Matarvenjur landsmanna kannaðar

Tæp tíu áru eru frá því að síð­asta landskönnun var gerð á matar­æði og neyslu­venjum Íslend­inga. Embætti land­læknis stendur nú fyrir nýrri könnun en sam­kvæmt emb­ætt­inu er ástæða til þess að ætla að breyt­ingar hafi átt sér stað á matar­æði lands­manna.

Embætti land­læknis í sam­vinnu við Rann­sókna­stofu í nær­ing­ar­fræði við Háskóla Íslands eru um þessar mundir að hefja landskönnun á matar­æði og neyslu­venjum lands­manna. Slík könnun hefur ekki verið fram­kvæmd í tæpan ára­tug en sam­kvæmt land­lækni má ætla að matar­æði Íslend­inga hafi breyst frá þeim tíma. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar munu meðal ann­ars nýt­ast við neyt­enda­vernd, lýð­heilsu­starf og í stefnu­mótun stjórn­valda.

Tæpur áratugur frá síðustu könnun

[links]Heilsa hverrar þjóðar ræðst að miklu leyti af lifn­að­ar­háttum og er matar­æði þar einn af áhrifa­mestu þátt­unum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu á vef Land­læknis. Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að mjög mik­il­vægt sé að kanna matar­æði reglu­bundið en sam­bæri­leg könnun hefur ekki verið fram­kvæmd síðan árin 2010 til 2011.

Til­gangur könn­un­ar­innar er fylgj­ast með matar­æði þjóð­ar­innar, þróun þess og breyt­ingum en ástæða er til að ætla að breyt­ingar hafi átt sér stað á matar­æði Íslend­inga frá þeim tíma

Formaður Neytendasamtakanna segir slíka könnun löngu tímabæra

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, er einn þeirra sem kallað hefur eftir því að mat­ar­venjur Íslend­inga verði kann­aðar. Hann sagði í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 í mars síð­ast­liðnum að slík könnun væri löngu tíma­bær þar sem síð­asta könnun var gerð fyrir rúmum ára­tug.

Breki benti jafn­framt á að í nágranna­löndum Íslands fjölgi hratt í hópi ungs fólks sem leggi áherslu á ýmis konar græn­met­is­fæði. Í nýlegri könnun í Svíþjóð hafi komið fram að nú neyti um fjórð­ungur fólks þar í landi undir þrí­tugu græn­met­is­fæðis.

„Þetta er þróun sem ég hef heyrt að sé að byrja hér, við erum nokkrum árum á eftir Skand­in­avíu. Þetta er þróun sem fer undir rad­ar­inn hjá okkur af því að við gerum engar rann­sóknir til að kanna þessi mál,“ sagði Breki.

Hlutfall grænkera ekki verið kannað hér á landi

Hlutfall þeirra sem eru græn­metisætur eða vegan hefur hins vegar aldrei verið kannað af neinu viti hér á landi sam­kvæmt Benjamín Sig­ur­geirs­syni, for­manni Samtaka græn­kera á Íslandi.

Benjamín sagði í sam­tali við Kjarnann í mars síð­ast­liðnum að hlut­fallið gæti verið í kringum tvö til þrjú pró­sent eða tæp­lega tíu þús­und manns. Hann telji aftur á móti að hlut­fall þeirra sem ákveðið hafa að minnka dýra­af­urða­neyslu sé að ein­hverju leiti mun meiri. Hann bendir á mjög margir sleppi til dæmis mjólk­ur­vörum úr kúa­mjólk þó þeir séu ekki vegan.

Vís­bend­ingar eru um að Íslend­ingar hafi breytt neyslu­venjum sínum á síð­ustu miss­erum gagn­gert til að draga úr kolefn­is­fótspori sínu. Í árlegri umhverfiskönnun Gallups kemur fram að rúm­lega helm­ingur lands­manna seg­ist hafa breytt ­neyslu­venj­u­m sínum í dag­legum inn­kaupum gagn­gert til þess að minnka umhverf­is­á­hrif á síð­ustu tólf mán­uð­um. 

Niðurstöðurnar nýtast í stefnumótun stjórnvalda

Um tvö þús­und manns á aldr­inum 18 til 80 ára geta átt von á bréfi með beiðni um þátt­töku í landskönnun Land­læknis á næstu miss­erum. Skipu­leggj­endur landskönn­un­ar­innar hvetja alla, sem haft verður sam­band við, til þátt­töku og að stuðla þannig að því að lýð­heilsu­starf á sviði nær­ingar verði byggt á traustum og góðum upp­lýs­ingum um matar­æði og neyslu­venjur þjóð­ar­innar.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar munu nýt­ast við lýð­heilsu­starf, áhættu­mat vegna mat­væla­ör­yggis, við neyt­enda­vernd og í stefnu­mótun stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár