Seldu Tortólafélagi hluti sína í Bakkavör með láni

Bakka­var­ar­bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir eru meðal rík­ustu manna Bret­lands eftir upp­kaup sín á Bakkavör Group. Bræð­urnir eign­uð­ust Bakkavör aftur meðal ann­ars með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sem gerði þeim kleift að fá 20 pró­senta afslátt á íslenskum krónum.

Hagkvæm viðskipti í gegnum Seðlabankann
Hagkvæm við­skipti í gegnum Seðla­bank­ann Lýður og Ágúst Guð­munds­synir áttu hag­kvæm við­skipti með íslenskar krónur í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands þegar Tortóla­fé­lag þeirra keypti skulda­bréf á Íslandi fyrir um 5 millj­arða króna.

Íslenskt eign­ar­halds­fé­lag bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sonar hefur ekki byrjað að greiða félagi þeirra í skatta­skjól­inu Tortólu, Alloa Finance Ltd. vexti af láni upp á nærri 5 millj­arða króna og eru gjald­fallnar afborg­anir af lán­inu nú ríf­lega 1.200 millj­ónir króna. Eign­ar­halds­fé­lagið íslenska, sem heitir Korkur Invest ehf., var notað til að kaupa hluta­bréf í breska mat­væla­fyr­ir­tæk­inu Bakkavör Group, fyr­ir­tæk­inu sem Lýður og Ágúst eru kenndir við, af kröfu­höfum þess á Íslandi árið 2012. 

Með því að nota Kork Invest ehf. til að kaupa hluta­bréfin gátu þeir Lýður og Ágúst fengið 20 pró­senta afslátt af íslensku krón­unum sem not­aðar voru til að eign­ast hluta­bréfin af því félagið keypti þessar krónur í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Fjár­fest­ing­ar­leiðin var úrræði sem komið var á eftir efna­hags­hrunið árið 2008, þegar gjald­eyr­is­höft voru ríkj­andi, til að laða erlenda fjár­fest­ingu og fjár­festa til Íslands, þrátt fyrir óvissu í efna­hags­málum í kjöl­far banka­hruns­ins. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár