Dularfyllsta trúfélag á Íslandi verður brottfellt á næstunni

Aðeins þrír eru skráðir í trú­fé­lagið Zuismi á Íslandi. Svo virð­ist sem með­limir til­biðji forn­súm­erska guði. Skráður for­stöðu­maður rekur lúx­us­ferða­fyr­ir­tæki.

Dularfyllsta trúfélag á Íslandi verður brottfellt á næstunni
For­stöðu­maður Zuism Ólafur Helgi seg­ist hafa yfir­gefið trú­fé­lagið. Mynd: Lux.is

Eitt sér­kenni­leg­asta trú­fé­lag á Íslandi sem er form­lega skráð hjá stjórn­völdum hlýtur að vera Zuismi. Söfn­uð­ur­inn fékk form­lega skrán­ingu árið 2013 eftir að honum hafði verið hafnað árið áður. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar verður trú­fé­lagið brott­fellt á næstu vikum.

Lítið er að finna um trú­fé­lagið á ver­ald­ar­vefnum og svo virð­ist sem það sé ekki til neins staðar ann­ars staðar í heim­inum en á Íslandi. Svo virð­ist sem með­limir trú­fé­lags­ins trúi á forn­súm­erska fjöl­gyð­is­trú, sem segja má að hafi runnið sitt skeið fyrir um 6000 árum. Skráðir með­limir eru þrír.

Forstöðumaðurinn sver trúfélagið af sér 

Samkvæmt skrán­ingu er Ólafur Helgi Þor­gríms­son for­stöðu­maður Zuism. Hann er fram­kvæmda­stjóri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Luxury Adventures sem komst í fréttir á dög­unum þegar Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, hóf störf hjá félag­inu.

Aðspurður um trú­fé­lagið segir Ólafur Helgi: „Það er gam­alt, það er reyndar ekki enn þá. Það eru bara mis­tök hjá skrán­ingu ef þú hefur fengið þær upp­lýs­ingar. Það var í ein­hverja mán­uði en það er langt síðan það datt upp fyrir. Ég var í raun­inni þarna bara í nokkra mán­uði. Ég veit í raun­inni ekk­ert hvað þeir eru að gera í dag.“ 

„Ég er ekk­ert tengdur þessu í dag.“

Hann seg­ist ekki klár á því hvort söfn­uð­ur­inn sé enn starf­andi. Ólafur segir enn fremur að hann hafi ekki verið for­sprakki Zuism líkt og skrán­ingin bendir til. „Ég er ekk­ert tengdur þessu í dag og hef ekk­ert um þetta að segja,“ segir Ólafur.

Guðir súmera
Guðir súm­era Hér má sjá minjar frá Súmer sem sýna guði sið­menn­ing­unnar.

Brottfellt á næstunni

Líkt og fyrr segir er Zuism trú­ar­brögð sem finn­ast hvergi í heim­inum nema á Íslandi, utan forn­súm­eríu. Samtökin voru sam­þykkt til skrán­ingar árið 2013 en sam­kvæmt nýj­ustu skrán­ingu voru aðeins þrír ein­stak­lingar skráðir í trú­fé­lagið.

Lög sem sett voru í fyrra um trú­fé­lög heim­ila aðeins skrán­ingu á trú­ar­brögðum sem hafa fleiri en 25 lög­ráða ein­stak­ling skráða í félagið.

Stundin hefur heim­ildir fyrir því að Zuism verði á næstu miss­erum brott­fellt af skrá um trú­fé­lög á Íslandi, vegna þess að félagið upp­fyllir ekki reglur sem gilda um skráð trú­fé­lög. Regl­urnar kveða meðal ann­ars á um að athafnir á vegum félags­ins þurfi að fara reglu­lega fram. Í ljósi þess að félagið hefur aðeins þrjá skráða með­limi getur félagið ekki upp­fyllt þau skil­yrði. 

Vagga siðmenningar

Súmerska menn­ingin er talin ein elsta sið­menn­ing mann­kyns­sög­unnar en blóma­skeið þess var fyrir um 6000 árum síðan. Land­svæði Súmeríu var þar sem Írak er í dag. Elsta þekkta letur í heimi, fleyg­rúnir, er talið vera súm­er­ískt að upp­runa og hefur sið­menn­ingin oft verið kölluð vagga sið­menn­ingar. Hvað varðar trú­ar­brögð þess­arar fornu sið­menn­ingar er flest allt hulið eða gleymt. Það sem lifir er einna helst það sem greypt var í stein.

„Súmerar trúðu því að alheim­inum hefði verið stjórnað af hópi lif­andi vera, mann­legra í útlit, en ódauð­legar og með ofur­krafta.“

Verur með ofurkrafta

Zuism hélt um tíma úti vef­síðu þar trú­ar­brögðin voru skýrð nánar. Síðan er ekki virk lengur, en hana má nálg­ast með aðstoð Wayback Machine. „Zuism er eitt form forn­súm­erska trú­ar­bragða, trú­ar­brögð almenn­ings í forn­súm­eríu. Súmerar trúðu því að alheim­inum hefði verið stjórnað af hópi lif­andi vera, mann­legra í útlit, en ódauð­legar og með ofur­krafta. Súmerar trúðu því að þessar verur væru ósýni­legar mann­legum augum og stýrðu og leið­beindu alheim­inum í sam­ræmi við vel skipu­lag­aðar áætl­anir og lög,“ segir á vef­síð­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár