Flestar símhleranir eru gerðar hjá saklausum

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, vakti athygli á því á Alþingi að nær allar beiðnir lög­reglu um sím­hlerun eru sam­þykktar. 60% mála sem tengj­ast sím­hler­unum eru felld niður.

Flestar símhleranir eru gerðar hjá saklausum

Þing­maður Pírata, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, beindi athygli að heim­ildum lög­reglu til sím­hler­ana í sér­stakri umræðu á Alþingi í dag. Fyrir rúmu ári lagði Helgi Hrafn fram fyr­ir­spurnir á Alþingi til inn­an­rík­is­ráð­herra um ástæður hler­ana frá árs­byrjun 2008.

„Hler­un­ar­beiðnir lög­regl­unnar eru sam­þykktar í 99,31 pró­sent til­fella. Það er í reynd öllum til­vika, með ein­staka, ein­staka und­an­tekn­ingum. Þetta eru fimm hafn­anir af 720 beiðnum. Það er eig­in­lega þannig að lög­reglan biður um heim­ild og fær hana,“ sagði Helgi Hrafn í ræðu sinni.  

Langoftast vegna fíkniefnabrota

Helgi Hrafn segir að það hafi sömu­leiðis vakið athygli sína í hvaða til­vikum sím­hler­anir væru not­aðar. „Það vekur líka áhuga minn að sjá í hvaða málum þetta er notað. Ef ein­hver nefnir mann­dráp eða man­sal eða kyn­ferð­is­brot þá eru allir auð­vitað til í að hlera, og gott og vel. En þessar beiðnir koma fram hins vegar yfir­leitt eða það er að segja í meiri­hluta beiðna kemur til vegna fíkni­efna­brota. Það er að segja um 65 pró­sent til­vika. 65 pró­sent hler­un­ar­til­vika koma til vegna fíkni­efna­brota. Vegna mansals­brota er það 2,64 pró­sent. Kyn­ferð­is­brota: 5,28 pró­sent. Þannig að það er í hreinum meiri­hluta, stærri meiri­hluta en meiri­hlut­inn er hér á þingi, þar sem þetta er notað í fíkni­efna­brotum,“ sagði Helgi Hrafn.

Minnihluti mála lögmæt

Þing­mað­ur­inn benti sömu­leiðis á að sam­kvæmt töl­fræði virð­ast sím­hler­anir ekki vera sér­lega skil­virkt aðferð til að leiða fram dóm. „Ef maður lítur á afdrif mála, hvernig fer fyrir þessum málum, þá falla málin niður í sex­tíu pró­sent til­vika, ýmist hjá ákæru­valdi eða lög­reglu. Það er ein­ungis í 40 pró­sent mála þar sem málið heldur áfram og telj­ast því lög­mæt,“ sagði Helgi Hrafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár