Þegar Stefan Bandera dó

Vladimír Pútin, for­seti Rúss­lands, og stuðn­ings­menn hans hafa oft nefnt Stefan Bandera til merkis um að Úkra­ínu­menn séu upp til hópa nas­istar hinir mestu. Illugi Jök­uls­son tók að skoða Bandera og byrj­aði að sjálf­sögðu á dul­ar­fullu and­láti hans.

Dánargríma Stefans Bandera
Dán­ar­gríma Stefans Bandera Úkra­ínskir þjóð­ern­is­sinnar hafa sumir nafn hans enn í hávegum. En myndir frá ofsóknum gegn Gyðingum í Lvov í júlí 1941 vilja ekki mást úr minni ann­arra. Mynd: Samsett / Heimildin

Það var laust upp úr hádegi á sól­ríkum og hlýjum haust­degi í München árið 1959 að kona nokkur lá úti á suð­ursvölum íbúðar á fjórðu hæð húss­ins númer 7 við Kreitt­ma­yrstraße. Þetta var í hverf­inu Neu­hausen þar sem aðal­lega bjuggu þokka­lega stæðir iðn­aðar- og verka­menn en einnig skrif­stofu­fólk og slæð­ingur af mennta­mönnum.

Nú heyrði konan að bíl var ekið inn í portið sem sval­irnar sneru út að. Hún þótt­ist þekkja vél­ar­hljóðið og síðan skell í bíl­hurð og þegar hún leit út af svöl­unum sá hún að bíll eig­in­manns hennar var kom­inn inn í portið. Hún sá ofan á höf­uðið á mann­inum sínum hverfa inn í húsið. Líklega var hann kom­inn heim í mat, þótt það hafi ekki staðið til þennan dag­inn, og konan gekk því inn í íbúð­ina og fram í eld­hús og hugð­ist hafa eitt­hvað til.

Niðri á annarri hæð húss­ins við Kreitt­ma­yrstraße voru hjónin Melach og Chaja Gamse nýbúin að snæða hádeg­is­verð. Þá heyrðu þau skyndi­lega mikla skruðn­inga og ein­hvers konar hljóð úr manns­barka utan af stiga­gang­inum. Þegar Melach opn­aði dyrnar blasti hræði­leg sjón við. Nágranni Gamse-hjón­anna ofan af fjórðu hæð, maður um fimm­tugt sem þau þekktu sem Stefan Popel, hafði greini­lega verið á leið upp til sín en hnotið í stig­anum og lá nú með höf­uðið upp við vegg á stiga­pall­inum milli íbúðar Gamse-hjón­anna og Winklmann-hjón­anna sem bjuggu á móti.

Hví var hann með byssu?

Magda­lena Winklmann var líka mætt á vett­vang og þau Melach Gamse tóku að stumra yfir föllnum nágranna sínum. Það blæddi lít­il­lega úr nefi hans og munni og hann reyndi ákaft að ná and­anum. Gamse fór inn til að hringja í sjúkra­bíl en Magda­lena Winklmann hróp­aði ákaf­lega upp á fjórðu hæð og kona Popels, Iaroslava, kom brátt þjót­andi alveg í öngum sínum. Maður hennar reyndi að segja eitt­hvað en kom ekki upp orði fyrir and­þrengslum.

Eina hljóðið sem þau skildu var: „Úí, úí ...“ — langt og sárs­auka­fullt.

Meðan Gamse-hjónin og Magda­lena Winklmann voru að stumra yfir Popel, sem sífellt dró af, fundu þau af honum daufa möndlu­lykt og svo urðu þau stein­hissa að sjá að hann var með skamm­byssu í byssuslíðri undir jakka sínum. Þau höfðu ekki vitað annað en hinn vina­legi nágranni þeirra væri frið­semd­ar­maður.

Nú kom sjúkra­bíll til að flytja Stefan Popel á spít­ala en á leið­inni þangað lést hann. 

Frelsishetja Úkraínumanna?

Stefan Bandera skömmu fyrir dauða sinn í MünchenEnginn vafi er á því að Bandera studdi Hitler í upp­hafi seinni heims­styrj­aldar og menn hans stund­uðu grimmi­legar ofsóknir gegn Gyðingum, Pól­verjum og fleirum. En Bandera sat sjálfur í fanga­búðum Þjóð­verja stóran hluta stríðs­ins og tveir bræður hans dóu í Auschwitz.

Gamse- og Winklmann-hjón­unum kom á óvart hve skyndi­legur dauði nágranna þeirra vakti mikla athygli. Brátt var allt mor­andi í lög­reglu­mönnum í hús­inu við Kreitt­ma­ystraße og yfir­heyrðu alla íbúa húss­ins í þaula. Dul­ar­fullir ábúð­ar­fullir menn í svörtum frökkum voru líka á sveimi, og dag­inn eftir birt­ust blaða­menn með ótal spurn­ingar um líf og dauða Stefans Popels þarna í hús­inu.

Það voru fréttir í blöð­unum sem að lokum upp­lýstu nágranna Popel-hjón­anna um það hver Stefan var í raun og veru. Þó voru blöðin ein­kenni­lega ósam­mála um leið. Hann hét greini­lega Bandera, sá látni, ekki Popel, og sum blöðin köll­uðu hann „frels­is­hetju Úkra­ínu­manna“ en önnur ótíndan nas­ista og jafn­vel ábyrgan fyrir fjöldamorðum í seinni heims­styrj­öld­inni, ekki síst á Gyðingum.

Dánarorsök verður ljós

Gamse- og Winklmann-hjón­unum hnykkti illa við slíkar fréttir. Þau voru Gyðingar og höfðu aldrei fundið fyrir neinum fjand­skap af hálfu nágranna síns, hvorki út af því né nokkru öðru. Þau reyndu að spyrja Iaros­lövu, konu Popels, nei Bandera, en hún var ekki mönnum sinn­andi eftir svo snögg­legt frá­fall eig­in­manns­ins og ans­aði fáu.

Ekki minnk­aði leynd­ar­dóm­ur­inn um Bandera þegar hann hafði verið krufinn og í ljós kom að stór skammtur af blá­sýru hafði orðið honum að bana.

Hafði hann verið myrtur? Nóg reynd­ist hann eiga af óvinum. Í blöð­unum birt­ust nú fréttir af sam­tökum útlægra Úkra­ínu­manna sem Stefan Bandera hafði ber­sýni­lega stýrt frá München og und­ir­menn hans skófu ekki utan af því í við­tölum við blöðin. Sov­ét­stjórnin hafði margoft gert til­raun til að ráða hinn ötula and­stæð­ing sinn Stefan Bandera af dögum, sögðu þeir.

Hafði það nú loks­ins tek­ist?

Kreitt­ma­yrstraße 71) Planið í port­inu þar sem Bandera lagði bíl sínum og hugð­ist síðan fara upp í íbúð sína með vín­ber, plómur og tómata. 2) Hér lá Iaroslava í sól­baði. 3) Hér bjuggu Gamse-hjónin.

Var eitur í eplinu?

Sú skýr­ing virt­ist vissu­lega liggja beint við en þó var erf­ið­leikum bundið að koma henni heim og saman. Því hvernig hafði til­ræð­is­mönnum tek­ist að koma blá­sýrunni í lík­ama Bandera?

Rannsókn lög­regl­unnar í München leiddi í ljós að fyrir hádegi þennan fimmtu­dag 15. októ­ber hafði Bandera verið á skrif­stofum þeirra úkra­ínsku sam­taka sem hann stýrði og þar hafði ekk­ert sér­stakt borið til tíð­inda. Á leið­inni heim í hádeg­inu hafði hann komið við í sölu­vagni við Zeppelin-straße og keypt vín­ber, plómur og tómata, auk þess sem hann gæddi sér þar á safa­ríku epli, en lög­reglan afskrif­aði þá hug­mynd að eitur hefði verið í eplinu. Blásýra er svo skjót­virkt eitur að hann hefði engan veg­inn kom­ist þaðan alla leið heim til Kreitt­ma­yrstraße áður en hún færi að verka. Raunar virt­ist aug­ljóst að eitrið hefði ekki komið inn fyrir varir hans fyrr en örfáum and­ar­tökum áður en Game- og Winklmann-fjöl­skyld­urnar heyrðu skruðn­inga og hálf­kæft óp utan af stiga­gang­inum á annarri hæð.

Engin merki um mannaferðir

Engin merki voru um aðrar manna­ferðir í hús­inu, né nokkuð sem benti til að Bandera hefði verið þving­aður til að taka eitrið í ein­hverju formi.

Því varð nið­ur­staða rétt­ar­rann­sóknar lög­regl­unnar sú að Stefan Popel, 50 ára Úkra­ínu­maður, réttu nafni Stefan Bandera, hlyti að hafa framið sjálfs­morð með því að gleypa blá­sýr­upillu á stiga­gang­inum.

Iaroslava Bandera Það er til marks um hve skiptar skoð­anir eru um hvað­eina sem lýtur að Bandera að heim­ildir greinir mjög á um heim­il­is­líf Bandera-hjón­anna og þriggja barna þeirra. Ýmist er hann sagður hafa verið ást­ríkur faðir og eig­in­maður eða ofbeld­is­hrotti og kúg­ari. Eftir lát hans hélt Iaroslava áfram að starfa fyrir sam­tök útlægra Úkra­ínu­manna en flutt­ist til Kanada þar sem hún lést 1977.

Bæði fjöl­skylda Bandera og hjálp­ar­menn hans í sam­tökum Úkra­ínu­manna töldu þessa skýr­ingu frá­leita. Bandera hefði aldrei látið sér til hugar koma að svipta sig lífi. Ekki kæmi annað til mála en útsend­arar Sov­ét­ríkj­anna hefðu myrt hann, hvernig svo sem þeir hefðu farið að því á þeim stutta tíma sem leið frá því Iaroslava kona hans missti sjónar á honum hverfa inn í húsið og þar til hann var kom­inn upp á stiga­gang­inn á annarri hæð.

Nasisti í ríkisstjórn Vestur-Þýskalands

Sov­ét­menn höfn­uðu allri aðild að mál­inu. Þeir létu hafa eftir sér að lík­lega hefði Theodor Oberländer, flótta­manna­ráð­herra í rík­is­stjórn Vestur-Þýska­lands, látið drepa Bandera. Oberländer var ákafur nas­isti og fyrr­ver­andi emb­ætt­is­maður Þriðja ríkis Hitlers sem Konrad Adenauer kansl­ari hélt lengi hlífi­skildi yfir af því það hent­aði honum póli­tískt. Haustið 1959 lá Oberländer undir ásök­unum um að hafa tekið þátt í ægi­legum fjöldamorðum á Gyðingum í borg­inni Lvov sum­arið 1941 og nú héldu Sov­ét­menn því fram að hann hefði látið fyr­ir­koma Bandera til að hann kæmi ekki upp um sinn þátt í mál­inu. Samtök Bandera vissu allt um þau fjöldamorð því margir úkra­ínskir þjóð­ern­is­of­stopa­menn sem tóku þátt í Gyð­ingamorð­unum voru félags­menn hans.

Barist af heift og alvöru

En þótt engum bland­að­ist hugur um að Oberländer hefði verið ákafur nas­isti og Gyð­inga­hat­ari varð aðild hans að fjöldamorð­unum ekki sönnuð og þaðan af síður að hann hefði á nokkurn hátt komið nálægt and­láti Stefans Bandera.

Núnú — þarna virð­ist vera komin ein neð­an­máls­grein­anna úr sögu kalda stríðs­ins en þær eru vissu­lega fleiri en margir ætla. Í hálfan annan ára­tug eftir lok seinni heims­styrj­aldar héldu and­stæð­ingar Sov­ét­stjórn­ar­innar til dæmis úti skæru­hern­aði bæði í Eystra­salts­ríkjum og Úkraínu og þar létu margir lífið þótt allt sé það meira og minna gleymt nú hér í vestr­inu. Samtök Bandera komu þar einmitt við sögu og börð­ust af djúpri alvöru og heift.

En síð­ustu árin hefur áhugi á Bandera auk­ist vegna þess að hann hefur upp á síðkastið fengið nýtt hlut­verk í mann­kyns­sög­unni. Eftir að Úkraína varð sjálf­stæð 1991 varð hann lengi vel tákn um frelsis- og sjálf­stæð­is­þrá Úkra­ínu­manna and­spænis kúg­un­ar­stjórn rúss­neskra komm­ún­ista.

Stuðningsmaður Hitlers

Einmitt það hlut­verk Bandera olli því svo að hann hefur síð­ustu árin leikið mjög á tungu þeirra sem vilja veg Úkra­ínu­manna hinn versta. Þar á meðal hefur Vladimír Pútín oft nefnt Stefan Bandera og aðdá­endur hans til sög­unnar þegar hann vill sanna að Úkra­ínu­menn séu upp til hópa nas­istar og verstu þrjótar og nauð­syn­legt að skipta um stjórn í land­inu.

Og það er lauk­rétt hjá Pútín og Pútínistum að Stefan Bandera var stuðn­ings­maður rík­is­stjórnar Hitlers í Þýska­landi, Gyð­inga­hat­ari og átti sinn þátt — bæði beint og ekki síður óbeint — í skelfi­legum fjöldamorðum í síð­ari heims­styrj­öld, aðal­lega á Gyðingum og Pól­verjum. Og það er líka rétt að sum stjórn­völd og jafn­vel hluti almenn­ings í Úkraínu litu lengi vel fram­hjá glæpum Bandera er þau ein­blíndu á atorku hans og eld­móð í bar­áttu fyrir lausn Úkra­ínu­manna undan kúgun Kreml­ar­valds­ins.

Beitt fyrir stríðsvagn Pútíns

En hvað gerði og sagði Bandera í raun og veru? Og hvert er orð­spor hans í Úkraínu nú á dögum eftir að Pútín hefur beitt honum nauð­ugum og stein­dauðum fyrir stríðsvagn sinn? Og úr því Bandera var stuðn­ings­maður Hitlers, af hverju eyddi hann lung­anu úr seinni heims­styrj­öld í þýskum fanga­búðum?

Frá þessu öllu saman segir í flækju­sög­unni í næstu viku, og þá verður líka svarað þeirri grund­vall­ar­spurn­ingu:

Hvað gerð­ist eig­in­lega í stiga­gang­inum á Kreitt­ma­yrstraße 7 í hádeg­inu þennan umrædda fimmtu­dag haustið 1959?

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár