Bjarni Ben er umboðsaðili Elkem – „Það var enginn að pæla í þessu.“

Aðstoð­ar­maður Bjarna segir skrán­ing­una ekki hafa neina þýð­ingu og hún sé leifar af lög­manns­störfum hans árið 2003.

Bjarni Ben er umboðsaðili Elkem – „Það var enginn að pæla í þessu.“

Í grein sem birt­ist á vef­síð­unni vald.org, sem haldið er úti af Jóhann­esi Birni Lúð­víks­syni höf­undi bók­ar­innar Falið vald, er bent á að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sé enn skráður umboðs­maður Elkem á Íslandi sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá. Stundin hefur fengið það stað­fest af aðstoð­ar­mönnum Bjarna að þetta sé rétt. Ástæðan sé hins vegar frekar sak­leys­is­leg, skrán­ingu hafi ein­fald­lega ekki verið breytt frá árinu 2003 þegar Bjarni tók að sér sem lög­fræð­ingur að stofna banka­reikn­ing fyrir félagið.

Uppfærist ekki sjálfkrafa

„Þetta var nú ekki neitt, neitt. Bjarni var lög­maður á Lex til árs­ins 2003, eða fram að kosn­ingum 2003 þegar hann tók sæti á Alþingi. Eitt tengt því hefur greini­lega verið það að hann hefur verið skráður sem umboðs­að­ili þegar félagið var að stofna banka­reikn­ing, útibú. Þetta er svona úti­bús­mál. Hann hafði eins og lög­menn gera gjarnan, átt að vera tengilið­ur­inn á þeim tíma þegar það mál var í gangi,“ segir Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður Bjarna, í sam­tali við Stundina. Teitur segir að þrátt fyrir þessa skrán­ingu hafi Bjarni ekki starfað sem umboðs­maður Elkem á Íslandi sam­hlið þing­mennsku. „Þetta er skrán­ing sem upp­fær­ist ekk­ert sjálf­krafa ef það ger­ist ekki neitt. Það var eng­inn að pæla í þessu, þetta hefur enga þýð­ingu þar sem hann er ekki lengur lög­maður,“ segir Teitur.

Elkem á að lagfæra skráninguna

Hann segir að þegar þetta var kannað kom í ljós að félagið hafi rekið sig á þetta atriði líka. „Félagið þarf að sjá um þetta. Bjarni hefur ekk­ert með þetta að gera og hann hlut­ast ekk­ert til um skrán­ingu. Ef það þarf að koma nýju upp­lýs­ingum á fram­færi þá er það félags­ins að lag­færa þær,“ segir Teitur.

Segja Bjarna ganga erinda Elkem

Alcoa eign­að­ist álrekst­ursein­ingu Elkem árið 2008 en eig­in­maður Ólafar Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra, er fram­kvæmda­stjóri frum­fram­leiðslu Alcoa á heims­vísu. Öllum að óvörum skip­aði Bjarni Ólöfu sem inn­an­rík­is­ráð­herra í des­em­ber á síð­asta ári. Í jan­úar 2011 eign­að­ist síðan kín­verska sam­steypan China National Bluestar, Elkem. Í grein vald.org segir að frí­versl­un­ar­samn­ing­ur­inn, sem gerður var við Kína á síð­asta ári, hafi því í för með sér gíf­ur­lega hag­ræð­ingu á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins á milli Íslands og Kína á kostnað rík­is­ins. Í grein­inni er þannig ýjað að því að Bjarni gangi erinda fyr­ir­tæk­is­ins Elkems en ekki almenn­ings í ákvörð­unum sínum.

Teitur gefur ekki mikið fyrir grein­ina á vald.org. „Ég skaut­aði aðeins yfir þetta. Það er nú þannig að það er talað um Elkem Silikor Material. Þetta er nú tvö félög að mér skilst, í sam­keppni. Þannig að eftir það, þá var verið að rugla öllu saman. Þannig að við erum ekk­ert að spá í því,“ segir Teitur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár