Átta handteknir vegna hryðjuverks í London

Búið er að hand­taka átta ein­stak­linga í tengslum við hryðju­verkin í London í gær. Lög­reglan telur þó að árás­armað­ur­inn hafi verið einn að verki. Maðurinn var fæddur og upp­al­inn í Bret­landi, sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann á þingi í morgun.

Árás­armað­ur­inn sem varð þremur að bana í London í gær hafði verið til rann­sóknar hjá bresku rann­sókn­ar­lög­regl­unni MI5. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, greindi þing­mönnum frá þessu á þing­inu í morgun.

Lögregla telur enn að mað­ur­inn hafi verið einn að verki og hafi verið inn­blás­inn af öðrum hryðju­verka­árásum í Evrópu nýlega. „Maðurinn var fæddur í Bret­landi og fyrir ein­hverjum árum síðan var hann rann­sak­aður af MI5 í tengslum við áhyggjur af ofbeldi og ofstæki,“ sagði May meðal ann­ars. Hún sagði málið gam­alt og að hann hafi ekki lengur verið inni í mynd­inni hjá yfir­völdum.

Átta ein­stak­lingar hafa verið hand­teknir í tengslum við rann­sókn lög­regl­unnar á sex stöðum víða um Bretland, meðal ann­ars í Birming­ham og í London. Guardian greinir frá því að bíll­inn, sem not­aður var til að keyra á gang­andi veg­far­endur á Westminster-brúnni, hafi verið leigður frá Enter­prise í Birming­ham.

Þingmenn úr öllum flokkum hafa lofað Theresu May á þing­fund­inum sem nú er í gangi. Hún þykir hafa talað fyrir alla þjóð­ina með yfir­lýs­ingum sínum um málið. Meðal þess sem hún hefur sagt er að besta leiðin til að svara hryðju­verk­unum sé að fólk haldi áfram með lífið óbreytt. Þannig sé hryðju­verka­mönnum neitað um sigur. „Það er svar sem segir þeim körlum og konum sem breiða út þetta hatur og illsku: þið munið ekki sigra okkur.“ Bæði May og þing­menn allra flokka hafa einnig lagt áherslu á að ekki megi láta hryðju­verk skipa fólki í fylk­ingar eftir trú eða öðru. Það þurfi að standa vörð um lýð­ræðið og gildi Bret­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár