Verða meistarar krýndir í heimsfaraldri?

Kór­ónu­veiran er búin að lama íþrótta­heim­inn og fram­haldið er óljóst, eins og svo margt annað. Móts­hald­arar eru í erf­iðri stöðu og fjár­hags­legt tjón íþrótta­fé­laga verður fyr­ir­sjá­an­lega mikið, bæði hér heima og erlendis.

Við lifum for­dæma­lausa tíma. Daglegt líf víða um heim er að miklu leyti úr skorðum eða á leið úr skorðum. Aðgerðir stjórn­valda and­spænis óþekktri ógn stig­magn­ast dag frá degi og eru nú dæmi þess að landa­mærum ríkja sé lokað. Fréttir um nýjar aðgerðir, úrræði og leiðir til að hefta útbreiðslu kór­ónu­veirunnar ber­ast stans­laust og fréttir af efna­hags­legum hörm­ungum sem gætu jafn­ast á við hrun alþjóð­legra fjár­mála­mark­aða fyrir röskum ára­tug fylgja svo í kjöl­farið.

Ótaldar eru þá fregnir sem ber­ast af raski ann­arra þátta mann­lífs­ins sem eru minna mik­il­vægir en heilsa fólks og fjár­hags­leg heilsa sam­fé­laga, en mik­il­vægir þó fyrir marga. Íþrótta­heim­ur­inn er einn þess­ara þátta. Hann er í algjöru upp­námi og risa­stórt alheims­í­þrótta­hag­kerfið þá að sjálf­sögðu líka.

Einnig fjár­hagur margra íslenskra íþrótta­fé­laga. Að ógleymdri helstu afþr­ey­ingu margra. Íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn Gaupi kjarnar þetta ágæt­lega. Hvenær hafa íþrótta­á­huga­menn næst eitt­hvað að ríf­ast um?

Þróunin hefur verið hröð und­an­farna rúma viku og nú er svo komið að það þykir vart frétt­næmt að hitt eða þetta íþróttaliðið sé komið í sótt­kví vegna stað­festra COVID-19 smita, ein­hverju keppn­is­haldi sé slegið á frest næstu vikur eða því slaufað alfarið þetta tíma­bilið í íþrótta­greinum þar sem tíma­bilið nær frá hausti til vors. Kór­ónu­veiran er búin að lama íþrótt­irnar og fram­haldið óljóst, eins og með svo margt annað.

Fjárhagslegt högg fyrir íslensk íþróttafélög

Hér inn­an­lands varð það end­an­lega ljóst á föstu­dag að íþrótta­keppni yrði alfarið blásin af næstu fjórar vik­urnar. Þá til­kynnti Hannes Jónsson for­maður KKÍ, í þætt­inum Körfu­bolta­kvöldi á Stöð 2 Sport, að ekki yrði leik­inn körfu­bolti á Íslandi næstu fjórar vik­urnar. Ekkert annað stóð enda til boða eftir að til­kynnt var um sam­komu­bann, sem hefst á mið­nætti í kvöld.

„Við vorum númer eitt, tvö og þrjú að bíða eftir því að fá þetta frá almanna­vörnum og sótt­varna­lækni, hvað við ættum að gera,“ sagði Hannes í þætt­inum, en for­svars­menn KKÍ höfðu velt því fyrir sér hvort mögu­leiki væri að ljúka körfuknatt­leiks­tíma­bil­inu fyrir luktum dyrum.

Forysta sam­bands­ins hafði áður fengið gagn­rýni fyrir að stöðva ekki móta­hald sitt fyrr. Brynjar Þór Björns­son, leik­maður Íslands­meist­ara KR, gaf það út strax 5. mars að hann myndi ekki spila stór­leik gegn Stjörn­unni og skor­aði á KKÍ að slaufa öllu móta­haldi sínu strax. Fleiri töl­uðu með svip­uðum hætti.

Á þeim tíma­punkti höfðu innan við þrjá­tíu COVID-19 smit greinst á Íslandi og engin merki voru enn um sam­fé­lags­smit. Auk þess hafði deild­ar­keppnum ann­arra landa ekki verið aflýst. Körfuknatt­leiks­hreyf­ingin hvatti til þess að tekið yrði á mál­unum með ró, allt yrði gert sam­kvæmt ráð­legg­ingum yfir­valda.

Hið sama gerði hand­bolta­hreyf­ingin, en bik­ar­helgi HSÍ fór fram með algjör­lega óbreyttu sniði í Laug­ar­dals­höll síð­ustu helgi. Karlalið Stjörn­unnar, sem þar laut í lægra haldi gegn ÍBV í úrslita­leik, er nú komið í sótt­kví eftir að smit greind­ist hjá einum leik­manna. HSÍ ákvað á föstu­dag að fresta öllum leikjum ótíma­bundið, eftir að stjórn­völd til­kynntu um sam­komu­bann.

Ljóst er að þetta allt saman verður mikið fjár­hags­legt áfall fyrir körfu­bolta- og hand­bolta­hreyf­ing­una á Íslandi. Efna­hagur flestra liða er við­kvæmur. Ef ein­ungis er horft á efstu deild karla í körfu­bolta, þá eru þar tólf lið, öll með erlenda atvinnu­menn á sínum snærum. Sum jafn­vel með fjóra slíka, auk íslenskra leik­manna á launum.

Stjarnan varð bikarmeistari í körfubolta 16. febrúar síðastliðinn fyrir troðfullri Laugardalshöll. Það verður langt í að fullar íþróttahallir sjáist aftur hérlendis.
Stjarnan varð bik­ar­meist­ari í körfu­bolta 16. febr­úar síð­ast­lið­inn fyrir troð­fullri Laug­ar­dals­höll. Það verður langt í að fullar íþrótta­hallir sjá­ist aftur hér­lendis.

Liðin spenna bog­ann hátt og von­ast eftir því að vel­gengni í úrslita­keppni og fullt hús áhorf­enda leik eftir leik skili nægi­legu fé til baka í gegnum miða­sölu til að tíma­bilið komi sóma­sam­lega út fjár­hags­lega.

Nú er óljóst hvort nokkur úrslita­keppni verður í efstu deildum karla og kvenna og 1. deild karla í körfu­bolt­anum, en end­an­leg ákvörðun um það verður tekin mið­viku­dag­inn 18. mars í síð­asta lagi, sam­kvæmt tikynn­ingu sem stjórn KKÍ gaf út í gær. Búið er að slaufa keppni í öllum neðri deildum og yngri flokkum körfu­bolt­ans og þar verða engir deildar- eða Íslands­meist­arar krýndir þetta tíma­bilið.

Hvað er sanngjarnt að gera?

„Ef stjórn KKÍ ákveður að ljúka keppn­is­tíma­bil­inu 2019-2020 í tveimur efstu deildum karla og kvenna, mun stjórnin funda áfram og ræða hvort og þá hvernig lið verði flutt milli deilda. Ótíma­bært er að fara nánar út í það á þess­ari stundu,“ segir í til­kynn­ingu KKÍ, sem er þannig í sömu stöðu og móts­hald­ar­arar í öðrum íþrótta­greinum.

Hvað ef ekki verður hægt að klára deild­ina í vor? Verður efsta liðið þá krýnt lands­meist­ari? Hvað með lið sem eiga enn mögu­leika á að bjarga sér frá falli niður um deild? Verða þau felld?

Flækju­stigið í þessu öllu er hátt og ein­skorð­ast að sjálf­sögðu ekki við Ísland, eða bara hand­bolta og körfu­bolta. Í hinum stóra heimi eru skipu­leggj­endur allra íþrótta­móta að glíma við þessar sömu spurn­ingar og vita eflaust innst inni að engin ákvörðun er lík­leg til þess að falla vel í kramið hjá öllum. Lítið virð­ist um nið­ur­negldar reglur um hvaða ákvarð­anir skuli taka, þegar heims­far­aldur smit­sjúk­dóms stöðvar leik. Það er spilað eftir eyr­anu.

Enda for­dæma­lausir tímar. Í Napolí á Ítalíu sungu stuðn­ing­menn í sótt­kví á heim­ili sínu saman í gær­kvöldi, knatt­spyrnu­liði borg­ar­innar til dýrðar.

Fer titiltímabil Liverpool í vaskinn?

Flestar helstu íþrótta­deildir bæði vest­an­hafs og í Evrópu eru komnar í tíma­bundnar eða ótíma­bundnar pásur. Sem dæmi verður enska knatt­spyrnan í fríi þar til 3. apríl hið minnsta og ef til vill alveg þangað til í sept­em­ber, sam­kvæmt frétt breska blaðs­ins Independent frá því í gær. Hvað ger­ist? Verður hægt að krýna Liverpool enska meist­ara? Vafi leikur á því.

Ef svo fer að enska deild­ar­keppnin verði blásin af án nið­ur­stöðu, eins og sumir telja eðli­leg­ast, mun það eflaust fara illa með sál­ar­líf stuðn­ings­manna liðs­ins, líka þeirra fjöl­mörgu sem eru hér á Íslandi.

Einar Matthías Krist­jáns­son, pistla­höf­undur á vef íslenskra Liverpool-stuðn­ings­manna, segir bölvun­ina sem hvílt hafi á Liverpool und­an­farin 30 ár ekk­ert venju­lega, en þó toppi ekk­ert þetta tíma­bil.

Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur vakið athygli fyrir skynsöm, vel ígrunduð og yfirveguð viðbrögð þegar hann hefur verið spurður út í kórónuveiruna undanfarnar vikur.
Jurgen Klopp, knatt­spyrnu­stjóri Liverpool, hefur vakið athygli fyrir skyn­söm, vel ígrunduð og yfir­veguð við­brögð þegar hann hefur verið spurður út í kór­ónu­veiruna und­an­farnar vikur.

„Ef allt er eðli­legt m.v. gang tíma­bils­ins er Liverpool 1-2 vikum frá því að tryggja sér tit­il­inn í fyrsta skipti eftir 30 mjög löng ár og 74 ár af sam­felldum enskum fót­bolta. Það hefur ekki komið heims­far­aldur sem breiðst hefur svona hratt og víða út í yfir heila öld. Tíma­setn­ing COVID-19 gæti ekki verið neitt meira dæmi­gerð fyrir okkur sem höfum fylgst með Liverpool und­an­farin 30 ár,“ rit­aði Einar í vik­unni, aug­ljós­lega áhyggju­fullur.

Jürgen Klopp, knatt­spyrnu­stjóri Liverpool, hefur vakið aðdáun margra fyrir að bægja frá sér spurn­ingum blaða­manna um kór­ónu­veiruna und­an­farnar vikur og segja fólki að í stóra sam­hengi hlut­anna skipti fót­bolti litlu máli. Fólk eigi að hlusta á sér­fræð­inga.

Hann ítrek­aði þessi skila­boð til stuðn­ings­manna Liverpool í færslu á föstu­dag og upp­skar hrós fyrir frá Doktor Tedros, fram­kvæmda­stjóra Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar WHO.

Spennandi fundur hjá UEFA á þriðjudag

Þó íþróttir séu ekki það mik­il­væg­asta á þess­ari stundu, eru ákvarð­an­irnar sem þarf að taka samt sem áður mýmargar og flóknar. Neyð­ar­fundur verður hjá Knatt­spyrnu­sam­bandi Evrópu (UEFA) á þriðju­dag og þar ætla aðild­ar­þjóð­irnar að ræða saman, í gegnum fjar­fund­ar­búnað, um hvernig megi leysa úr stöð­unni sem uppi er, í skugga kór­ónu­veirunnar.

Erlendir miðlar hafa eftir ónefndum heim­ild­ar­mönnum sínum af æðstu stöðum að búist sé við því að EM 2020 verði frestað til ýmist des­em­ber 2020 eða sum­ars­ins 2021 og öllum evr­ópu­keppnum félags­liða á þessu tíma­bili verði slaufað án nið­ur­stöðu.

Þá má slá því föstu að öllum lands­leikjum í mars og apríl, meðal ann­ars leik Íslands og Rúmeníu í umspil­inu fyrir EM karla í knatt­spyrnu, verði frestað um óákveð­inn tíma, í sam­ræmi við leið­bein­ingar Alþjóð­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA.

Ótrúlegt en satt, þá er ekki enn búið að gefa þetta út form­lega. Þar sem UEFA er móts­hald­ar­inn verður ekk­ert gefið út um frestun umspil­s­leikj­anna fyrr en eftir fund þriðju­dags­ins. Vall­ar­starfs­menn á Laug­ar­dals­velli vinna því enn hörðum höndum að því að grænka grasið fyrir lands­leik­inn gegn Rúmeníu.

Ekki virð­ist þó alveg allt íþrótta­lífið í upp­lausn. Eða hvað? Ólymp­íu­leik­arnir eiga að fara fram í Tókíó í sumar og sam­kvæmt yfir­lýs­ingum Shinzo Abe for­sæt­is­ráð­herra Japans er þar er allt á áætlun.

„Við munum sigr­ast á útbreiðslu sýk­ing­ar­innar og halda Ólymp­íu­leik­ana án vanda­mála,“ sagði Abe á blaða­manna­fundi í gær, bjart­sýnn á þessum óvissu­tímum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár