Samfylkingin eini þingflokkurinn á vanskilalista Ríkisendurskoðunar

Aðeins um 18 stjórn­mála­flokkar og félög tengd þeim, hafa skilað inn árs­reikn­ingi til Rík­is­end­ur­skoð­anda. Sam­fylk­ingin er eini flokk­ur­inn á Alþingi sem hefur ekki skilað.

Samfylkingin vann öflugan sigur í síðustu kosningum, en hefur ekki skilað inn ársreikningi.
Sam­fylk­ingin vann öfl­ugan sigur í síð­ustu kosn­ingum, en hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi. Mynd: Golli

Sam­fylk­ingin er eini þing­flokk­ur­inn á Alþingi sem hefur ekki skilað árs­reikn­ingi til Rík­is­end­ur­skoð­unar. Flokkinn er því að finna á skussa­lista Rík­is­end­ur­skoð­unar, van­skila­list­anum sem er birtur á heima­síðu stofn­un­ar­innar. Allir aðrir þing­flokkar hafa skilað inn árs­reikn­ingi og eru þeir allir í skoðun, hafa þeir því ekki verið birtir, en skila­frestur rennur út 31. októ­ber ár hvert.

Stjórn­mála­flokkar fá fjár­veit­ingu frá ríki eða sveit­ar­fé­lögum og er því skylt að skila inn árs­reikn­ingum til Rík­is­end­ur­skoð­anda svo stofn­unin geti sinnt upp­lýs­inga­skyldu sinni gagn­vart almenn­ingi. 

Skilin eru almennt dræm þegar öll stjórn­mála­sam­tök lands­ins og aðild­ar­fé­lög eru skoðuð. Aðeins 18 stjórn­mála­sam­tök af 96 hafa skilað inn árs­reikn­ingum og eru van­skil því 81,2 pró­sent. 

Á meðal stærri flokka sem hafa ekki skilað inn árs­reikn­ingi eru Sós­í­alista­flokkur Íslands, Píratar og VG. Tveir síð­ast­nefndu féllu af þingi í síð­ustu kosn­ingum, en Sós­í­alistar héldu sér yfir lág­marks­fylgi til þess að njóta fjár­stuðn­ing skatt­greið­enda, eða 3,5 pró­sent.

…
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár