Útlit fyrir kosningar 28. október – Fundað með formönnum á morgun

Forseti Alþingis mun funda klukkan 12:30 með for­mönnum flokk­anna á morgun um fram­hald þing­starfa.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tekur á móti Bjarna Benediktssyni á Bessastöðum á mánudag.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, tekur á móti Bjarna Bene­dikts­syni á Bessa­stöðum á mánu­dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nú er lík­legra að kosið verði laug­ar­dag­inn 28. októ­ber, en áður hafði verið rætt um 4. nóv­em­ber, eða viku síðar. Hvort sem verður, þá er ljóst að stutt og snörp - og lík­lega hörð - kosn­inga­bar­átta er framundan.

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, hefur ákveðið að reglu­legir fundir for­manna þing­flokka og for­sætis­nefndar falli niður á morgun. Boðaður hefur verið fundur klukkan 12:30 þar sem Unnur Brá ætlar að funda með leið­togum flokk­anna um fram­hald þing­starfa.

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur óskað eftir fundi með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands, til að leggja fram til­lögu um þing­rof. Fundur þeirra er fyr­ir­hug­aður á Bessa­stöðum á morgun, en Guðni hefur verið í nánu sam­bandi við leið­toga flokk­anna alla helg­ina.

Fari svo að kosn­ingar verði 28. októ­ber þá er það næstum upp á dag ári síðar en síð­ustu þing­kosn­ingar, en þær fóru fram 29. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár