Clinton og Trump unnu stórsigra í kosningum í nótt

Allt bendir til þess að Hillary Clinton og Donald Trump hljóti útnefn­ingar sinna flokka eftir stór­sigra þeirra í for­vali demókrata- og rebúp­likana­flokk­anna í nótt. Trump sigr­aði í öllum fimm ríkjum og Clinton í fjórum.

Fátt getur nú komið í veg fyrir að for­seta­fram­bjóð­end­urnir Hillary Clinton og Donald Trump endi tvö í bar­áttu sinni um Hvíta húsið í næstu kosn­ingum. Trump sigr­aði örugg­lega í for­vals­kosn­inum rebúp­likana­flokks­ins í öllum þeim fimm ríkjum sem kosið var í í gær. Sigur Clinton var ekki alveg jafn sætur, en hún sigr­aði í fjórum ríkjum en keppi­nautur hennar, Bernie Sanders, tók Rhode Island. Eftir að úrslitin voru til­kynnt í nótt sagð­ist Sanders ekki ætla að draga sig í hlé fyrr en for­valið er á enda. Clinton þakk­aði Sanders fyrir drengi­legan leik og góða sam­keppni.

Trump mun að öllum lík­indum hljóta útnefn­ingu rebúp­likana­flokks­ins á flokks­þingi þeirra í júní. Að minnsta kosti til­kynnti hann kjós­endum sínum það þegar úrslitin voru ljós í nótt Ted Cruz, einn helsti keppi­nautur Trump, fékk ein­ungis einn kjör­mann eftir nótt­ina. Hann er því dott­inn úr kapp­hlaup­inu.

Clinton jók for­skotið sem hún hefur á Sanders enn á ný í nótt. Minna er þó á munum hjá þeim heldur en hjá þeim Trump og Cruz.

Kosið var í Conn­ecticut, Delaware, Mary­land, Penn­syl­van­íu og Rhode Is­land. Banda­ríkja­menn kjósa sér nýjan for­seta í nóv­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

clinton

Fréttir

53 pró­sent Íslend­inga myndu kjósa Hillary Clinton - 4-5 pró­sent Donald Trump

Tæplega 53 pró­sent Íslend­inga myndu kjósa Hillary Clinton sem for­seta Banda­ríkj­anna, ef þeir væru á kjör­skrá þar í landi. Á bil­inu 4-5 pró­sent lands­manna myndu kjósa Donald Trump. Þetta kemur fram í nýrri skoð­ana­könnum sem Maskína hefur fram­kvæmt. Þar kemur einnig fram að 38 pró­sent Íslend­inga myndu kjósa Bernie Sanders. Af þessu er ljóst að þeir sem sækj­ast eftir útnefn­ingu...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár