Fyrrverandi bankastjóri sýknaður af milljarða kröfu

Það var mikið í húfi hjá fyrr­ver­andi banka­stjóra Danske Bank þegar dómur í máli gegn honum var kveð­inn upp sl. þriðju­dag, krafan hljóð­aði upp á jafn­gildi 47 millj­arða íslenskra króna. Stefn­endur sitja uppi með kostn­að­inn sem sam­svarar 200 millj­ónum króna.

Thomas Borgen var bankastjóri Danske Bank frá 2013 til 2018.
Thomas Borgen var banka­stjóri Danske Bank frá 2013 til 2018. Mynd: EPA

Saga Danske Bank teygir sig til árs­ins 1871. Söðla­smið­ur­inn og veð­lán­ar­inn Gottlieb Hartvig Abra­hams­son Gedalia var helsti hvata­mað­ur­inn að stofnun bank­ans sem fékk nafnið Den Danske Landm­ands­bank, Hypothek- & Vex­el­bank i Kjøben­havn. Í dag­legu tali kall­aður Landm­ands­banken. Síðar fékk bank­inn nafnið Den Danske Bank og árið 2000 núver­andi nafn, Danske Bank. Í rekstr­inum hafa skipst á skin og skúrir, erf­ið­asta tíma­bilið voru árin eftir fyrri heims­styrj­öld, þá varð rík­is­stjórnin að hlaupa undir bagga til að forða bank­anum frá þroti. Á liðnum árum og ára­tugum hafa orðið miklar svipt­ingar í banka­heim­inum, upp­kaup og sam­ein­ingar.

Danske Bank er í dag annar tveggja stærstu banka Dan­merkur, hinn er Nordea. Árið 2006 keypti Danske Bank finnska bank­ann Sampo Bank, með í kaup­unum fylgdi lítið útibú í Eist­landi. Þetta litla útibú átti eftir að koma mjög við sögu í rekstri bank­ans.

Thomas Borgen

Árið 2013 var norð­mað­ur­inn Thomas Borgen ráð­inn banka­stjóri Danske Bank. Thomas, sem er 58 ára, kom til starfa hjá Danske Bank árið 1997 og þekkti því vel til í bank­anum þegar hann tók við banka­stjóra­starf­inu. Þegar hann sett­ist í banka­stjóra­stól­inn voru erf­ið­leikar í rekstri Danske Bank og stjórn bank­ans áleit Thomas Borgen rétta mann­inn í starfið.

[adspot]

Fram að ráðn­ingu hans hafði eng­inn útlend­ingur gegnt starfi banka­stjóra. Lengi hafði það orð farið af Danske Bank að innan veggja höf­uð­stöðv­anna við Kóngsins Nýjatorg í Kaup­manna­höfn ríkti sér­kenni­legt and­rúms­loft, þar sem ríkti ákveðin mis­skipt­ing yfir­manna og und­ir­manna. Sem dæmi um þetta hafði lengi tíðkast að æðstu stjórn­endur bank­ans borð­uðu hádeg­is­verð í svo­nefndri arin­stofu á efstu hæð bank­ans en starfs­fólkið ,,á gólf­inu“ aftur á móti í mat­stofu á ann­ari hæð. Þennan sið afnam hinn nýi banka­stjóri og hann bann­aði enn­fremur að yfir­menn­irnir, sem nú voru komnir nær jörðu með hádeg­is­mat­inn (orða­lag dag­blaðs­ins Børsen) gætu tekið frá sér­stök borð í ,,almenn­ingnum“. Ekki fer sögum af því hvernig þeim sem ekki fengu lengur að borða í arin­stof­unni lík­aði þessi breyt­ing en annað starfs­fólk kunni vel að meta hana. Undir stjórn Eivind Kolding, for­vera Thomas Borgen var stefnan sú að gera Danske Bank að alþjóð­legri pen­inga­stofnun þar sem meira væri hugsað um þá stóru en hina smáu, eins og Ole Andersen stjórn­ar­for­maður komst að orði „með ráðn­ingu Thomas Borgen viljum við að bank­inn þjóni öllum, ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum“. Við­skipta­vinum bank­ans hafði fækkað mikið á und­an­förnum árum en nú fjölg­aði þeim á nýjan leik og rekst­ur­inn gekk vel. Hluta­bréfin hækk­uðu nán­ast dag frá degi.

En, það var ljón í veg­inum. Ljón sem óx og óx. Þetta ljón var áður­nefnt útibú í Eist­landi.

Ekki hlustað á viðvaranir

Meðan Thomas Borgen og Ole Andersen voru önnum kafnir við að koma bank­anum á réttan kúrs árin 2013 og 2014 fengu þeir ábend­ingar um að ekki væri allt með felldu varð­andi starf­semi úti­bús­ins í Eist­landi. Þar væri stundað pen­inga­þvætti fyrir rúss­neska glæpa­menn (krimin­elle russ­ere). Í þeim hópi voru svo­nefndir ólíg­arkar, sígar­ettu­smygl­arar, rúss­neskir auð­menn og fólk nátengt Vladimir Putin for­seta Rúss­lands. Samtals um tíu þús­und manns. Þessi starf­semi hefði við­geng­ist frá árinu 2007 án þess að nokkuð væri aðhafst. Loks árið 2015 var þessi þvotta­vél (orða­lag danskra fjöl­miðla) tekin úr sam­bandi.

Áður en Thomas Borgen sett­ist í banka­stjóra­stól­inn var hann yfir­maður þeirrar deildar bank­ans sem ann­að­ist alþjóð­leg við­skipti. Þar á meðal við­skiptin í úti­bú­inu í Eist­landi.

Umfjöllun í Berlingske

Vorið 2017 birt­ist í dag­blað­inu Berl­ingske grein þar sem fjallað var um mál­efni Danske Bank í Eist­landi, og næstu daga fylgdu fleiri greinar í kjöl­farið. Umfjöll­unin vakti mikla athygli og dögum saman var rúss­neska þvotta­véla­málið, eins og það var kallað stærsta frétta­málið í dönskum fjöl­miðlum. Fyrst var talið að farið hefðu í gegnum „þvotta­vél­arnar“ jafn­gildi 52 millj­arða danskra króna (1032 millj­arðar íslenskir) en síðar kom í ljós að upp­hæðin var marg­falt hærri eða um það bil 1500 millj­arðar danskra króna (30 þús­und millj­arðar íslenskir).

Eftir að þvotta­véla­málið komst í hámæli fékk Danske Bank lög­fræði­fyr­ir­tæki til að rann­saka málið í heild sinni. Þeirri rann­sókn lauk árið 2018. Í skýrsl­unni var ekki bent á neinn sem bæri ábyrgð á því sem gerð­ist. Thomas Borgen lét af störfum sem banka­stjóri Danske Bank haustið 2018. Hann sætti, eftir að málið kom upp, rann­sókn þeirrar deildar danska rík­is­lög­manns­ins sem fer með efna­hags­brot og alþjóð­lega glæpi á því sviði. Þeirri rann­sókn lauk árið 2021, án ákæru.

Þess má geta að Danske Bank sætir lög­reglu­rann­sókn vegna þvotta­véla­máls­ins, ekki er vitað hvenær þeirri rann­sókn lýkur.

Hluthafar stefndu

Haustið 2018 hóf belgíska ráð­gjafar- og lög­fræði­stofan Deminor und­ir­bún­ing máls­höfð­unar á hendur Thomas Borgen fyrir hönd hlut­hafa í bank­anum. Að baki máls­höfð­un­inni stóðu 74 fyr­ir­tæki, þar á meðal bankar.

Ástæða máls­höfð­un­ar­innar var tap sem hlut­hafar töldu sig hafa orðið fyrir vegna lækk­andi gengis hluta­bréfa í bank­anum eftir að þvotta­véla­málið var dregið fram í dags­ljósið. Upphæðin sem hlut­haf­arnir fóru fram á að Thomas Borgen skyldi greiða þeim nam 2,4 millj­örðum danskra króna, um það bil 47 millj­örðum íslenskum. Stefn­endur töldu Thomas Borgen hafa van­rækt eft­ir­lits­skyldur sínar og hefði ekki brugð­ist við þegar ábend­ingar vegna úti­bús­ins í Eist­landi bár­ust bank­anum.

Sýknaður í Bæjarrétti

Rétt­ar­höld í mál­inu gegn Thomas Borgen stóðu yfir í átta daga, í sept­em­ber og októ­ber síð­ast­liðnum. Máls­skjölin fylltu 6588 blað­síður, auk rúm­lega 2 þús­und fylgi­skjala.

Dómurinn féll sl. þriðju­dag, 8. nóv­em­ber. Þar var Thomas Borgen sýkn­aður af ákæru stefn­enda sem jafn­framt var gert að greiða honum 10 millj­ónir danskra króna í máls­kostnað. Málið var rekið fyrir Bæj­ar­rétt­inum í Lyngby. Það dæmdu þrír dóm­arar sem voru ein­róma í nið­ur­stöðu sinni.

Í nið­ur­stöðu dóms­ins segir að í fyrsta lagi sé það ein­ungis bank­inn, ekki ein­stakir hlut­hafar sem geti höfðað mál vegna óábyrgs rekstrar. Í öðru lagi höfn­uðu dóm­arar því að Thomas Borgen hafi borið skylda til að verða sér úti um upp­lýs­ingar sem álíta mætti að hefði þau áhrif á hluta­bréfa­verð bank­ans að slíkt bæri að til­kynna form­lega. Í þriðja lagi hafi stefn­endur ekki sýnt fram á að skortur á upp­lýs­ingum hafi leitt til lækk­unar hluta­bréfa og í fjórða lagi ekki sýnt fram á hversu miklu hlut­hafar hafi tapað.

Bæj­ar­réttur er lægsta dóm­stig af þremur í Danmörku, Lands­réttur er næsta stig fyrir ofan og loks Hæsti­réttur.

Í til­kynn­ingu frá Deminor, sem rak málið fyrir hönd hlut­hafa, kom fram að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvort mál­inu yrði áfrýjað.

Áfrýj­un­ar­frestur er 14 dagar frá dóms­upp­kvaðn­ingu.

Þess má að lokum geta að Danske Bank hefur lagt til hliðar 14 millj­arða danskra króna (278 millj­arða íslenska) vegna hugs­an­legra sekta og bóta í þvotta­véla­mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár