Æðrulaus en fastur fyrir Sigurður Ingi Jóhanns­son tekur því sem að höndum ber af æðru­leysi, að sögn vina og sam­starfs­manna. Mynd: Pressphotos.biz

Bóndinn sem varð forsætisráðherra

Sigurður Ingi Jóhanns­son, nýr for­sæt­is­ráð­herra Íslands, er mennt­aður dýra­læknir og hrossa­bóndi úr Hruna­manna­hreppi. Hann missti báða for­eldra sína ungur að árum, þykir traustur sam­starfs­maður og tryggur vinur vina sinna. Sigurður lætur verkin tala en hefur verið gagn­rýndur fyrir að fara sínu fram í ýmsum málum.

Fáa hefði grunað það í byrjun þessa mán­aðar, og kannski allra síst Sigurð Inga Jóhanns­son sjálfan, að hann ætti síðar í mán­uð­inum eftir að verða for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Það gerð­ist nú samt og eflaust óþarfi að rekja í smá­at­riðum þá ótrú­legu atburð­ar­rás sem var und­an­fari þess. Flestir Íslend­ingar og raunar heims­byggðin öll varð vitni að því þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra eftir að hafa reynt að hylma yfir þá stað­reynd að hann og eig­in­kona hans ættu hund­ruð millj­óna á aflandseyj­unni Tortóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár