Dýrasta land í heimi - Krónan hættulega sterk

Bjór í Reykja­vík kostar tvö­falt meira en í London. Verðlag á Íslandi er 21 pró­sent hærra en í Noregi.

Dýrasta land í heimi - Krónan hættulega sterk
Reykja­vík Fyrir nokkrum árum kom bylgja ferða­manna til lands­ins í kjöl­far þess að krónan hrundi og verð­lag lækk­aði. Nú hefur orðið við­snún­ingur og borgin dýr­ari en aðrar.

Verðlag á Íslandi er að öllum lík­indum það hæsta á byggðu bóli, sam­kvæmt grein­ingu Arion banka á áhrifum gríð­ar­legrar styrk­ingar íslensku krón­unnar. Í grein­ing­unni kemur fram að krónan sé orðin of sterk.

Afleið­ingin er til dæmis að verð á bjór er nífalt hærra í Reykjvík en í Prag, þrefalt hærra en í Brussel og tvö­falt hærra en í London. Bjór í Osló er nú rúm­lega 200 krónum ódýr­ari en í Reykja­vík.

Krónan er orðin svo sterk að hún ógnar helstu útflutn­ings­geirum, þar sem útfluttar vörur kosta mun meira í erlendri mynt vegna styrk­ingar krón­unnar en áður.

Í grein­ingu Arion banka er velt upp spurn­ing­unni hvort hag­kerfið ráði við svo sterkt gengi krón­unnar. 

Verðlag á bjórHægt er að fá rúm­lega níu bjóra í Prag fyrir einn í Reykja­vík.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár