Fimm flokkar í einu herbergi reyna að finna fordæmalausa lausn

For­svars­mönnum fimm flokka verður safnað saman inn í her­bergi síðar í dag. Á þeim fundi þurfa þeir að sann­færa hvorn annan um að flókin, við­kvæm og for­dæma­laus rík­is­stjórn þeirra frá miðju til vinstri sé mögu­leg. Úr gæti orðið fyrsta rík­is­stjórn Íslandssö

Klukkan 13 í dag verða for­svars­menn þeirra fimm flokka sem eiga í óform­legum við­ræðum um að mynda nýja rík­is­stjórn settir saman inn í her­bergi til að kanna hvort þessi flókna sam­setn­ing á nýjum vald­höfum sé yfir höfuð mögu­leg. Til­gang­ur­inn er að sjá hvort leið­togar flokk­anna fimm geti náð saman um þau mál sem aug­ljós­lega verða átaka­punkt­arnir við myndun slíkrar rík­is­stjórnar. Það eru helst auð­linda­mál, skatta­mál og stjórn­ar­skrár­mál. Auk þess segja heim­ild­ar­menn Kjarnans að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, vilji ein­fald­lega fá til­finn­ingu fyrir því hvort þetta for­dæma­lausa sam­starf geti átt sér mál­efna­legan grunn og hvort að fólkið sem þurfi að taka þátt í því geti yfir höfuð sýnt að það muni ætla að starfa saman af fullum heil­indum og ábyrgð.

Katrín hefur þegar fundað með for­svars­mönnum Pírata, Sam­fylk­ingar og miðju­banda­lags Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar hverjum og sér og þing­flokkur Vinstri grænna telur að það sé á það reyn­andi að láta nú alla hitt­ast saman. Að loknum fund­inum, sem fram fer í fund­ar­her­bergi fjár­laga­nefndar Alþingis, mun Katrín fara til fundar við þing­flokk sinn og ræða við hann um upp­lifun sína og árangur af fund­inum. Við­mæl­endur Kjarnans búast ekki við því að Katrín muni til­kynna af eða á um áfram­hald við­ræðna sinna við flokk­anna fjóra að loknum þeim þing­flokks­fundi. Yfir­lýs­ing um hvort form­legar við­ræður verði hafnar muni lík­lega verða látin bíða fram á mánu­dag.

Fyrsta kvennaríkisstjórnin

Fyrir liggur að ansi margt þarf að ganga upp til að hægt verði að mynda þessa 34 þing­manna meiri­hluta­stjórn. Þótt veru­legir erf­ið­leikar séu sýni­legir við að mynda slíka stjórn sjá þeir sem koma að þessum við­ræðum líka marga kosti. Hún myndi til að mynda svara því kalli eftir fjöl­breyti­leika í rík­is­stjórn sem nið­ur­staða hinna sögu­legu kosn­inga í lok októ­ber ómaði. Þá blasir við að rík­is­stjórnin gæti orðið mikil kvenna­rík­is­stjórn. Ef frá eru taldir Stein­grímur J. Sig­fús­son og Óttarr Proppé eru allir reynslu­mestu þing­menn flokk­anna fimm konur, og flestar þeirra myndu gera kröfu um þunga­vigt­ar­ráðu­neyti í rík­is­stjórn nái flokk­arnir saman. Því gæti fyrsta rík­is­stjórn Íslands­sög­unnar þar sem konur eru í meiri­hluta – og í lyk­il­ráðu­neytum – orðið að veru­leika með myndun þess­arar stjórnar.

En erf­ið­leik­arnir sem þarf að yfir­stíga til að gera stjórn­ina að veru­leika eru þó ansi margir.

Innan her­búða Vinstri grænna eru til að mynda ýmsir fyr­ir­varar gagn­vart henni. Sá fyrsti, og aug­ljós­asti, gagn­vart því að mynda rík­is­stjórn með Pírötum. Í sam­tölum við Kjarnann hafa full­trúar allra flokka lýst yfir sams­konar áhyggjum, og sér­stak­lega gagn­vart óút­reikn­an­leika þeirra gagn­vart óvæntum aðstæðum. Það sé því Pírata að „selja“ hinum flokk­unum það að þeir muni ekki sprengja stjórn­ina við erf­iðar, og ófyr­ir­séðar, hindr­anir.

Þessi afstaða er til staðar innan Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar líka. Hnútuköst í fjöl­miðlum und­an­farna daga hafa ekki hjálpað þar til. Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, ásak­aði Birgittu Jóns­dóttur, þing­mann Pírata, um ósann­indi í fjöl­miðlum í byrjun viku vegna ummæla hennar um að Viðreisn og Björt fram­tíð hefðu þegar verið byrjuð að ræða saman um sam­starf fyrir kosn­ingar. Aðspurð í kvöld­fréttum Stöðvar 2 á þriðju­dag, sama dag og við­ræðum flokk­anna tveggja við Sjálf­stæð­is­flokk var slitið, um hvort ummæli Birgittu í hennar garð gætu spillt fyrir í mögu­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sagði Björt: „Ja...Það er ekk­ert voða­lega gott að ræða við fólk sem kallar mann lygara.“

Viðreisn hefur líka umtals­verðan fyr­ir­vara gagn­vart Pírötum og lyk­il­fólk innan flokks­ins er ekki sann­fært um hversu áreið­an­legir sam­starfs­menn Píratar yrðu. Yfir­lýs­ing Birgittu í stöðu­upp­færslu á þriðju­dag um að Viðreisn væri búin að koma sér í „ómögu­lega stöðu“, þar sem flokk­ur­inn vilji ekki vinna með neinum meiri­hluta, var ekki til að sefa þá tor­tryggni.

Reynt að bera klæði á vopnin og lýsa yfir samstarfsvilja

Píratar hafa reynt allt sem þeir geta til að slá á þessar áhyggjur und­an­farna daga og bent á að það væri ekki mikil mál­efna­legur ágrein­ingur milli þeirra flokka sem ættu að skipa hina fjöl­breyttu rík­is­stjórn fimm flokka undir verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Og Birgitta er sjálf mjög áfram um þá ráð­stöfun.

Sömu sögu má segja um for­svars­menn Við­reisnar. Klæði hafa verið borin á vopnin með opin­berum yfir­lýs­ingum um að sam­starfsvilji sé á milli flokk­anna tveggja og að vilji sé til að mynda fimm flokka stjórn­ina náist mál­efna­legt sam­komu­lag. Þar sem Björt fram­tíð og Viðreisn hafa að öllu leyti bundið sig saman í þeim stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sem átt hafa sér stað, og munu eiga sér stað, þá gildir það sama fyrir þann flokk. Vilji er til þess að finna leiðir að sam­starfi við Píratar.

Sam­fylk­ingin er sá flokkur sem veldur Vinstri grænum og Katrínu minnstu hug­ar­angri. Flokk­ur­inn er næst Vinstri grænum í áherslum og er auk þess svo lít­ill eftir afhroð sitt í kosn­ingum að hann er ekki lík­legur til að stofna til mik­ils ágrein­ings í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

Eftir stendur að þessir flokkar þurfa að sann­færa Katrínu Jak­obs­dóttur um að það sé ger­legt að ná mál­efna­lega saman í lyk­il­málum og að næg sam­staða verði tryggð í gegnum þykkt og þunnt til að rík­is­stjórn fimm flokka frá miðju til vinstri verði á vetur setj­andi. Það verður stórt verk­efni í ljósi þess að varn­að­ar­vítin virð­ast mörg og mjög sýni­leg.

Fjórflokkurinn í næstu ríkisstjórn?

Mikil tor­tryggni í garð heil­inda Vinstri grænna hjá full­trúum hinna flokk­anna, sér­stak­lega innan Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar, hefur ekki gert mikið til að smyrja við­ræð­urnar. Sú tor­tryggni, sem er ekki borin á torg en er mjög fyr­ir­ferða­mikil í einka­sam­tölum, snýst um grun­semdir þess efnis að Katrín og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi þegar hand­salað óform­legt sam­komu­lag um að mynda rík­is­stjórn flokka sinna. Aðrar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður séu ein­fald­lega til þess að fara í gegnum leik­þætti sem geri báðum auð­veld­ari fyrir við að selja þann gjörn­ing í bak­landi flokka sinna. Þessu neita liðs­menn Vinstri grænna alfarið en þeir þekkja þó vel til þess að kenn­ing­arnar séu í umræð­unni.

Nokkuð ljóst er að ef fimm flokka stjórnin gengur ekki saman að þá verði einu mögu­leik­arnir sem eru á borð­inu í stjórn­ar­myndun þeir sem inni­halda bæði Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þar sem þeim flokkum vantar einn þing­mann til að fá meiri­hluta þarf að minnsta kosti einn til svo að sú stjórn gangi upp. Sjálf­stæð­is­menn vilja eðli­lega fá Fram­sókn­ar­flokk­inn inn í þá jöfnu. Sá mögu­leiki er nær úti­lok­aður í huga lyk­il­manna hjá Vinstri grænum. Flokk­ur­inn getur ekki hugsað sér að verða þriðja hjólið undir vagni núver­andi rík­is­stjórnar, þeirrar sem kosið var út af og gekk í gegnum hvert spill­ing­ar­málið á fætur öðru á liðnu kjör­tíma­bili.

Í ljósi þess að Björt fram­tíð og Viðreisn hafa fest sig saman þá er ekki vilji til að taka það banda­lag um borð í slíka stjórn, enda yrði miðju- og hægri flokk­arnir þá með meiri­hluta þing­manna og gætu keyrt yfir Vinstri græn í völdum málum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur úti­lokað sam­starf við Pírata og frá þeirri stefnu verður ekki vikið innan flokks­ins.

Þá stendur eftir að fá Sam­fylk­ing­una um borð, annað hvort með eða án Fram­sókn­ar­flokks­ins. Báðir mögu­leik­arnir tryggja þing­meiri­hluta og vera Sam­fylk­ing­ar­innar gæti varið Vinstri græn frá gagn­rýni vegna stjórn­ar­sam­starfs við Sjálf­stæð­is­menn. Það myndi samt sem áður þýða að í rík­is­stjórn myndi sitja ¾ hluti, eða jafn­vel allur, fjór­flokk­ur­inn í kjöl­far kosn­inga þar sem hann fékk ein­ungis 62 pró­sent atkvæða en flokkar með kerf­is­breyt­ingar á stefnu­skránni fengu 38 pró­sent. Það gætu reynst mikil svipu­göng fyrir rík­is­stjórn gömlu flokk­anna ef þeir tækju sig saman og mynd­uðu varð­stöðu­rík­is­stjórn eftir kosn­ingar þar sem kallað var hærra eftir meiri fjöl­breytni en nokkru sinni fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið undanfarið ár