Krabbameinssjúk börn flutt frá Kænugarði

Páll Stef­ánsson ljós­myndari fylgdist með þegar öll börn af krabbameins­deild sjúkra­húss í Kænugarði voru flutt með hraði yfir til Póllands, á leið til Varsjár á sjúkrahús þar. Yfir 600 þúsund börn á flótta undan stríðinu eru komin yfir til Póllands.

„Hingað til Póllands eru komin yfir 600 þúsund börn á flótta undan stríðinu í Úkraínu, á aðeins tólf dögum,“ sagði starfs­kona Rauða kross Póllands við ljós­myndara í þorpinu Hrebenne, á landa­mærum ríkjanna tveggja. Rétt áður höfðum við horft á þrjár rútur og fjóra sjúkra­bíla þjóta framhjá, en bíla­lestin var á leið frá Kænugarði til Varsjár, yfir þúsund kílómetra leið, með 170 krabbameins­sjúk börn. Öll börnin á krabbameins­deildinni. Foreldrarnir voru ekki með í för. 

Í gær höfðu tvær milljónir Úkraínu­manna flúið landið sitt. Um sextíu prósent þeirra hafa flúið hingað til Póllands en seinni­partinn í gær höfðu 1.204.403 skráð sig inn í landið á þessum örfáum dögum. Það er tekið á móti þeim með opnum örmum, maður finnur hve allir Pólverjar eru samtaka að hjálpa til, veita húsaskjól eða skutl á næsta gistiheimili eða í næstu rútu. 

Taka lítið með sérFæst flótta­fólkið hefur mik­inn far­angur, þau sem eru á ferð­inni með börn hafa einkum nauð­synjar fyrir þau í fartesk­inu.

Á landa­mærunum Póllands megin eru komnar upp tjald­búðir þar sem alþjóðleg hjálpar­samtök bjóða flótta­fólkinu upp á heitan mat, hlýrri föt, og leikföng og bleyjur fyrir börnin. Flótta­fólkið kemur ekki með mikið með sér, flestir með í mesta lagi tvær töskur, af smærri gerðinni. Hvað myndi maður sjálfur taka með, ef maður þyrfti að taka sig upp og flýja?

„Ég tók bara með eitt par af skóm, þá sem ég stend í“
Irína
frá Úkraínu

„Það fyrsta sem ég setti í bakpokann minn var mynda­albúm, ég vil eiga myndir af foreldrum mínum, manni og æsku minni, ef allt fer á versta veg,“ sagði Irína við mig. Hún var búin að vera fimm daga á leiðinni frá austur­hluta Úkraínu. „En bróður­parturinn í mínum bakpoka eru föt og nauð­synjar fyrir barnið.“

Pól­verjar sam­taka Mikil sam­staða ríkir hjá Pól­verjum í garð nágranna sinna í Úkraínu og fólk er boðið og búið að aðstoða, enda svíður því órétt­lætið í striðs­að­gerðum Rússa sem bitna, eins og alltaf er í stríði, verst á börnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár