Bali, Indo­nesía

10 ógleyman­­legir staðir til að heimsækja 2015

Sölvi Tryggva­son segir þetta þá staði sem honum hefur þótt skemmti­leg­ast að heim­sækja í gegnum tíð­ina.

Hér að neðan er listi yfir þá staði sem mér hefur þótt skemmti­leg­ast að heim­sækja í gegnum tíð­ina. Á list­anum ættu allir að finna eitt­hvað við sitt hæfi. Hafa skal í huga að þær borgir sem Íslend­ingar heim­sækja oft­ast eru nær allar á lista yfir dýr­ustu borgir heims, þannig að þó að flug á suma áfanga­stað­ina hér að neðan kosti sitt, byrjar það yfir­leitt að borga sig upp strax á fyrsta degi í mun lægri kostn­aði við mat, gist­ingu og styttri ferðir.

Það er gott að hafa nokkra hluti í huga þegar farið er í ferða­lag á fram­andi slóðir. 
Þær leit­ar­vélar sem hafa reynst mér best eru „Google flights“ og Kayak.com. Með því að skoða flug á þessum tveimur síðum er nokkuð öruggt að maður finnur lægsta verðið. En um að gera að skoða sveigj­an­legar dag­setn­ingar, því mun­ur­inn getur verið mik­ill á milli ein­stakra daga. Þegar kemur að hót­elum eru bæði Booking.com og Agoda.com mjög traustar síður. Gott er að sortera hótel eftir ein­kunna­gjöf ann­arra gesta. 

Þegar komið er á nýjan stað er um að gera að spyrja fólk ráða strax á fyrsta degi. Þú færð oftar en ekki allt aðrar upp­lýs­ingar hjá fólki á götu úti en á hót­elum og í ferða­manna­bæk­lingum. Það er líka fín leið til að fara aðeins út fyrir þæg­inda­boxið að gera sér far um að ræða við ókunn­uga. Margir eru hræddir við áfanga­staði sem þeir vita lítið um, en mín reynsla er sú að við ofmetum hættur á áfanga­stöðum utan Evrópu. New York og London eru síður en svo hættu­minni en flestar stór­borgir í öðrum heims­hlutum. 

 

1Kyoto, Japan 

Heimsókn til Kyoto í Japan lætur engan ósnort­inn. Borgin og næsta nágrenni hennar skarta hvorki meira né minna en 17 stöðum á Heimsminja­skrá UNESCO. Hvergi í heim­inum eru svo margir slíkir staðir  á jafn litlu svæði. Alda­gömul hof, hallir og steina­garðar eru konfekt fyrir augun. Borgin er gríð­ar­lega hrein og öllu vel við haldið. Mat­ar­menn­ingin er þannig að það er nán­ast upp­lifun í hvert ein­asta skipti sem sest er að borðum. Glæpir eru hér um bil óþekktir og kurt­eisi og gest­risni er í algjörum heimsklassa. Allt þetta gerir borg­ina að stór­kost­legum stað fyrir ferða­menn. Þó að Kyoto sé stór­borg, er hún mjög við­ráð­an­leg og þægi­leg. Í gegnum borg­ina rennur áin Kamogawa og við bakka hennar er hægt að ganga eða hjóla með árnið og fugla­söng í eyrum ef fólk vill hvíla sig á ys og þys borg­ar­innar. Best er að koma til Kyoto á vorin, þegar veð­ur­far er mjög milt og kirsu­berja­tré í blóma. 

Þó að Kyoto sé vissu­lega ekki áfanga­staður fyrir þá sem ætla að ferð­ast ódýrt, eru sögur af háu verð­lagi í Japan yfir­leitt veru­lega ýktar. Þegar kemur að gist­ingu, mat og ferðum á milli staða er verð­lag lægra í Japan en í París, London, Osló, Stokk­hólmi eða Kaup­manna­höfn. Það dýrasta við ferð­ina er flugið, enda ferðin löng. En þegar til Japans er komið er verð­lag í flestum til­vikum svipað og í hefð­bundnum evr­ópskum borgum. Fyrir þá sem vilja ferð­ast um Japan er hægt að kaupa „Railway Pass“ í Shink­an­sen hrað­lest­irnar. Með honum má ferð­ast ótak­markað með lest­unum í eina viku. Í þeim er boðið upp á rúm­góð og þægi­leg sæti og nægt fóta­pláss. Þar sem lest­arnar ná meira en 300 km hraða á klukku­stund kemst maður langar leiðir á til­tölu­lega skömmum tíma. Ferðalag til Tokyo tekur til að mynda aðeins tvær og hálfa klukku­stund. Fyrir þá sem ekki hafa komið til Japan ættu þessar tvær borgir hik­laust að fara á list­ann yfir „once in a lifetime“ ferða­lag.

SAS flug­fé­lagið býður með reglu­legu milli­bili upp á ferðir til Japan, þar sem leit­ast er við að hafa verðið svipað frá öllum borgum Norð­ur­land­anna, sem þýðir að legg­ur­inn frá Íslandi til Kaup­manna­hafnar er nán­ast gef­ins. Þá er jafn­framt hægt að tékka far­ang­ur­inn alla leið frá Keflavík til Tokyo.

Bali
Bali

2 Bali, Indonesía

Ef þér finn­ast bíó­mynda-ímyndir af para­dís­ar­stöðum aldrei í takti við veru­leik­ann þegar til kast­anna kemur ættir þú að fara til Bali. Á síð­ustu ára­tugum varð ótrú­legur ferða­manna­upp­gangur á eyj­unni, sem þýðir að úrvalið af gisti­stöðum er óheyri­legt og þjón­ustu­stigið mjög hátt. En þrátt fyrir það er enn hægt að fá gríð­ar­lega mikið fyrir pen­ing­inn á Bali. Hryðju­verka­árás­irnar árið 2002 gerðu það að verkum að allt verð hrundi og eru fyrst núna að hækka aftur. Árás­irnar voru úr takti við allt sem þekk­ist á Bali, sem er almennt ein­hver frið­sæl­asti og örugg­asti staður sem hægt er að heim­sækja. Margir telja rang­lega að búið sé að skemma Bali með of miklum túrisma. Það er ekki rétt. Hver og einn fær það sem hann leitar að og ef þú vilt ró og næði er nóg að skjót­ast korters bíl­ferð til að kom­ast á mann­lausar strendur. Inni í landi er svo hér­aðið Ubud, sem er þekkt sem eins konar nýlenda fyrir þá sem vilja stunda listir, yoga, hug­leiða, fara í göngut­úra í óspilltri nátt­úru eða leita óhefð­bund­inna lækn­inga. 
Ef fólk forð­ast allra vin­sæl­ustu hverfin er verð­lag mjög lágt á Bali. Dýr flug­ferðin er fljót að borga sig upp í marg­falt lægri gisti- og mat­ar­kostn­aði en á vin­sælum ferða­manna­stöðum í Evrópu. Auð­veld­ast er að fljúga í einum rykk frá Íslandi til Evrópu og þaðan í gegnum Kuala Lumpur eða Singa­pore til Denpasar á Bali. Eða nota tæki­færið og stoppa nokkra daga á áhuga­verðum stað á leið­inni til að draga úr flug­þreytu.

Istanbúl
Istanbúl

3Istanbúl, Tyrkland 

Hót­el­verð hefur snar­lækkað í Istanbúl vegna óróa ann­ars staðar í Mið-Aust­ur­löndum, þó að borgin hafi ítrekað verið á topp­listum yfir bestu ferða­manna­borgir heims á síð­ustu árum. Fyrir þá sem vilja kom­ast í fram­andi menn­ing­ar­heim án þess að fljúga óheyri­lega langt er Istanbúl stað­ur­inn. Borgin er bæði hluti af Evrópu og Asíu og segja má að hún bjóði upp á þrjá menn­ing­ar­heima: Evr­ópskan, arab­ískan og asískan. Istanbúl hefur upp á stór­kost­legar bygg­ingar að bjóða, frá­bært úrval versl­ana og mikla mat­ar­menn­ingu. Besti tím­inn til að vera í Istanbúl er á vorin eða haustin, þar sem hit­inn getur orðið óhóf­legur yfir hásum­arið. Fyrir þá sem vilja slá tvær flugur í einu höggi er því upp­lagt að fara á síð­asta lands­leik íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu í riðla­keppni EM 2016, sem verður einmitt í Istanbúl í haust.

Marrakesh
Marra­kesh

4Marrakesh, Marokkó 

Frábær staður til að heim­sækja í alla staði. Verð­lagið er með afbrigðum gott, veð­ur­sældin mikil, mat­ur­inn frá­bær og menn­ingin ein­stök. Jamal El Fna mark­aðs­torgið í mið­borg Marra­kesh er eitt það stærsta í allri Afríku. Þar ægir saman götu­lista­mönnum, galdra­körlum, takt­fastri tón­list, bæna­köllum úr nær­liggj­andi moskum og bál­köstum langt fram eftir kvöldi. Easyjet flýgur beint til Marra­kesh frá London og býður jafn­framt upp á pakka­ferðir þangað, þar sem innan um má finna mjög góð hótel á frá­bæru verði miðað við gæði. (www.holidays.easyjet.com).
Flugið frá London er rétt rúm­lega þrjár og hálf klukku­stund, þannig að ef þú leggur af stað að morgni frá Íslandi getur þú verið kom­inn til norð­ur­hluta Afríku sama dag. Tíminn er sá sami og í London, þannig að ferða­lag­inu fylgir ekki sama flug­þreyta og ef farið er til Asíu eða Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár