Bandaríkin hyggjast loka á framlög til hjálparstarfs í Palestínu

Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hefur ákveðið að draga úr nær öllum styrk­veit­ingum sínum til hjálp­a­starfs á Gazasvæðinu og Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu.

Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta og ráðgjafi Bandaríkjanna í Mið-Austurlandamálum .
Jared Kushner, tengda­sonur Banda­ríkja­for­seta og ráð­gjafi Banda­ríkj­anna í Mið-Aust­ur­landa­málum . Mynd: EPA

Banda­ríkja­stjórn hyggst hætta við fram­lög til hjálp­ar­starfs fyrir Palest­ínu­menn á Gaza og Vest­ur­bakk­anum til að þrýsta stjórn­völd þar í landi á sam­þykkja frið­ar­á­ætl­anir Banda­ríkja­manna. Þetta kom fram í frétt á vef Foreign Policy nú á dög­unum.

Samkvæmt frétt­inni var ákvörð­unin tekin af Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Jared Kushner, tengda­syni Banda­ríkja­for­seta og ráð­gjafa í Mið-Aust­ur­landa­málum lands­ins, á lok­uðum fundi í síð­ustu viku. Talsmenn Banda­ríkja­stjórnar hafa hins vegar sagt að engin opin­ber ákvörðun hafi verið tekin um þetta mál.

Umrædd fram­lög, sem nema um 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala, myndu ná til fjölda lít­illa hjálp­ar­sam­taka og eru nær eini styrk­ur­inn sem Banda­ríkin veita palest­ínskum borg­urum af mann­úð­ar­á­stæðum. Rík­is­stjórnin gefur líka UNRWA, sem er deild innan Sam­ein­uðu þjóð­anna sem hjálpar palest­ínskum flótta­mönnum, reglu­leg fram­lög, en þau hafa einnig orðið fyrir miklum nið­ur­skurði sem ekki er útlit fyrir að verði snúið við.

Heim­ild­ar­menn Foreign Policy segja að Pompeo hafi í fyrstu verið and­vígur til­lög­un­inni, en hafi svo látið til leið­ast þar sem Kushner héldi því fram að hún myndi styrkja samn­ings­stöðu þeirra þegar frið­ar­á­ætlun þess síð­ar­nefnda fyrir Mið-Aust­ur­lönd yrði til­kynnt á næstu miss­erum. .

Ákvörð­unin er tekin á sama tíma og hund­ruðum hjálp­ar­starfs­manna á Vest­ur­bakk­anum og Gazaströndinni er sagt upp auk þess sem aðrir starfs­menn alþjóð­legra stofn­anna á svæð­inu lækka í launum. Samkvæmt Foreign Policy hefur neyðin á Gaza heldur aldrei verið meiri en akkúrat núna, í miðri upp­sagn­ar­hr­inu hjálp­ar­stofn­an­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár