Eyþór á fyrirtæki úti á Granda og vill byggja í Örfirisey

Eyþór Arnalds fram­bjóð­andi í odd­vita­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill að borgin reisi íbúa­byggð í Örfirisey. Hann á sjálfur fyr­ir­tæki í rekstri svæð­inu en telur hags­muna­tengslin ekki þannig að honum sé ókleift að vera tals­maður upp­bygg­ingar á svæð­inu.

Eyþór Arnalds fram­bjóð­andi í odd­vita­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill að borgin reisi íbúa­byggð í Örfirisey. Hann á sjálfur fyr­ir­tæki í rekstri svæð­inu en telur hags­muna­tengslin ekki þannig að honum sé ókleift að vera tals­maður upp­bygg­ingar á svæð­inu.

Í aðsendri grein frá Eyþóri í Frétta­blað­inu í gær kemur fram að hann telji þétt­ingu byggðar í Reykja­vík hafa mis­tek­ist. Þannig hafi borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn und­an­farin ár unnið að þétt­ingu byggðar í mið­borg­inni þar sem ætla mætti að hefði þar af leið­andi orðið umtals­verð íbúa­fjölgun. Hins vegar hafi fólki fækkað þar um tvö pró­sent á einu ári og um níu pró­sent á fimm árum. Vísar hann þar í frétta­skýr­ingu Kjarnans frá því í apríl í fyrra þessu til stuðn­ings.

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans kemur einnig fram að flestir grein­ing­ar­að­ilar séu reyndar sam­mála um að útleiga íbúða til ferða­manna hafi tals­verð ruðn­ings­á­hrif og það sé mest í mið­borg­inni enda séu þar flestar íbúðir í útleigu. Í grein­ingu Arion banka frá því í jan­úar í fyrra sagði að allt að 3.200 íbúðir eru her­bergi væru til leigu á Airbnb eða annarri heimagist­ingu.

Eyþór leggur til „nýja nálgun“ í þétt­ingu byggðar, að leyfa eigi háhýsi í Örfirisey, sem margir þekkja ein­fald­lega sem Granda­hverfið, líkt og gert var í Skugga­hverfi. Eyþór segir mögu­legt að byggja 10-15 þús­und manna byggð í áföngum í Örfirisey og þannig létta á ójafn­vægi umferðar og vera val­kostur fyrir fólk sem vill búa á mið­svæði.

Fram­bjóð­and­inn á hins ein­hverra óbeinna hags­muna að gæta á svæð­inu. Hann á til að mynda meiri­hluta í Whales of Iceland sem rekur hvala­sýn­ingu á Grand­anum. Dótt­ur­fé­lag Eyþórs Special Tours keypti sýn­ing­una í lok síð­asta árs, gerir einnig út á ferða­manna­sigl­ingar frá Gömlu höfn­inni í Reykja­vík auk þess að eiga kaffi­húsið Reykja­vík Röst Bistro við sömu höfn. Að sögn Eyþórs á hann þó hvorki húsið né lóð­ina sem sýn­ingin stendur á.

Í sam­tali við Kjarnann segir Eyþór að í grein sinni sé hann aðeins að vísa til svo­kall­aðs tanka­svæðis í Örfirisey, það er það svæði þar sem olíu­tank­arnir standa, en ekki alls Granda­svæð­is­ins. Tanka­svæðið er í eigu Faxa­flóa­hafna.

Áður hefur verið rætt um fram­tíð olíu­tankanna á þessu svæði, til að mynda var árið 2013 fram­kvæmd könnun fyrir Faxa­flóa­hafnir meðal fyr­ir­tækja við gömlu höfn­ina þar sem fram kom að meiri­hluti þeirra vildu tank­ana burt á þeim for­sendum að olíu­flutn­ingar þaðan væru hættu­legir.

Eyþór vill ekki meina að hann sé með of mik­illa hags­muni í húfi til að verða van­hæfur tals­maður upp­bygg­ingar í Örfirisey. Hvala­sýn­ingin myndi ekk­ert græða á byggð á svæð­inu, en 95 pró­sent gesta hennar séu útlend­ingar.

Hann segir upp­bygg­ingu á svæð­inu hafa verið til umræðu fyrir um 12 árum síðan. „Skugga­hverfið er dæmi um vel heppn­aða þétt­ingu á svæði sem áður var bara iðn­að­ar­svæði við sjó­inn. Þetta myndi auka fram­boðið fyrir ungt fólk, það vantar fleiri íbúðir í vest­ari hluta borg­ar­innar til að létta á umferð­inni austur síð­ari hluta dags,“ segir Eyþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár