Framsókn krefst þess að RÚV hagi sér betur

Áhrifa­menn í Fram­sókn­ar­flokknum hafa gert yfir­stjórn­endum Rík­is­út­varps­ins ljóst að ekki sé vilji til að koma til móts við fjár­hags­vand­ann í Efsta­leiti, nema umfjöllun og frétta­flutn­ingur af mál­efnum rík­is­stjórn­ar­innar og um flokk­inn, taki breyt­ingum. Þetta hefur Stundin fengið stað­fest eftir að hafa rætt við fjölda starfs­manna RÚV og fólk innan stjórnar og fram­kvæmda­stjórnar félags­ins.

Framsókn krefst þess  að RÚV hagi sér betur

Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins hafa Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, komið því á fram­færi við full­trúa Rík­is­út­varps­ins að þeir sjálfir séu mun viljugri til að koma til móts við fjár­hags­vanda félags­ins en sam­starfs­flokkur þeirra í rík­is­stjórn. Þetta var á meðal þess sem fram kom á vinnufundi stjórnar sem hald­inn var þann 22. jan­úar. Var þar útvarps­stjóra og stjórn­ar­for­manni falið að funda um fjár­mál Rík­is­út­varps­ins með for­sæt­is­ráð­herra. Líkt og for­ystu­menn í Fram­sókn­ar­flokknum hafa ýmist full­yrt eða gefið í skyn í opin­berri umræðu er lít­ill vilji til að hlúa að Rík­is­út­varp­inu meðan umfjöllun þess og efn­is­tök eru flokknum ekki að skapi.

Uppi varð fótur og fit síðla árs 2013 þegar Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, gagn­rýndi frétta­flutn­ing RÚV í sama mund og hún boð­aði nið­ur­skurð á fjár­fram­lögum til stofn­un­ar­innar. Stundin hefur heim­ildir fyrir því að mjög sam­bæri­legur mál­flutn­ingur hafi verið við­hafður í einka­sam­skiptum milli stjórn­ar­liða og stjórn­enda Rík­is­út­varps­ins. Þannig séu efn­is­tök og umfjöllun RÚV, svo sem meint „vinstrislag­síða“ frétta­stof­unnar, gagn­rýnd í sama mund og rætt er um fjár­veit­ingar til félags­ins.

„Ég get stað­fest við þig að við höfum fengið mjög skýr skila­boð, bæði beint og óbeint, og við­var­anir um að RÚV verði að fara að hegða sér betur gagn­vart rík­is­stjórn­inni ef koma eigi til móts við okkur fjár­hags­lega,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar. „Þú sérð hvernig þau tala á opin­berum vett­vangi og þá get­urðu rétt ímyndað þér hvað þau leyfa sér að segja fyrir luktum dyrum.“

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri nýtur mik­illa vin­sælda meðal starfs­manna RÚV og flestir þeirra sem Stundin ræddi við treysta því að hann standi í lapp­irnar gegn þrýst­ingi stjórn­ar­liða.

Nokkru fyrir jól, meðan fjár­lög rík­is­stjórn­ar­innar voru til með­ferðar á Alþingi, fengu tveir þátta­stjórn­endur á RÚV beiðni frá yfir­mönnum sínum um að bjóða Sigmundi Davíð í skemmti­við­töl. Í hvor­ugt skipti var orðið við beiðn­inni en atvikin vöktu tals­vert umtal meðal starfs­manna.

Stundin hefur rætt við á þriðja tug starfs­manna um mál­efni mið­ils­ins. Hótanir, nið­ur­skurður og sífelldur þrýst­ingur stjórn­ar­liða er sagður skapa tog­streitu og hafa umtals­verð áhrif á innri starf­semi RÚV.

Aukin áhrif framkvæmdastjórnar

Magnús Geir Þórð­ar­son sat í stjórn RÚV fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 2011 og var ráð­inn útvarps­stjóri í fyrra. Eitt af hans fyrstu verkum var að segja öllum fram­kvæmda­stjórum félags­ins upp og skipa nýja, meðal ann­ars tvo fyrr­ver­andi sam­starfs­menn hans úr Borg­ar­leik­hús­inu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar skiptir ný fram­kvæmda­stjórn sér meira af störfum dag­skrár­gerð­ar­fólks en áður hefur tíðkast, svo sem af við­mæl­enda­vali og efn­is­tökum. Þetta hefur farið öfugt ofan í reynslu­mikla starfs­menn sem hafa van­ist því að stjórn­endur fari fyrst og fremst með skipu­lags­hlut­verk og sjái um almenna mótun dag­skrár­stefnu.

Aðrir fagna auknu sam­ráði og sam­starfi en gjalda var­hug við því að verið sé að ota valda­mönnum að þátta­stjórn­endum.

Vildu koma honum í viðtal
Vildu koma honum í við­tal Tveir þátta­stjórn­endur RÚV fengu beiðni frá sínum yfir­mönnum um að bjóða Sigmundi Davíð í skemmtil­við­töl á meðan fjár­lög rík­is­stjórn­ar­innar voru til með­ferðar.

Ekki venjan

Sig­ur­laug Margrét Jón­as­dóttir og Egill Helgason hafa um nokkra hríð haft umsjón með þætt­inum Laug­ar­dags­við­talið á Rás 1 þar sem rætt er við áhrifa­fólk um hugð­ar­efni þess. Skömmu fyrir jól óskaði Þröstur Helgason, dag­skrár­stjóri Rásar 1, eftir því að Sigmundi Davíð yrði boðið í þátt­inn, án árang­urs.

„Ég túlk­aði þetta nú ekki sem nein óeðli­leg afskipti. Ég á mjög gott sam­starf við minn yfir­mann,“ segir Sig­ur­laug Margrét í sam­tali við Stundina. „Mér fannst þetta samt slæm hug­mynd, hló bara og þá náði þetta ekk­ert lengra.“

Ragn­hildur Steinunn Jóns­dóttir sá um jóla­vöku RÚV þann 20. des­em­ber, en gestir þátt­ar­ins voru fyrst og fremst leik­arar og lista­menn. Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps, fór fram á að Sig­mundur Davíð yrði tek­inn í létt við­tal um jóla­hald sitt. Ragn­hildur hafði ekki áhuga á því og varð ekki við beiðn­inni.

Umrædd atvik vöktu athygli og umtal meðal starfs­manna RÚV. Nokkrir þeirra sem Stundin ræddi við minnt­ust á þau af fyrra bragði og settu í sam­hengi við umræð­una um fjár­hags­stöðu stofn­un­ar­innar og sam­skipti stjórn­ar­liða við yfir­stjórn­endur RÚV.

En er nokkuð óeðli­legt við að dag­skrár­stjórar hafi áhrif á efn­is­tök og við­mæl­enda­val? „Óeðli­legt og ekki óeðli­legt, þetta er að minnsta kosti ekki það sem við höfum mátt venj­ast,“ segir við­mæl­andi sem starfar á útvarp­inu og bendir á að hingað til hafi þátta­stjórn­endur haft gríð­ar­legt sjálf­dæmi um efn­is­tök og val á við­mæl­endum. „Þegar verið er að ota ráða­mönnum að þátta­stjórn­endum sem við­mæl­endum á sama tíma og fjár­hags­staðan á RÚV er erfið og fjár­laga­frum­varp til umræðu á Alþingi, þá finnst mér það alvar­legt mál,“ segir hann.

Vildu ekki vinstra fólk
Vildu ekki vinstra fólk Þegar frum­varp Katrínar var til umræðu sagð­ist Jón Gunn­ars­son vilja fækka frétta­mönnum sem til­heyrðu vinstri væng stjórn­mál­anna. Fleiri hafa tekið í sama streng.

Aukið samráð

Annar við­mæl­andi bendir á að upp á síðkastið hafi sam­ráð dag­skrár­stjóra og þátta­stjórn­enda auk­ist til muna, einkum með reglu­legum funda­höldum, sem sé jákvæð þróun. Slíkar breyt­ingar geti þó haft í för með sér að þátta­stjórn­endur túlki vin­sam­legar til­lögur um við­mæl­endur sem óeðli­leg afskipti.

„Ég hef aldrei fengið til­mæli um að taka til­tekna valda­menn í við­tal og mér finnst alvar­legt að kollegar mínir lendi í slíku,“ segir starfs­maður Rásar 1. „Það er þessi fína lína, hvenær er verið að skapa þrýst­ing og hvenær ekki? Það vakna ýmsar spurn­ingar þegar svona beiðnir eru lagðar fram á sama tíma og allt ætlar um koll að keyra vegna fjár­hags­stöðu RÚV og ákvarð­ana þess­ara sömu vald­hafa og yfir­menn vilja að séu fengnir í drottn­ing­ar­við­töl. Þá vakna spurn­ingar um hvaða sjón­ar­mið ráða för.“

Enn annar starfs­maður RÚV, sem Stundin ræddi við, bendir á að sam­skipti sem þessi geti sett menn í óþægi­lega stöðu, enda sé fólk með­vitað um yfir­vof­andi hag­ræð­ing­ar­að­gerðir og upp­sagnir hjá RÚV.

Gagnrýndi fréttaflutningi
Gagn­rýndi frétta­flutn­ingi Vigdís Hauks­dóttir hefur ítrekað gagn­rýnt frétta­flutn­ing RÚV. Hún gekk svo langt að boða nið­ur­skurð til stofn­un­ar­innar í því sam­hengi.

Ásakanir um vinstrislagsíðu

Und­an­farin ár hafa þing­menn og áhrifa­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins rekið stöðugan áróður gegn RÚV, sér­stak­lega frétta­stof­unni sem sífellt eru ætl­aðar ann­ar­legar hvatir.

Þegar frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, til nýrra útvarps­laga var til umræðu á Alþingi í mars árið 2013, sagð­ist Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í frammí­kalli vilja fækka þeim frétta­mönnum sem til­heyrðu Sam­fylk­ing­unni og Vinstri grænum. Ummæli sín, og ásak­anir um póli­tíska slag­síðu frétta­manna, útskýrði hann ekki frekar, en í við­tali dag­inn eftir sagð­ist hann hafa verið að grín­ast. Þegar rætt var um val á stjórn­ar­mönnum Rík­is­út­varps­ins á Alþingi síðar á árinu sagði Brynjar Níelsson að í stjórn RÚV þyrfti að vera „alvöru­fólk“ og bætti við: „Auðvitað er betra að það sé ekki mikið af vinstra fólki.“ 

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, hefur marg­sinnis farið hörðum orðum um Rík­is­út­varpið og haldið því fram að frétta­stofan sé vinstrisinnuð og höll undir Evr­ópu­sam­bandið. Í við­tali við Bítið árið 2013 kvart­aði hún undan efn­is­tökum frétta­stof­unnar og full­yrti í því sam­hengi að RÚV fengi óþarf­lega mikla fjár­muni frá rík­inu. „Ég er nátt­úr­lega í þessum hag­ræð­ing­ar­hópi,“ sagði svo Vigdís. Örfáar vikur liðu þar til til­kynnt var um umtals­verðan nið­ur­skurð til RÚV sem hafði í för með sér fjölda­upp­sagnir og skap­aði aðstæður sem enn reyn­ast félag­inu erf­iðar.

Dylgjaði um fréttamenn
Dylgjaði um frétta­menn Í októ­ber, þegar Kastljós fjall­aði um hags­muna­tengsl í mjólkur­iðn­aði brást Sigurður Ingi við umfjöll­un­inni með því að gera umsjón­ar­menn Kast­ljóss tor­tryggi­lega.

Dylgjaði um Kastljóssfólk

Athygli vakti í mars í fyrra þegar Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra neit­aði að veita RÚV við­tal nema sér­stök skil­yrði væru upp­fyllt; hann vildi ann­að­hvort fá óklippta útgáfu af við­tal­inu í hendur eða að við­talið yrði sent út í beinni útsend­ingu, enda sagð­ist hann ósáttur við hvernig frétta­menn RÚV klipptu við­töl.

Í októ­ber, þegar Kastljós fjall­aði um hags­muna­tengsl í mjólkur­iðn­aði og stjórn­ar­störf Ólafs Frið­riks­sonar, skrif­stofu­stjóra í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, brást Sigurður Ingi, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við umfjöll­un­inni með því að gera umsjón­ar­menn Kast­ljóss tor­tryggi­lega. „Hvaða tengsl hafa fjöl­miðla­menn úr sinni for­tíð við eitt og annað, til dæmis starfs­menn í Kast­ljósi? Er ekki rétt að byrja á því ef menn ætla inn á þessa braut, er þá ekki rétt að menn byrji á sjálfum sér?“ spurði hann í við­tali á Bylgj­unni. Þegar hann var beð­inn um að útskýra orð sín um Kast­ljóss­menn nánar sagði Sigurður ein­ungis: „Hafa ekki allir ein­hverja for­tíð?“

Á meðal áhrifa­manna í Sjálf­stæð­is­flokknum sem gagn­rýnt hafa Rík­is­út­varpið er Óli Björn Kárason, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í nóv­em­ber skrif­aði hann harð­orða grein þar sem hann hvatti stjórn­ar­flokk­ana til að vera óhrædda við að bregð­ast harka­lega við meintri vinstrislag­síðu í frétta­flutn­ingi RÚV. Leggja þyrfti Rík­is­út­varpið niður í núver­andi mynd.

Þetta er í takt við sífelldan áróður Morg­un­blaðs­ins og Davíðs Odds­sonar gegn RÚV, en und­an­farin ár hefur Mogginn birt um 400 rit­stjórnar­pistla sem fjalla með nei­kvæðum hætti um stofn­un­ina.

Kastljós
Kastljós Frétta­menn Kastljós hafa sinnt rann­sókn­ar­blaða­mennsku á RÚV. Þegar Helgi Seljan fjall­aði um hags­muna­tengsl í mjólkur­iðn­aði brást ráð­herr­ann við með því að gera umsjón­ar­menn Kast­ljóss tor­tryggi­lega: „Hvaða tengsl hafa fjöl­miðla­menn úr sinni for­tíð við eitt og annað, til dæmis starfs­menn í Kast­ljósi?“

Sjálfstæðismenn skapa jafnvægi

Athygli vakti þegar Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, boð­aði póli­tískar hreins­anir í emb­ætt­is­manna­kerf­inu og á RÚV skömmu fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar. „Í stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum finna menn að langri eyði­merk­ur­göngu þeirra er að ljúka og þar fara menn að velta því fyrir sér hverja í emb­ætt­is­manna­kerf­inu eigi að setja út í kuld­ann og hverjum eigi að umb­una. Og þar fara menn að velta fyrir sér hvers konar breyt­ingum þurfi að koma fram á RÚV til þess að skapa meira jafn­væg í umfjöllun þess fjöl­mið­ils,“ skrif­aði hann á Evr­ópu­vakt­ina, vef þeirra Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og mennta­mála­ráð­herra.

Nú getur Styrmir sjálfur tekið þátt í að skapa þetta jafn­vægi því skömmu fyrir jól var hann ráð­inn einn af þátta­stjórn­endum umræðu­þátt­ar­ins Hring­borðið á RÚV. Tilkynnt var um ráðn­ing­una rétt eftir að Styrmir hafði við­ur­kennt ára­langan þátt sinn í per­sónunjósnum gagn­vart sam­borg­urum sínum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og banda­rísk stjórn­völd. Kjarninn greindi frá því að Hring­borðið væri „hug­ar­fóstur Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar“, en haft var eftir honum að í þætt­inum yrðu sam­tíma­mál sett í stærra sam­hengi og skautað hjá „því arga­þrasi sem ein­kennir umræð­una oft og tíðum“.

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps, sem nefndur er fyrr í þess­ari umfjöllun, sagði um Styrmi og hina þátta­stjórn­end­urna í sam­tali við Kjarnann að þau væru „afar reynslu­mikið fólk sem á það sam­eig­in­legt að hafa betri og dýpri skiln­ing á íslenskum þjóð­málum en flestir aðrir“. Skiln­ingur Styrmis á þjóð­málum birt­ist nokkuð skýrt í nýrri bók hans, Í köldu stríði, þar sem hann rétt­lætir per­sónunjósnir á þeim grund­velli að til­gang­ur­inn hafi helgað með­alið og veltir fyrir sér hvort banda­menn í seinni heims­styrj­öld­inni hefðu ef til vil betur tekið sér stöðu með Hitler gegn Sov­ét­ríkj­unum.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar vakti frum­kvæði Magnúsar Geirs og ráðn­ing Styrmis tals­verða undrun og umtal á meðal starfs­manna. Skemmst er að minn­ast þess að Gísli Marteinn Bald­urs­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var feng­inn til að stýra sjón­varps­þætti á RÚV árið 2013. Aðdrag­and­inn var með þeim hætti að Páll Magn­ús­son, þáver­andi útvarps­stjóri, hringdi sér­stak­lega í Gísla Martein og hvatti hann til að hvíla sig á stjórn­mál­unum og taka að sér verk­efnið.

Þannig hefur það tví­vegis gerst und­an­farin ár að útvarps­stjóri hand­velji sjálf­stæð­is­menn og bjóði þeim að ger­ast þátta­stjórn­endur í sjón­varpi. Báðar ákvarð­an­irnar voru umdeildar, og sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar urðu þær til­efni skoð­ana­skipta á stjórn­ar­fundum RÚV.

„Nennum því ekki”

Samkvæmt yfir­lýs­ingu sem stjórn RÚV sendi út fyrir síð­ustu jól hefur sú ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar að lækka útvarps­gjaldið í för með sér sam­drátt og stór­felldar breyt­ingar á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi stofn­un­ar­innar. „Ef það er vilji Alþingis að gjör­breyta hlut­verki Rík­is­út­varps­ins og skyldum, þá er eðli­legt að fram fari umræða og þá með til­heyr­andi breyt­ingum á útvarps­lögum áður en tekin er ákvörðun um að lækka útvarps­gjald,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stjórn­ar­and­staðan lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varp árs­ins 2015 þess efnis að útvarps­gjaldið yrði látið renna óbreytt og að fullu til Rík­is­út­varps­ins. Áður höfðu stjórn­endur RÚV lýst því yfir að þannig mætti ná jafn­vægi í rekstri félags­ins. Meiri­hluti þing­manna felldi til­lög­una. Sama dag greindi Egill Helgason sjón­varps­maður frá því á bloggi sínu að hann hefði hitt Sigrúnu Magn­ús­dóttur, þáver­andi þing­flokks­for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, á förnum vegi og spurt hvort hún hygð­ist ekki styðja Rík­is­út­varpið. „Nei, nú nennum við því ekki lengur,” svar­aði hún og bætti því við að starfs­menn RÚV hlytu að skilja hvers vegna.

Daginn eftir stað­festi Sigrún frá­sögn Egils í umræðum á Alþingi. Sigrún, sem áður hafði kvartað undan því að eng­inn fjöl­mið­ill skildi Fram­sókn­ar­flokk­inn og þörf væri á slíkum miðli, sagði í umræðum um RÚV: „Ég spyr sem gam­all kaup­maður: Þarf ekki líka að hugsa um ef eitt­hvað er að vör­unni? Er hún þá á réttum stað, rétt merkt, eða eitt­hvað að umbúð­unum?“ Hún útskýrði ekki nánar hvað hún ætti við, en bein­ast liggur við að setja ummælin í sam­hengi við fyrri orð hennar um skiln­ings­leysi fjöl­miðla gagn­vart Fram­sókn­ar­flokknum.

Pólitísk slagsíða
Pólitísk slag­síða Á árum áður var Rík­is­út­varpið oft kallað Bláskjár vegna hægrislag­síðu sem margir þótt­ust greina í umfjöllun þess. Algengt var að vinstri­menn sök­uðu fjöl­mið­il­inn um að ganga erinda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Nú er talað um vinstri slag­síðu á frétta­deild­inni.

Hert á pólitíska valdinu

Með breyt­ingum nýs þing­meiri­hluta á útvarps­lögum árið 2013 var póli­tískum full­trúum fært vald yfir dag­skrár­stefnu, starf­semi og meg­in­á­herslum RÚV. Þannig hefur fyr­ir­komu­lag Rík­is­út­varps­ins ekki aðeins verið fært til fyrra horfs heldur hafa póli­tískir full­trúar nú meiri áhrif á starf­semi stofn­un­ar­innar en þeir höfðu áður en lög Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, voru sett í lok síð­asta kjör­tíma­bils.

Með lögum hennar var starfs­svið stjórnar Rík­is­út­varps­ins útvíkkað um leið og reglum um skipan stjórn­ar­innar var breytt með það að leið­ar­ljósi að gera hana óháða hinu póli­tíska valdi. Laga­breyt­ingar Illuga, nokkrum mán­uðum síðar, fólu hins vegar í sér að skipan stjórn­ar­innar færð­ist undir Alþingi á ný þótt lýs­ingin á starfs­svið­inu héld­ist óbreytt. Þannig kýs Alþingi nú alla stjórn­ar­menn­ina, og hafa þeir meðal ann­ars það hlut­verk að móta dag­skrár­stefnu og „fylgj­ast með starf­semi og verk­efnum Rík­is­út­varps­ins“.

Bandalag íslenskra lista­manna vakti athygli á þessu í umsögn við frum­varp Illuga. „Það sem gerir til­lögur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra enn verri, er að hlut­verk stjórnar sam­kvæmt nýju lög­unum er tals­vert breytt og víð­feðm­ara en sam­kvæmt eldri lögum,“ segir í umsögn­inni. „Sú sjö manna stjórn sem kosin yrði sam­kvæmt til­lögum ráð­herr­ans hefði því mun breið­ara hlut­verk en tíðkast hefur til þessa. Þannig væri hætta á íhlutun frá póli­tískt skip­uðum stjórn­ar­mönnum um innri mál RÚV mun meiri en verið hefur á grund­velli eldri laga.“ Fleiri umsagn­ar­að­ilar bentu á að víða í Evrópu, til dæmis í Bret­landi og Svíþjóð, er lagt upp úr því að póli­tískt skip­aðir full­trúar komi aðeins að ákvörð­unum um rekstur rík­is­fjöl­miðla en sé haldið fjarri hvers kyns dag­skrár­valdi. Eini umsagn­ar­að­il­inn sem fagn­aði laga­breyt­ingum stjórn­ar­liða var fyr­ir­tækið Skjárinn, en sjón­varps­stjóri þess er eig­in­maður Elínar Hirst þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þeir starfs­menn RÚV sem Stundin hefur rætt við segj­ast ekki hafa tekið eftir afskiptum af hálfu stjórn­ar­innar eftir að lög­unum var breytt. Tveir þeirra benda þó á að ef slík afskipti ættu sér stað væri ólík­legt að þau næðu niður til hins almenna starfs­manns á frétta­stofu eða dag­skrár­deild. Líklegra væri að laga­breyt­ingar Illuga hefðu áhrif á sam­skipti stjórnar RÚV við stjórn­endur, þ.e. dag­skrár­stjóra og aðra.

Linkind vegna hræðslu

„Ég man ekki eftir svona gríð­ar­legum kulda frá vald­höfum síðan ég byrj­aði að vinna hérna,” segir starfs­maður af frétta­stof­unni í sam­tali við Stundina. „Auðvitað hefur þetta áhrif, þetta stuðlar að sjálfs­rit­skoðun og hræðir fólk. Því und­ir­liggj­andi eru alltaf hót­anir um að ef starfs­menn RÚV þókn­ist ekki vald­höfum þá missi þeir lífs­við­ur­væri sitt. Það er vont fyrir fjöl­miðil sem reynir að halda í rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæði að hafa svona lagað stöðugt hang­andi yfir sér, en það er erfitt að segja til um nákvæm­lega hvaða áhrif þetta hefur.”

Einn þeirra sem Stundin ræddi við við­ur­kenndi að lin­kind frétta­stof­unnar gagn­vart vald­höfum mætti oft rekja til hræðslu. „Frétta­fólk er oft svo hrætt um að missa vinn­una. Þú sérð alveg sjálfur hvaða áhrif það hefur á umfjöllun. Oft er aðhaldið gagn­vart vald­inu svo miklu minna en það ætti að vera. Hótanir um nið­ur­skurð og fjölda­upp­sagnir skila raun­veru­legum árangri.”

Við­mæl­andi sem vinnur á útvarp­inu segir að það hafi markað ákveðin þátta­skil þegar Vigdís Hauks­dóttir hót­aði RÚV nið­ur­skurði haustið 2013. „Þá fyrst urðum við raun­veru­lega hrædd, þá fengum við á til­finn­ing­una að ákveðnir aðilar úr stjórn­ar­lið­inu vildu ein­fald­lega skemma, að þeir væru til­búnir að svífast einskis til að þagga niður í gagn­rýnni umræðu um sig og sín störf.“

Benda á Framsókn
Benda á Framsókn Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar komu Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, því á fram­færi við full­trúa Rík­is­út­varps­ins að þeir sjálfir séu mun viljugri til að koma til móts við fjár­hags­vanda félags­ins en sam­starfs­flokkur þeirra í rík­is­stjórn.

Benda á Framsókn

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, komu því á fram­færi við útvarps­stjóra og stjórn­ar­for­mann RÚV fyrir síð­ustu jól að þeir vildu gjarnan að komið yrði til móts við fjár­hags­vanda RÚV, en að slíkt strand­aði þó helst á Sigmundi Davíð for­sæt­is­ráð­herra og Vigdísi Hauks­dóttur, for­manni fjár­laga­nefndar.

Til lít­ils háttar ágrein­ings um þetta kom milli Ingva Hrafns Ósk­ars­sonar, stjórn­ar­for­manns RÚV, og Guðlaugs G. Sverr­is­sonar, full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins í stjórn­inni, á vinnufundi sem hald­inn var 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þar var stjórn­ar­mönnum greint frá sam­skipt­unum við ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar þótti Guðlaugi ósann­gjarnt að skella skuld­inni á fram­sókn­ar­menn með þeim hætti sem gert var.

Þegar Stundin hafði sam­band við Guðlaug gerði hann lítið úr mál­inu og sagði stjórn RÚV vera sam­stíga um að koma félag­inu á réttan kjöl. Allir væru að gera sitt besta og ekki væri neinn ágrein­ingur milli full­trúa fram­sókn­ar­manna og sjálf­stæð­is­manna.

Athygli vakti þegar fram­sókn­ar­menn til­nefndu Guðlaug til stjórn­ar­setu, en sjálfur hefur hann gagn­rýnt frétta­stofu RÚV harð­lega vegna umfjöll­unar um Sigmund Davíð. „Það virð­ast fáir fjöl­miðlar, og alls ekki Rík­is­út­varpið, taka sér stöðu með heim­ilum og fjöl­skyldum lands­manna,“ skrif­aði hann í pistli á Press­unni árið 2013 og í fyrra sak­aði hann RÚV um að hafa for­sæt­is­ráð­herra og for­seta „í sigt­inu“. Í Facebook-skrifum sínum hefur Guð­laugur talað um frétta­mennsku RÚV innan gæsalappa og gant­ast með að skamm­stöf­unin ohf standi fyrir „ofsa­lega hroka­fullt fyr­ir­tæki“. Þann 5. júlí árið 2013 sagð­ist hann svo bíða eftir því að frétta­stofa RÚV leiddi að því líkum að „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi borið ábyrgð á kross­fest­ingu Jesú“.

Guð­laugur hefur talað um það á stjórn­ar­fundum Rík­is­út­varps­ins að hann og aðrir fram­sókn­ar­menn séu óánægðir með efn­is­tök og umfjöllun RÚV. Þá greindi Kjarninn frá því í fyrra að á fundi hús­næð­is­mála­nefndar RÚV hefði Guð­laugur stungið upp á því að Rík­is­út­varpið flytti í hús­næði Osta- og smjör­söl­unnar að Bitru­hálsi 2. Húsnæðið er í eigu Mjólk­ur­sam­söl­unnar.

Að eiga fréttastofuna

Andúð fram­sókn­ar­manna á RÚV hefur farið stig­vax­andi und­an­far­inn ára­tug. Einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar minnt­ist á frétta­stjóra­málið frá 2005 í þessu sam­hengi, það þegar Auðun Georg Ólafsson, maður með minni reynslu af fjöl­miðlum en aðrir umsækj­endur, var ráð­inn frétta­stjóri. Margir héldu því fram að for­ysta Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði beitt sér fyrir ráðn­ingu hans, en DV greindi frá því að áður hefði Eggert Skúlason, núver­andi rit­stjóri DV, „afþakkað pent gott til­boð Fram­sókn­ar­flokks­ins“ um að verða frétta­stjóri. Auðun Georg hætti við að taka við starf­inu eftir að hafa orðið tví­saga um fund sem hann hafði átt með for­manni útvarps­ráðs í við­tali við Ingimar Karl Helgason, þá frétta­mann á Rík­is­út­varp­inu. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér á sínum tíma sagð­ist hann hafa sótt um starf frétta­stjóra á jafn­ræð­is­grund­velli og hlakkað til að taka að sér starfið. Vegna atburða­rás­ar­innar sem fór af stað og þeirrar tor­tryggni sem hann mætti hefði hann hins vegar hætt við. Eftir því sem Stundin kemst næst hefur Auðun aldrei tekið þátt í starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins né ann­arra stjórn­mála­flokka.

Áður en stóra frétta­stjóra­málið kom upp hafði Kári Jónasson gegnt stöð­unni um ára­bil, en hann hóf frétta­manna­feril sinn á Tímanum og tók þátt í starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Ætli fram­sókn­ar­menn hafi ekki verið farnir að líta á þetta sem eina af óskráðu regl­unum á tímum helm­inga­skipt­anna, að Framsókn ætti frétta­stjór­ann?“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar. „Stundum held ég að þeir séu ekki enn búnir að jafna sig á frétta­stjóra­mál­inu. Þeir hafa alla­vega ham­ast á RÚV síðan. Þessi hama­gangur hefur náð algjöru hámarki síð­ustu tvö árin eða svo.“

Annar við­mæl­andi segir að markað hafi þátta­skil þegar Óðinn Jónsson var ráð­inn frétta­stjóri sam­einaðrar frétta­stofu hljóð­varps og sjón­varps árið 2008. Upp frá því hafi bæði sjálf­stæð­is­menn og fram­sókn­ar­menn litið svo á að þeir hefðu misst ítökin. „Þessi heift jókst enn frekar þegar Elín Hirst var rekin árið 2010,“ segir við­mæl­and­inn. Elín situr nú á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en sjálf virð­ist hún telja frétta­stofu RÚV hafa verið hlið­holla rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna á síð­asta kjör­tíma­bili. „Mér oft á tíðum blöskrað hvernig frétta­stofan virð­ist sjá heim­inn með gler­augum rík­is­stjórn­ar­innar,” sagði hún á fundi með sjálf­stæð­is­mönnum í Mos­fellsbæ árið 2012.

Vilja stýra viðtölum

Færst hefur í vöxt að ráð­herrar og aðstoð­ar­menn þeirra krefj­ist sjálf­dæmis um til­högun við­tala við sig og vilji ráða um hvað er spurt. Starfs­menn RÚV sem Stundin ræddi við segja algengt að aðstoð­ar­menn ráð­herra reyni að hafa vit fyrir frétta­mönnum og semja við þá um spurn­ingar. Misjafnt sé hvaða árangri þetta skilar, en oft­ast standi frétta­menn í lapp­irnar. Einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar rifj­aði hlæj­andi upp til­vik þar sem aðstoð­ar­maður ráð­herra reyndi að sann­færa frétta­mann um að hann ynni hjá frétta­stofu rík­is­ins og því bæri honum að fara að vilja rík­is­stjórn­ar­innar – enda væri hann í raun og veru í vinnu hjá rík­is­stjórn­inni. Annar við­mæl­andi sagð­ist vita um dæmi þess að stjórn­ar­liði hefði varað frétta­mann við að flytja til­tekna frétt og bent honum á að brátt yrðu teknar ákvarð­anir um fjár­veit­ingar til RÚV.

Til­hneig­ingin til að vilja stýra við­tölum er ekki bundin við núver­andi stjórn­ar­liða, en flestum þeirra sem Stundin hefur rætt við ber saman um að hún sé meiri nú en í tíð fyrri stjórnar. Einnig hefur for­seti Íslands um langa hríð neitað að veita frétta­stof­unni við­töl, nema með því skil­yrði að aðeins sé spurt um til­tekin atriði. Þannig var hann til­bú­inn að ræða um ákveðin mál í fyrra en neit­aði að svara spurn­ingum er tengd­ust með einum eða öðrum hætti kosn­inga­bar­áttu hans, svo sem hvort hann ætl­aði að sitja út kjör­tíma­bilið eða hætta fyrr líkt og hann hafði gefið til kynna að hann hygð­ist gera þegar hann bauð sig fram árið 2012.

Reyndi að hafa áhrif á fréttaflutning
Reyndi að hafa áhrif á frétta­flutn­ing Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, hringdi marg­sinnis inn á frétta­stofu RÚV meðan leka­málið stóð sem hæst og reyndi að hafa áhrif á umfjöllun um það.

Vildi hafa áhrif á fréttaflutninginn

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Þórey Vil­hjálms­dóttir, aðstoð­ar­kona hennar, hringdu marg­sinnis inn á frétta­stofu RÚV meðan leka­málið stóð sem hæst og reyndu að hafa áhrif á umfjöllun um það. Í sím­tölum við frétta­menn og yfir­menn á frétta­stof­unni sagði Hanna Birna að fréttir DV af leka­mál­inu væru ýmist vill­andi eða rangar, auk þess sem hún lýsti blað­inu sem ómark­tæku. 

Ráðherra hringdi yfir­leitt á þeim for­sendum að hún vildi ekki koma í við­tal en hins vegar leið­rétta ýmiss konar mis­skiln­ing sem væri á kreiki. Í des­em­ber árið 2013, löngu áður en RÚV hóf umfjöllun sína um leka­málið, hafði Hanna Birna hringt í Reyni Trausta­son, þáver­andi rit­stjóra DV, og farið fram á að hann stöðv­aði umfjöllun blaðs­ins um leka­málið og ræki þá blaða­menn sem skrifað höfðu um það. Henni varð ekki að ósk sinni.

Þegar staða Hönnu Birnu þrengd­ist enn frekar síð­asta haust reyndi hún að koma sér í mjúk­inn hjá frétta­fólki með því að eiga við það per­sónu­leg sam­töl. 

Hanna Birna er ekki eini full­trúi rík­is­stjórnar Íslands sem hefur hringt gagn­gert inn á rit­stjórnir fjöl­miðla til að vara við frétta­flutn­ingi DV. Grapevine greindi frá því í fyrra að Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, hefði skipt sér af efn­is­tökum fréttar, án þess að neinar stað­reynda­villur væri þar að finna, auk þess sem hann hefði dylgjað um þáver­andi blaða­mann á DV og varað rit­stjórn Grapevine við því að byggja á fréttum blaðs­ins. „Að rík­is­stjórn lands­ins hafi menn á launum við að níða ein­staka borg­ara, sem hafa reynst henni óþægi­legir, og bera út um þá róg, er ógeð­felld til­hugsun. Satt að segja er erfitt að ímynda sér nokkuð hræði­legra,“ skrif­aði Haukur S. Magn­ús­son, rit­stjóri Grapevine, af því til­efni á Facebook. 

Ímynduð vinstrislagsíða

Á árum áður var Rík­is­út­varpið oft kallað Bláskjár vegna hægrislag­síðu sem margir þótt­ust greina í umfjöllun þess. Algengt var að vinstri­menn sök­uðu fjöl­mið­il­inn um að ganga erinda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í bók rann­sókn­ar­blaða­manns­ins Jóhanns Hauks­sonar, Þræðir valds­ins, er bein­línis full­yrt að Davíð Oddsson hafi átt hlut að máli þegar Páll Magn­ús­son var skip­aður útvarps­stjóri á sínum tíma.

Nú á dögum heyr­ist tals­vert meira í þeim sem saka RÚV um vinstrislag­síðu. Erfitt er hins vegar að finna slíkum ásök­unum stoð í raun­veru­leik­anum. Skemmst er að minn­ast tveggja frétta­mála er vörð­uðu for­ystu­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum – Vafn­ings­máls­ins og leka­máls­ins – sem frétta­stofa RÚV snerti ekki á fyrr en mörgum mán­uðum eftir að þau komu upp. Í báðum til­vikum lenti nær öll rann­sókn­ar­vinna á herðum minni einka­rek­inna fjöl­miðla sem höfðu þó úr mun minni fjár­munum að spila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár