ing eða und­ir­gefni við feðra­veldið?

„Nú þurfum við öll að hlusta“

Eins og Andrés benti á fylgdu #FreeTheNipple bylt­ing­unni margar aðrar sjálf­sprottnar bylt­ingar gegn þögn­inni. Sú sterkasta er mögu­lega Beauty tips bylt­ingin svo­kall­aða þar sem konur deildu reynslu sinni af ofbeldi í lok­uðum kvenna­hópi á Facebook. „Umræðan barst okkur körlunum síðan þegar sögur og myndir tóku að birt­ast á sam­fé­lags­miðlum. Þolendur ofbeldis merktu sig app­el­sínu­gulum and­litum. Gul and­lit urðu tákn­mynd allra hinna, sem þekkja þolendur ofbeldis. App­el­sínu­gulu and­litin voru ótrú­lega mörg. Svo mörg, að mér leið helst eins og nátt­úru­ham­farir hefðu orðið. Í nátt­úru­ham­förum hefðu við­brögðin ekki staðið á sér. Þá skipu­leggja stjórn­völd fjölda­hjálp­ar­mið­stöðvar, þau bretta upp ermarnar og taka til óspilltra mál­anna. Þau laga það sem lagað verður. En hver voru við­brögðin þegar þagn­ar­múr­inn brast? Þau voru lítil. Að minnsta kosti ekki í neinu sam­ræmi við umfang vand­ans,“ segir Andrés. 

Hann segir Íslend­inga bregð­ast við þegar þeir upp­lifi stór áföll. Til dæmis séu þeir svo lánsamir að hafa byggt inn­viði til að takast á við felst það sem nátt­úran lætur okkur finna fyrir. „Sjaldan er spurt um verð­miða þegar þarf að byggja upp eftir jarð­skjálfta eða jök­ul­hlaup, en af hverju er sál­fræði­þjón­usta steytt úr hnefa til þolenda kyn­ferð­is­of­beldis? Í þeirri umræðu sem kemur reglu­lega upp um að raf­byssu­væða lög­regl­una virð­ist kostn­aður aldrei vera sami þrösk­uld­ur­inn og þegar ræddar eru leiðir til að stór­efla kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar. Hverju sætir? Við höfum varið millj­örðum til að verj­ast snjó­flóðum, en hvaða upp­hæðum hefur verið varið til að fræða lög­reglu­þjóna og dóm­ara um eðli og með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála? Hvers vegna gengur ekki hraðar að fjölga kven­kyns dóm­urum? Hvar eru for­varn­ar­sjóð­irnir og for­varnar­á­tökin sem ættu að vera stöðugt í gangi? Hvar eru rann­sókn­irnar á umfangi og þjóð­hags­legum áhrifum ofbeldis, rann­sókn­irnar á því hvers vegna svo mik­ill fjöldi kvenna í okkar góða sam­fé­lagi hefur orðið fyrir nauðgun, kyn­ferð­is­of­beldi eða áreitni? Nú þurfum við öll að hlusta; rík­is­stjórnin, þingið og þjóðin. Og við þurfum að bregð­ast við. Mæta kröfum bylt­ing­ar­innar. Stelp­urnar okkar – og strák­arnir – eiga það skilið!“

 

Lára Hanna Einarsdóttir birti ræðu Andrésar Inga á YouTube rás sinni í gær og hana má sjá og heyra hér fyrir neðan:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár