Mynd: Kristinn Magnússon

Hengistóllinn er í sérstöku uppáhaldi

Skart­gripa­hönn­uð­irnir Helga Guðrún Frið­riks­dóttir og Orri Finn­boga­son búa í lít­illi íbúð á Vest­ur­göt­unni. Heimilið er í afslöpp­uðum bóhem stíl og hefur mikla sál. Útsýnið yfir slipp­inn og höfn­ina er ein­stakt og setur sterkan svip á íbúð­ina.

Mild reyk­els­is­lykt tekur á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara þegar gengið er inn í íbúð­ina. Helga Guðrún og Orri byrja á því að hella upp á kaffi í espresso könnu og bjóða okkur sæti við stofu­glugg­ann. Úti blasir við líf og fjör í slippnum, sem og Esjan í allri sinni dýrð. Helga Guðrún keypti íbúð­ina árið 2010, áður en hún kynnt­ist Orra. Hún segir stað­setn­ing­una og útsýnið fyrst og fremst hafa heillað sig. „Við sitjum eig­in­lega alltaf hér og horfum út. Meira að segja börnin geta gleymt sér við að glápa á skipin,“ segir hún. Til­hugs­unin um að slipp­ur­inn fari úr mið­bænum finnst þeim leið­in­leg. „Ég held að það sé mis­skiln­ingur í borg­ar­myndun að það þurfi að hreinsa til og ýta öllu til hliðar fyrir ferða­menn. Það eru einmitt þessir hlutir sem gera borg­ina sjar­mer­andi.“

Stórkostlegt útsýni
Stór­kost­legt útsýni „Við vitum alltaf hvaða skip eru í slipp. Maður getur alveg slegið um sig með þeim upp­lýs­ingum,“ segir Helga Guðrún.

Algjör kráka
Algjör kráka Helga Guðrún og Orri hanna saman skart­gripi undir nafn­inu Orri Finn. „Þetta er morg­un­ser­emon­ían mín, að tína á mig alla hring­ina. Það tekur lúmskan tíma. Ég hef alltaf verið algjör kráka og þarf að vera með mikið af skarti.“
Hljóðfærin
Hljóð­færin Orri ver löngum stundum í hljóð­færa­horn­inu svo­kall­aða, en þar má finna nokkur strengja­hljóð­færi, orgel, harm­on­ikku og bong­ótrommur.
 

Íbúðin er ekki stór, en hátt er til lofts og rýmið er opið. Í miðri stof­unni hangir fjólu­blár hengi­stóll sem er í sér­legu upp­á­haldi hjá heim­il­is­fólk­inu, sér í lagi hjá sonum Orra sem eru á aldr­inum sjö, tíu og þrettán ára. „Þeir ríf­ast um hver megi sitja í stólnum,“ segir Helga Guðrún. Sjálfri þykir henni best að liggja með góða bók á marokkóska tepp­inu í legu­bekknum sem einnig er í stof­unni og þá er upp­á­halds staður Orra hljóð­færa­hornið svo­kall­aða þar sem hann spilar ýmist á org­elið sem hann erfði eftir afa sinn, harm­on­ikku eða gítar. „Stofan er miðja heim­il­is­ins og við verjum miklum tíma hér,“ segir Helga Guðrún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár