Guðni Ágústsson hættir í mjólkinni, ástæðan aðhaldsaðgerðir

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun hætta sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði (SAM) í næstu viku þegar aðal­fundur sam­tak­ana fer fram. Sam­komu­lag varð á milli SAM og Guðba um starfs­lokin og þau skýr­ast fyrst og fremst af aðhalds­að­gerðum innan sam­tak­ana. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Guðna að tími sé til kom­inn að fara að snúa sér að öðru. "Ég er búinn að vera á þessum vett­vangi í fimm ár og það er í sjálfu sér langur tími. Það hefur verið sam­komu­lag milli mín og stjórn­ar­innar um að ég hætti störfum. Ég ætl­aði að vísu að hætta í haust, en því var frestað þar sem mikil átök urðu í mjólkur­iðn­aði".

Rögn­valdur Ólafsson, for­maður stjórnar SAM, segir við Frétta­blaðið að rann­sókn­ar­starf­semi og mjólk­ur­eft­ir­lit hafi bæði færst frá SAM til Mjólk­ur­sam­söl­unnar vegna þess að sam­tökin telji sig geta sparað með því. Starfs­lok Guðna sé liður í þeim aðhalds­að­gerðum.

Eigendur SAM eru: Mjólk­ur­sam­salan (sem er í 90 pró­sent eigu Auðhumlu og tíu pró­sent eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga), Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Mjólka ehf., sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

[caption id="attachment_3119" align="alignnone" width="730"] Mikil átök hafa verið innan mjólkur­iðn­að­ar­ins und­an­farin miss­eri.[/caption]

 

Guðni tók þátt í átökum vegna sektar


Þau miklu átök sem voru innan mjólkur­iðn­að­ar­ins, og Guðni vísar í sem ástæðu fyrir frestun starfs­loka sinna, snér­ust um 370 millj­óna króna sekt sem Mjólk­ur­sam­salan fékk vegna alvar­legra sam­keppn­islaga­brota í óktó­ber 2014. Etir­litið komst að þeirri nið­ur­stöðu að Mjólk­ur­sam­salan hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og beitt smærri keppi­nauta sam­keppn­is­hamlandi mis­munun með því að selja þeim hrá­mjólk á 17 pró­sent hærra verði en fyr­ir­tæki sem eru tengd MS greiddu.

Áfrýj­un­ar­nefnd Sam­keppn­is­mála felldi úrskurð­inn úr gildi í des­em­ber þar sem ný gögn komu í ljós og vís­aði mál­inu aftur til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Nýrrar nið­ur­stöðu er enn beðið.

Mikið fór fyrir Guðna í opin­berri umræðu í kringum ákvörðun eft­ir­lits­ins. Hann kom opin­ber­lega fram og hnýtti fast í ákvörð­un­ina og þann sam­keppn­is­að­ila sem hafði kvartað yfir hegðun Mjólk­ur­sam­söl­unnar við eft­ir­litið.

Einar líka að hætta


Guðni er ekki eini for­víg­is­maður mjólkur­iðn­að­ar­ins sem lætur af störfum næstu miss­erin. Einar Sig­urðs­son, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar og Auðhumlu, hyggst láta af störfum 30. júní næst­kom­andi. Þetta til­kynnti hann snemma í

[caption id="attachment_16466" align="align­right" width="300"] Einar Sig­urðs­son, frá­far­andi for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar og Auðhumlu.[/caption]

jan­úar. Hann hefur verið for­stjóri félags­ins frá árinu 2009.

Í til­kynn­ing­unni frá Mjólk­ur­sam­söl­unni var haft eftir Einari: „Ég tek þessa ákvörðun vegna breyt­inga sem verða á högum fjöl­skyldu minnar í lok júní. Við hjónin ákváðum fyrir um ári síðan að hverfa bæði úr mjög anna­sömum stjórn­un­ar­störfum hér heima um mitt þetta ár og dvelja og starfa tölu­vert erlendis næstu miss­eri. Ég sný mér þar að nýjum verk­efnum sem ég hef lengi haft áhuga á að hrinda í fram­kvæmd, en jafn­framt mun ég áfram vinna fyrir hönd Mjólk­ur­sam­söl­unnar að upp­bygg­ingu nýs fyr­ir­tækis með hópi fjár­festa til fram­leiðslu og sölu á skyri í Banda­ríkj­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár