Unga fólkið að færa sig frá kannabis yfir í neyslu á morfínskyldum lyfjum

Óljóst er hvaða áhrif hert eft­ir­lit með ávís­unum á ávana- og fíkni­lyf mun hafa. Mögu­leiki er á að fram­boð muni minnka, sem gæti leitt af sér hærra götu­verð og ólög­legan inn­flutn­ing.

Þórarinn Tyrf­ings­son og Eyþór Jónsson, læknir á Sjúkra­hús­inu Vogi, segja að hug­ar­fars­breyt­ing hafi orðið gagn­vart neyslu á lyf­seð­il­skyldum lyfjum hér á landi. Á opnum fundi um mor­fíns­skyld lyf í vik­unni sagði Eyþór að að fikt sé ekki með sama hætti og áður. Þeir sem voru að neyta „lækna­dóps“ hér áður fyrr voru bara „pillu­sjúk­lingar“ en í dag sé þessi neysla meira aðlað­andi í augum ungs fólks. Þórarinn sagði að unga fólkið sé að færa sig frá kanna­bis­neyslu yfir í neyslu á mor­fín­skyldum lyfjum. Aukin mis- og ofnotkun á þessum lyfjum sést hins vegar ekki á almennum sölu­tölum.

[links]Kjarninn birti í síð­ustu viku frétta­skýr­ingu um hert eft­ir­lit með ávís­unum ávana- og fíkni­lyfja. Reglu­gerð um ávana- og fíkni­lyf mun taka gildi þann 1. júlí næst­kom­andi. Áður en reglu­gerðin tekur gildi mun þó starfs­hópur sem skip­aður var af heil­brigð­is­ráð­herra skila nið­ur­stöðum um hvernig megi sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkja­lyfja. En hvað mun hert eft­ir­lit hafa í för með sér? 

Rann­sóknir á fíkn og hverjir neyta fíkni­efna benda til þess að þeir eru oft með und­ir­liggj­andi vanda­mál og sjúk­dóma. Í rann­sókn frá árinu 2010 á sprautu­fíklum á Íslandi kemur fram að 75 pró­sent af þeim sem svör­uðu (200) greindu frá örorku og tak­mark­aðri reynslu af vinnu­mark­aði. Meiri­hlut­inn hafði aðeins lokið grunn­skóla­prófi og 60 pró­sent verið hand­teknir eða ákærðir fyrir vímu­efna­brot. Lang­flestir þjást af and­legum veik­indum svo sem þung­lyndi eða kvíða.

Þrennskonar hópar

Eyþór sagði á fund­inum að það séu þrenns­konar hópar af fólki sem háð er ópíóðum, eða mor­fín­skyldum lyfjum. Fyrst eru þeir sem hafa fengið lyfin ávísað vegna mik­illa verkja, annað hvort vegna upp­skurðar eða af slys­förum. Vegna langra veik­inda og mik­illa verkja verður ein­stak­ling­ur­inn háður, án þess að vilja það. Þessir sjúk­lingar hafa ekki und­ir­liggj­andi geð­sjúk­dóma eða eru í miklum félags­legum vanda.

[adspot]Eyþór sagði að auð­velt sé að aðstoða þessa sjúk­linga og að oft nái þeir fullum bata. Síðan eru þeir sem eru í mik­illi neyslu líkt og rann­sóknin hér að ofan lýsir. Þessir sjúk­lingar eiga það til að koma oft á Vog og eru þar lengi. Þriðji hóp­ur­inn er svo sá hópur sem flestir hafa mestar áhyggjur af. Það er ungt fólk sem er að byrja í þess­ari neyslu. Það hefur ekki langa sögu um fíkni­efna­neyslu eða and­leg veik­indi. Þetta unga fólk er að byrja að fikta við þetta og hefur ekki byggt upp þol eða þekk­ingu á lyfj­unum líkt og hinir tveir hóp­arnir. Því eru þeir í hvað mestri hættu á ofskömmtun.

Munurinn á ávana- og fíkni­lyfjum og öðrum eit­ur­lyfjum liggur í því að neyslan á ávana- og fíkni­lyfjum er hættu­legri því meiri hætta er á ofskömmtun. Því er unga fólkið sem ekki hefur langa sögu um neyslu í meiri hættu á því að taka of stóran skammt og deyja.

Við höfum áður séð svipað ástand sem nú er uppi á ten­ingnum. Í kringum alda­mótin fór neysla á ópíóðum að aukast en þá var contalgin mest not­að­asta lyfið. Þá jókst inn­ritun á sjúk­lingum yngri en 19 ára á sjúkra­hús­inu Vogi sem og grein­ing á fíkn í ópíóða. Eftir að Embætti land­læknis hóf notkun á lyfja­á­vís­ana­gátt minnk­aði neyslan og sömu­leiðis inn­ritun á sjúk­lingum með fíkn í ópíóða á sjúkra­húsið Vog. Síðan oxycondone, eða „oxy“ kom á markað á Íslandi árið 2012 hefur mis- og ofnotkun á því lyfi auk­ist. Samhliða því hefur inn­rit­unum á sjúk­lingum með fíkn í ópíóða auk­ist á Vogi.

Frá árinu 1990 hafa 1092 ein­stak­lingar greinst með fíkn í ópíóða á Vogi. Af þeim eru 189 látnir eða 17 pró­sent. Árið 2016 lét­ust sex ein­stak­lingar á aldr­inum 20-24 ára á Íslandi, fimm af þeim höfðu verið vistaðir á Vogi um skeið. Fimmtán ein­stak­lingar á aldr­inum 30-34 ára lét­ust árið 2016 og höfði tíu af þeim verið vistaðir á Vogi á ein­hverjum tíma­punkti.

Lyfja­stofnun heldur utan um tölur um sölur frá heild­sala til apó­teka. Heild­ar­fjöldi dag­skammta af oxycondone hefur auk­ist tölu­vert frá því það kom á markað 2012. Heild­ar­fjöldi dag­skammta af fent­anyl hefur einnig auk­ist frá árinu 2014

Í fréttum hefur mikið verið rætt um mótefnið naloxone, en það getur bjargað ein­stak­lingi frá dauðs­falli ef hann hefur tekið inn of stóran skammt af ópíóðum. Naloxone er ekki fáan­legt á Íslandi án lyf­seð­ils og enn sem komið er er lyfið aðeins í sprautu­formi. Í Skand­in­avíu er lyfið fáan­legt sem nefúði og ekki er þörf á lyf­seðli.

Margir hafa talað fyrir því að helstu við­bragðs­að­ilar fái lyfið í formi nefúða, en nauð­syn­legt er að koma ein­stak­lingi undir lækn­is­hendur sem fyrst ef grunur leikur á ofskömmtun.

Áhrif herts eftirlits

Þegar lyfja­á­vís­ana­gagna­grunn­ur­inn var tek­inn í notkun árið 2006 minnk­aði inn­lögnum á Vogi. Nú hefur inn­lögnum hins vegar farið aftur fjölg­andi.

Margeir Sveins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að erfitt sé að meta að svo stöddu hvaða áhrif hert eft­ir­lit mun koma til með að hafa. 

„Það má líkja þessu við renn­andi vatn sem finnur sér ávallt auð­veld­ustu leið­ina og/eða ein­hverja leið. Í dag vitum við að þessi lyf eru bæði end­ur­seld frá fólki sem þau hafa verið ávísuð á sem og með inn­flutn­ingi. Hins vegar má alltaf búast við því að ef aukið eft­ir­lit fer fram á einum stað þá þurfum við að vera við­búnir því að önnur leið verði meira notuð svo sem inn­flutn­ingur á þessum lyfjum.“ segir Margeir.

Helgi Gunn­laugs­son pró­fessor í afbrota­fræði við Háskóla Íslands segir að ópíóða vand­inn virð­ist ná til fjöl­breytt­ari hóps en þeirra sem sækja í „hefð­bundn­ari“ eit­ur­lyf. Í Banda­ríkj­unum á vand­inn rætur sínar að rekja til þess að aðgengi að þessum sterku ávana­bind­andi lyfjum er óhindrað. Lyfja­fyr­ir­tæki og heil­brigð­is­stofn­anir hafa tals­vert svig­rúm til að ávísa ávana- og fíkni­lyfjum í miklu mæli. Margir sjúk­lingar verða því háðir án þess að ætla sér það og enda því á köldum klaka hins ólög­lega mark­aðar. Þegar búið er að leysa út þau lyf sem ávísað var fyrir, stendur því sjúk­ling­ur­inn frammi fyrir því að þurfa að kaupa sér efni á ólög­legum mark­aði. Þá er engin trygg­ing fyrir því hvaða efni rata í hend­urnar á honum enda er ekk­ert eft­ir­lit eða neyt­enda­vernd með þeim efnum sem seld eru á svörtum mark­aði.

Helgi að það skipti miklu máli hvernig lyfjum af þessu tagi er ávísað og deilt út í sam­fé­lag­inu. Hert eft­ir­lit og reglu­verk er af hinu góða og hér á landi þurfum við að efla lyfja­á­vís­ana­gagna­grunn­inn og eft­ir­lit með ávís­unum, án þess þó að þrengja að þeim sem raun­veru­lega þurfa lyfin.

Framboð og eftirspurn

Helgi er í hópi nor­rænna fræði­manna sem rann­sakar dópsölu á net­inu. Hann segir að hér á landi séu starf­ræktir fjöldi lok­aðra hópa á net­inu sem ekki er erfitt að kom­ast inn í. Þar er hægt að nálg­ast ávana- og fíkni­lyf og er því aðgengi til­tölu­lega auð­velt fyrir þá sem hafa áhuga á. Hert eft­ir­lit leiðir af sér minna fram­boð, minna fram­boð gæti því hugs­an­lega leitt af sér hærra verð. Hærra verð gæti gert líf fíkla jafn­vel enn erf­ið­ara en það er í dag. Þess vegna skiptir miklu mál, segir Helgi, að fá lyfja­málin öll upp á yfir­borðið og setja stíft reglu­verk utan um alla með­ferð og neyslu ávana- og fíkni­efna í stað þess að fela þau í skúma­skotum í sam­fé­lags­ins.

„Málin eru samt alls ekki ein­föld. Samt hlýtur að vera far­sælla að glíma við vand­ann í dags­ljósi á mann­úð­legan hátt en að ýta honum í myrka und­ir­heim­ana þar sem ofbeldi í anda Al Capone á bann­ár­unum í Banda­ríkj­unum er ætíð á næsta leiti eins og tíðar fréttir af hand­rukkun á Íslandi bera iðu­lega með sér.“ segir Helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár