Hertar reglur um ávísanir ávana- og fíknilyfja

Ný reglu­gerð um lyfja­á­vís­anir og afhend­ingu lyfja tekur gildi 1. júlí næst kom­andi. Lyfja­stofnun mun sam­hliða því herða reglur um afgreiðslu ávana- og fíkni­lyfja.

Í byrjun júlí mun ný reglu­gerð um lyfja­á­vís­anir og afhend­ingu lyfja taka gildi. Reglu­gerðin átti að taka gildi þann 3. apríl síð­ast­lið­inn en gild­is­taka hennar frest­ast um þrjá mán­uði vegna tækni­legra atriða sem unnið er að. Samhliða reglu­gerð­inni mun Lyfja­stofnun herða reglur um afgreiðslu ákveð­inna lyfja.

Mikið hefur verið rætt um ópíóða í fjöl­miðlum og í Banda­ríkj­unum er ítrekað talað um far­aldur. Það er ekki af ástæðu­lausu að talað sé um far­aldur en árið 2016 lét­ust 42 þús­und manns í Banda­ríkj­unum af völdum ofskömmt­unar. Talið er að um 2,1 milljón Banda­ríkja­manna séu háðir ávana- og fíkni­lyfjum, eða svoköll­uðum ópíóðum.

Orðið ópíóðar kemur frá orð­inu ópíum en ópíum hefur verið notað og mis­notað frá örófi alda. Ópíóðar ná yfir fjöldi lyfja sem eiga það sam­eig­in­legt að verkja­stilla og vera ávana­bind­andi. Ópíóðar eru meðal ann­ars heróín, fent­anyl, oxycontin og mor­fín. Virkni þess­ara lyfja byggir upp þol hjá neyt­and­anum og því þarf hann alltaf stærri og stærri skammt til að finna fyrir virkni. Þegar ein­stak­lingur hættir svo að taka lyfið í ein­hvern tíma finnur hann fyrir miklum frá­hvörfum. Á þeim tíma sem hann er ekki á lyf­inu lækkar þolið og ef hann byrjar að taka lyfið aftur getur verið erfitt fyrir hann að átta sig á hversu stór skammtur er nógu stór. Þetta á sér­stak­lega við um þá ein­stak­linga sem ekki hafa fengið lyfin ávísað af lækni. Þá er lík­legt að hann ætli að taka jafn stóran skammt og áður en hann hætti að taka lyfið. Með þessu eykst hættan á ofskömmtun og dauðs­falli af völdum ofskömmt­unar.

Ísland er þó ekki með tærnar þar sem Banda­ríkja­menn eru með hæl­ana hvað varðar mis- og ofnotkun á þessum lyfjum. Þó ástandið sé ekki jafn slæmt og í Banda­ríkj­unum þá er ástandið sem hér hefur skap­ast nokkuð alvar­legt. Í jan­úar á þessu ári lét­ust fimm ein­stak­lingar eftir að hafa tekið of stóran skammt. Yfir pásk­ana leit­uðu tíu ein­stak­lingar á bráða­mót­tök­una vegna ein­kenna ofskömmt­unar.

Starfshópur skipaður til að sporna við mis- og ofnotkun

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra skip­aði í byrjun febr­úar síð­ast­lið­ins starfs­hóp til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkja­lyfja og er hópnum ætlað að skila nið­ur­stöðum 1. maí næst­kom­andi. Ný reglu­gerð frá heil­brigð­is­ráð­herra mun svo taka gildi 1. júlí og Lyfja­stofnun mun svo sam­hliða henni herða reglur um afgreiðslu á ávana- og fíkni­lyfjum. Lyfja­stofnun frestaði gild­is­töku regln­anna því með reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra koma inn áherslur Lyfja­stofn­unnar. Þegar reglu­gerðin tekur gildi verður aðeins hægt að afgreiða 30 daga skammt í senn, en 30 daga skammtur er ákveð­inn út frá notk­un­ar­fyr­ir­mælum í lyfja­á­vísun. Einnig geta læknar ekki ávísað ávana- og fíkni­lyfjum á sjúk­ling ef fyrir er gild ávísun upp á sömu lyf, á sama sjúk­ling í gátt­inni. Lyfja­fræð­ingur ber ábyrgð á afgreiðslu og afhend­ingu lyfja en honum er heim­ilt að víkja frá 30 daga regl­unni ef sér­stak­lega stendur á. Þá er heim­ilt af afgreiða allt að 100 daga skammt í senn.

Lyfja­á­vís­un­ar­gátt Embætti Land­læknis var tekin í gagnið árið 2006 með það að mark­miði að hafa eft­ir­lit með ávís­unum, en ávís­unum hefur samt sem áður farið fjölg­andi síðan þá. Ávísunum upp á ópíóða hefur þó farið fækk­andi en í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til Embætti land­læknis kemur fram að níu pró­sent færri dags­skömmtum af ópíóðum hafi verið ávísað á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018 en árið 2016. Læknar hafa aðgang að lyfja­á­vís­ana­gagna­grunn­inum en sjúk­lingar geta einnig nálg­ast upp­lýs­ingar um lyf­seðla­sögu sína í gegnum heilsu­vera.is.

Í pistli frá Embætti land­læknis kemur fram að mik­il­vægt sé að læknar noti lyfja­gagna­grunn­inn og að upp­lýs­ingar séu upp­færðar í raun­tíma til þess að sjá hvaða lyfjum aðrir læknar eru að ávísa á sjúk­ling­inn. Embætti land­læknis hvetur lækna til að fara eftir leið­bein­ingum stofn­un­ar­innar um góða starfs­hætti lækna við ávísun lyfja.

Eftirlit verður hert

Með nýrri reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra mun eft­ir­lit með ávís­unum verða strang­ara. Í gagna­grunn­inum mun vera hægt að fylgj­ast með hvort læknir sem ekki hefur leyfi til að skrifa upp á ákveðin lyf geri það. Áður var það í eft­ir­lit í höndum starfs­manna apó­teka en verður það eftir 1. júlí raf­rænt. Eftir 1. sept­em­ber næst­kom­andi verður ekki lengur leyfi­legt að ávísa ávana- og fíkni­lyfjum með papp­írslyf­seðlum. Reglu­gerðin mun einnig hafa það í för með sér að sjúk­lingur sem hefur fengið ávísað örvandi lyfjum eins og amfetamíni og metýlfenídati þarf skír­teini frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands til að fá lyfin afgreidd.

Í gagna­grunn­inum eru aðeins þær raf­rænu ávís­anir sem hafa ekki verið full­af­greiddar. Einnig er seðlum eytt ef sjúk­lingur sækir ekki lyf í apó­tek áður en gild­is­tíma þeirra lýkur. Embætti land­læknis rekur auk þess lyfja­gagna­grunn sem inni­heldur allar raf­rænar lyfja­á­vís­anir og allar afgreiðslur úr apó­tekum. Læknar eru eina heil­brigð­is­stéttin sem hefur aðgang að þeim grunni fyrir sjúk­ling sinn, þrjú ár aftur í tím­ann. Breyt­ingar á gagna­grunn­inum eru vinnslu og í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til Embætti land­læknis segir að í bígerð séu lausnir til að bæta yfir­sýn yfir lyfja­með­ferð ein­stak­linga. Unnið sé að mið­lægu lyfja­korti sem kemur til með að halda utan um virka lyfja­gjöf sjúk­linga og verði það aðgengi­legt öllum þeim sem koma að með­ferð sjúk­lings­ins.

Starfsmenn apóteka í Bandaríkjunum sinna eftirliti

[links]Í Banda­ríkj­unum er haft eft­ir­lit með lyfja­á­vís­unum í gegnum Prescription Drug Mon­itor­ing Program (PDMP). Gagna­grunn­ur­inn er virkur innan hvers ríkis fyrir sig og bygg­ist á því að starfs­fólk apó­teka skráir inn upp­lýs­ingar um hvern lyf­seðil fyrir sig, hver leysti hann út, hvaða lyf hafi verið leyst út og hversu mikið magn. PDMP er þó ekki í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna og er apó­tekum ekki skylt að stunda þetta eft­ir­lit.

Félags­fræð­ing­ur­inn Liz Chiarello hefur um ára­bil unnið að rann­sókn á virkni og áhrifum PDMP í nokkrum afmörk­uðum ríkjum í Banda­ríkj­unum. Chiarello kynnti nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar í Háskóla Íslands fyrr í mán­uð­inum. Rann­sóknin gengur út á að skýra hvernig félags­legt vanda­mál eins og ópíóða­far­ald­ur­inn hefur áhrif á stefnu­mótun stjórn­valda og öfugt. PDMP snýst um að starfs­fólk apó­teka sé virkt í eft­ir­liti með lyf­seð­ils­skyldum lyfjum sem algengt er að fólk mis­noti.

Rannsókn Chiarello sýnir að eft­ir­litið veiti fyrst og fremst hald­bær sönn­un­ar­gögn um hverjir fá mikið magn lyf­seð­il­skyldra lyfja í hend­urnar. Eft­ir­litið er því bæði tæki fyrir heil­brigð­is­kerfið og rétt­ar­vörslu­kerfið. Sönn­un­ar­gögnin nýt­ast fyrst og fremst til þess að finna þá aðila sem end­ur­selja lyf­seð­il­skyld lyf. Flestir þeir ein­stak­lingar sem stigið hafa fram nýlega og sagt frá mis­notkun sinni á lyfj­unum segja að þeir hafi sjálfir ekki fengið lyfin upp­á­skrifuð. Chiarello segir að til þess að kerfið virki sem raun­veru­legt tæki til eft­ir­lits verði að festa það í lög.

Í dag getur starfs­fólks apó­teka á Íslandi ekki leitað í gagna­grunn­inum að fyrri afgreiðslum í öðrum apó­tekum eða öðrum apó­tek­a­keðjum. Í svari vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort þetta verði hægt í fram­tíð­inni segir að unnið sé að breyt­ingum á gagna­grunn­inum sem muni gera þetta kleift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár