Brottvísun frestað á ný

Búið er að fresta brott­vísun ungu flótta­barn­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldra þeirra frá Írak til Grikk­lands um óákveð­inn tíma.

Ali, Kayan, Saja og Jadin
Ali, Kayan, Saja og Jadin Mynd: Facebook/Sema Erla

Búið er að fresta brott­vísun ungu flótta­barn­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldra þeirra frá Írak til Grikk­lands um óákveð­inn tíma. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Semu Erlu Serdar, ­stofn­anda Sol­aris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, á Face­book-­síðu hennar nú rétt í þessu.

Hún segir að sú skýr­ing sem gefin hafi verið á því sé að brott­vís­unin strandi á grískum stjórn­völdum sem seg­ist ekki geta tekið á móti þeim vegna aðstæðna þar.

[links]Kjarninn greindi frá því í morgun að kæru­nefnd útlend­inga­mála hefði hafnað beiðni um end­ur­upp­töku á máli fjöl­skyld­unnar.

„Það þurfti sem­sagt grísk stjórn­völd til þess að stöðva ómann­úð­lega og grimmi­lega með­ferð íslenskra yfir­valda á börnum á flótta, sem voru búin að leigja einka­flug­vél undir þau, svo það sé alveg á hreinu! Börnin eru óhult í bili, en ég neita að trúa því að þeim verði til­kynnt um brott­vísun í þriðja skiptið,“ skrifar Sema Erla og bætir því við að slíkt ofbeldi muni aldrei líð­ast.

[adspot]

Þá telur hún að við þurfum öll að halda áfram að fylgj­ast mjög vel með stöðu mála og passa upp á að íslensk yfir­völd reyni ekki „að fram­kvæma for­kast­an­legar aðgerðir eins og þá sem stóð til að gera í þessu til­felli í skjóli nætur.“

Yfirlýsing frá Útlendingastofnun barst fjölmiðlum klukkan 14:30.

Að gefnu til­efni vill Útlend­inga­stofnun koma því á fram­færi að grísk stjórn­völd hafa ekki hafnað því að taka við ein­stak­lingum sem hafa fengið alþjóð­leg vernd í Grikk­landi.

Stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra und­ir­býr nú ferð til Grikk­lands með fjöl­skyldu og ein­stak­ling, sem var synjað um efn­is­lega með­ferð umsókna þeirra um alþjóð­lega vernd hér á landi vegna þess að þau njóta nú þegar alþjóð­legrar verndar í Grikk­landi.

Ferðin var á áætlun í þess­ari viku en hlut­að­eig­andi hefur verið til­kynnt að hún muni frest­ast. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá stoð­deild er ástæðan sú að boð­leiðum fyrir end­ur­send­ing­ar­beiðnir í grísku stjórn­sýsl­unni hefur verið breytt og því liggur ekki fyrir sam­þykki frá réttu stjórn­valdi. End­ur­send­ing­ar­beiðni hefur nú þegar verið send þar til bæru stjórn­valdi til afgreiðslu.

Það er því ekki rétt að grísk stjórn­völd hafi hafnað því að taka aftur við ein­stak­lingum sem hafa fengið alþjóð­leg vernd í Grikk­landi vegna aðstæðna þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár