Vandinn sem fylgir spilakössum verði ekki leystur með boðum og bönnum

Í umsögn Háskóla Íslands við frum­varp um bann við spila­kössum er kallað eftir því að málin „séu skoðuð heild­stætt og ekki hrapað að nið­ur­stöðu,“ enda sé árlegt fram­lag HHÍ skól­anum mik­il­vægt. Embætti land­læknis styður aftur á móti bann við spila­kössum.

Í greinargerð sem fylgir frumvarpi um bann við spilakössum segir að spilakassar séu hannaðir til þess að skapa fíkn.
Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi um bann við spila­kössum segir að spila­kassar séu hann­aðir til þess að skapa fíkn. Mynd: hi.is

Greina þarf hvort og þá með hvaða hætti unnt er að mæta ýmsum sjón­ar­miðum varð­andi tekju­öflun Háskóla Íslands, án þess að til sam­dráttar komi, nái laga­frum­varp um bann við spila­kössum fram að ganga að mati Háskól­ans. Í umsögn sem send var frá Háskól­anum við frum­varp um bann við spila­kössum segir að skól­inn geti ekki verið án þeirra fjár­muna sem Happ­drætti Háskóla Íslands (HHÍ) aflar fyrir skól­ann.

Í umsögn­inni er einnig sagt að vandi ein­stak­linga með spilafíkn verði ekki leystur með því að banna spila­kassa. „Þá er miklum vafa und­ir­orpið að sá vandi sem er til­efni frum­varps­ins og reif­aður er í grein­ar­gerð, verði leystur með boðum og bönnum. í því sam­hengi er til skoð­unar í starfs­hópi, sem háskóla­rektor hefur skipað, með hvaða hætti unnt er að mæta ýmsum sjón­ar­miðum sem fram hafa komið varð­andi leiðir við tekju­öflun Happ­drætt­is­ins, án þess að til sam­dráttar komi og jafn­framt um leið að draga úr mögu­legum skaða ein­stak­linga. Málið er í vinnslu og nið­ur­stöður liggja ekki fyrir að svo stöddu.“

Háskól­inn tekur undir þær áhyggjur sem lýst er í grein­ar­gerð frum­varps­ins um vanda þeirra sem glíma við spilafíkn. „Hins vegar er mik­il­vægt að mál af þessu tagi séu skoðuð heild­stætt og ekki hrapað að nið­ur­stöðu,“ segir enn fremur í umsögn Háskól­ans sem und­ir­rituð er af Jóni Atla Bene­dikts­syni rektor skól­ans.

HHÍ fjármagnað nær allar byggingar Háskólans

Happ­drætti Háskóla Íslands aflar tekna með þrenns konar hætti. HHÍ var stofnað árið 1933 og hefur aflað fjár með happ­drættum allt frá árinu 1934. Árið 1987 hóf HHÍ að selja skaf­miða, hinar svoköll­uðu happa­þrennur, og árið 1993 voru fyrstu spila­kassar HHÍ teknir í notkun undir merkjum Gull­námunnar.

Fram kemur á heima­síðu HHÍ að frá stofnun hafi happ­drættið fjár­magnað nær allar bygg­ingar Háskóla Íslands en allur hagn­aður af rekstri HHÍ fer til upp­bygg­ingar Háskóla Íslands. Nýjasti aðgengi­legi árs­reikn­ingur happ­drætt­is­ins er frá árinu 2019. Þar kemur fram að fram­lag HHÍ til Háskóla Íslands nam 580 millj­ónum króna árið 2019. Árið áður runnu tæpir 1,2 millj­arðar króna frá HHÍ til Háskól­ans. Vert er að taka fram að hagn­aður HHÍ kemur ekki alfarið frá rekstri spila­kassa, heldur eru tekju­stoð­irnar þrjár, happ­drættið, happa­þrenn­urnar og spila­kass­arnir.

Spilakassar séu hannaðir til að ýta undir fíkn

Frum­varpið sem um ræðir er flutt af þing­mönnum Flokks fólks­ins, þeim Ingu Sæland og Guðmundi Inga Krist­ins­syni. Í frum­varp­inu er lagt til að lögum um happ­drætti Háskóla Íslands og lögum um happ­drætti verði breytt þannig að rekstur spila­kassa verði bann­aður.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að fjár­hættu­spil hér á landi séu almennt bönnuð. Tíðkast hafi að veita góð­gerða- og almanna­heilla­fé­lögum und­an­þágu frá banni við fjár­hættu­spilum til að starf­rækja happ­drætti, hluta­veltu, get­raunir og spila­kassa. Und­an­farið hafi hins vegar skap­ast umræða um rekstur spila­kassa og „hvort sú starf­semi sé í raun svo skað­leg að rétt sé að banna hana með öllu.“

Flutn­ings­menn segja í grein­ar­gerð­inni að spila­kassar séu hann­aðir til að ýta undir spilafíkn. „Ólíkt happ­drættum þá skila þeir nið­ur­stöðu sam­stundis og hægt er að taka þátt strax aftur. Það ýtir undir vana­myndun og því eru þátt­tak­endur mun lík­legri til að þróa með sér fíkn heldur en þátt­tak­endur í happ­drættum. Þá er útreiknað vinn­ings­hlut­fall spila­kassa almennt hærra en sam­bæri­legt hlut­fall í happ­drættum og það getur ýtt undir rang­hug­myndir not­enda um afleið­ingar þátt­töku.“

Þá segir í grein­ar­gerð­inni að velta spila­kassa sé yfir millj­arður króna á ári þrátt fyrir að not­endur séu fáir. „Það gefur til kynna að velt­una megi að mestu leyti rekja til spilafíkla sem eyði veru­legum fjár­munum í fíkn sína.“

Tekjutap verði bætt

Til við­bótar við bannið er í frum­varp­inu bráða­birgða­á­kvæði sem kveða á um að ríkið muni koma til móts við það tekju­tap sem rekstr­ar­að­ilar stæðu frammi fyrir ef frum­varpið yrði að lögum. Þannig er gert ráð fyrir að ráð­herra geri samn­ing við Háskóla Íslands um fjár­mögnun upp­bygg­ingar og við­halds fast­eigna á Háskóla­svæð­inu. „Áætlað tekju­tap Happ­drætti Háskóla Íslands vegna lok­unar spila­sala árin 2021–2024 skal jafna á móti greiðslum vegna samn­ings um upp­bygg­ingu og við­hald fast­eigna á Háskóla­svæð­inu.“

Annað bráða­birgða­á­kvæði gerir ráð fyrir að rík­is­sjóður muni greiða hlut­höfum Íslands­spila bætur að fjár­hæð eins millj­arðs króna á ári, árin 2021–2024. Í þessu bráða­birgða­á­kvæði er lagt til að 64 pró­sent greiðsln­anna renni til Rauða kross­ins á Íslandi, Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg fái 26,5 pró­sent og SÁÁ fái 9,5 pró­sent.

Athygli vekur að SÁÁ er hér talið upp en SÁÁ er ekki lengur í hópi hlut­hafa Íslands­spila. Seint á síð­asta ári sam­þykkti stjórn SÁÁ að hætta þátt­töku í rekstri félags­ins en sam­starfi milli SÁÁ og Íslands­spila var form­lega slitið í apríl síð­ast­liðnum.

Landlæknir styður bann við spilakössum

Meðal þeirra sem skilað hafa inn umsögn er emb­ætti land­læknis en emb­ættið styður bann við spila­kössum. Í umsögn­inni segir að þátt­taka í spila­kössum sé sú teg­und fjár­hættu­spila sem teng­ist helst spilafíkn. Ein af ástæð­unum fyrir því er sögð vera lengd hvers leiks, leik­irnir séu stuttir og því fáist nið­ur­staða iðu­lega hratt.

„Tíðni end­ur­gjafar í formi vinn­ings, sem oft­ast er smá­vinn­ingur, er mikil og fólk upp­lifir að það hafi stjórn á leiknum sem er tál­sýn þar sem nið­ur­staðan er ávallt til­vilj­unum háð. Í sumum spila­kössum er mögu­leiki að geta notað stopp-takka sem ýtir undir þessa álykt­un­ar­villu spilar­ans um að hann hafi stjórn á leiknum því nið­ur­staða leiks­ins var í raun ákveðin,“ segir í umsögn emb­ættis land­læknis.

Samtök áhuga­fólks um spilafíkn tekur í sama streng í sinni umsögn og segir það marg­sýnt að spila­kassar hafi í för með sér skað­semi fyrir þá sem ánetj­ast þeim, aðstand­endur þeirra og sam­fé­lagið allt.

Rauði kross­inn á Íslandi og Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg senda inn sína umsögn­ina hvort, en eins og áður hefur komið fram reka félögin saman Íslands­spil. Umsagnir þeirra eru nokkuð svip­aðar. Félögin telja það mik­il­vægt að starfs­hópur dóms­mála­ráð­herra, sem fjalla á um happ­drætti og fjár­hættu­spil, fái að ljúka sinni vinnu áður en frum­varpið er sett fram. Hópnum er ætlað að skila fyrstu til­lögum sínum um breyt­ingar á lögum og reglu­gerðum um happ­drætti, telj­ist þær nauð­syn­legar, eigi síðar en 1. júní. Í hópnum sitja aðilar sem til­nefndir voru af Samtökum áhuga­fólks um spilafíkn og happ­drætt­is­fyr­ir­tækjum auk full­trúa hins opin­bera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilakassar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár