Dæmd til sektar fyrir Facebook-færslu um Ólaf Ólafsson og oddvita

Ung kona á sunn­an­verðu Snæ­fells­nesi hefur verið dæmd fyrir að meiða æru odd­vita Eyja- og Mikla­holts­hrepps með Facebook-færslu um greiða­semi Ólafs Ólafs­sonar athafna­manns við hann.

Dæmd til sektar fyrir Facebook-færslu um Ólaf Ólafsson og oddvita
Í deilu við nágranna Ólafur Ólafsson kaup­sýslu­maður hefur verið í deilum við ábú­endur á næsta bæ við sum­ar­bú­stað hans.

„Þetta kom mér virki­lega á óvart. Mér finnst þetta bara yfir­gangur,“ segir ung kona í Eyja- og Mikla­holts­hreppi, Anna Sesselja Sig­urð­ar­dóttir, sem hefur verið dæmd í Hér­aðs­dómi Vest­ur­lands til að greiða sekt í rík­is­sjóð eða sitja ella í fang­elsi í fjóra daga, fyrir að halda því fram að odd­vit­inn í hreppnum hefði fengið traktor að gjöf frá Ólafi Ólafs­syni athafna­manni, sem nú situr á Kvía­bryggju fyrir hlut­deild í mark­aðs­mis­notkun með hluta­bréf í Kaup­þingi.

Odd­vit­inn, sem seg­ist vera „kunn­ingi“ Ólafs Ólafs­sonar, hefur tekið afstöðu með Ólafi í deilu við Önnu og fjöl­skyldu hennar, meðal ann­ars þegar þau reyndu að nýta heitt vatn á land­ar­eign sinni. Samkvæmt nið­ur­stöðu dóms­ins fékk Guð­bjartur ekki gef­ins traktor frá Ólafi, eins og Anna hafði sagt, en hann fékk traktor lán­aðan.

Dró orð sín til baka en var samt ákærð

Anna Sesselja lét orðin falla á Facebook, en fjöl­skylda hennar hefur átt í langvar­andi deilum við Ólaf Ólafsson og eig­in­konu hans, Ingi­björgu Krist­jáns­dóttur, og hefur Ólafur meðal ann­ars boð­ist til að kaupa eign­ina af fjöl­skyldu Önnu. 

Anna Sesselja gagn­rýndi Guðbjart Gunn­ars­son, odd­vita í hreppnum, fyrir tengsl hans við Ólaf í Facebook-færslu. Í ákæru segir að málið hafi verið höfðað fyrir „æru­meið­andi aðdrótt­anir í garð Guð­bjarts Gunn­ars­sonar, odd­vita Eyja- og Mikla­holts­hrepps, með því að hafa sunnu­dag­inn 24. nóv­em­ber 2013 á heim­ili sínu ritað eft­ir­far­andi ummæli á sam­skipta­síðu (e. Facebook) og frá þeim tíma og fram til mánu­dags­ins 27. sama mán­aðar birt þau á inter­net­inu: „[...] En það vantar ekki að hann smjaðrar fyrir Ólafi Ólafs­syni sem á Miðhraun 1. Enda gaf Ólafur honum nýjan traktor (mútur eða hvað?) [...]“.

Þrátt fyrir að Anna Sesselja hefði dregið til baka orð sín um að trakt­or­inn hefði verið gjöf og tekið þau af Facebook í kjöl­far athuga­semdar Guð­bjarts odd­vita, fór hann fram á að málið yrði rann­sakað. „Ég baðst afsök­unar. Ég tók þetta út strax um leið og ég fékk athuga­semd frá Guð­bjarti. En ég tók ekki út heild­ar­færsl­una fyrr en nokkrum dögum seinna,“ segir hún.

Nið­ur­staðan var að rík­is­sak­sókn­ari höfð­aði mál gegn Önnu fyrir fyrr­greind orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár