Hér verða leikirnir sýndir á risaskjám

Útsend­ingar verða frá Argent­ínu­leiknum bæði í Hljóm­skála­garð­inum og á Ing­ólfs­torgi. Við Vest­ur­bæj­ar­laug og í Gilinu á Akureyri. Að auki lík­leg­ast á hverjum ein­asta skjá sem fyr­ir­finnst á land­inu, sem á að vera nokkuð þurrt á morgun með und­an­tekn­ingum þó.

Útsend­ingar verða frá heims­meist­ara­mót­inu bæði í Hljóm­skála­garð­inum og á Ing­ólfs­torgi. Leikir íslenska lands­liðs­ins verða sýndir í Hljóm­skála­garð­inum, sem eðli máls­ins sam­kvæmt rúmar fleiri en Ing­ólfs­torg, en þar verða allir leikir móts­ins sýndir.

Skemmti­leg stemn­ing mynd­að­ist á Arn­ar­hóli fyrir tveimur árum þegar lands­lið­s­kapp­arnir kepptu á Evr­ópu­mót­inu en til þess að geta tekið á móti þessum fjölda fólks var talið heppi­legra að vera í Hljóm­skála­garð­inum með til­liti til stærðar og umhverfis, aðkomu og aðgeng­is­mála.

Lands­bank­inn, ásamt öðrum styrkt­ar­að­ilum knatt­spyrnu­lands­liða Íslands, Reykja­vík­ur­borg og KSÍ standa að HM torg­unum á Ing­ólfs­torgi og Hljóm­skála­garð­inum. Þá mun RÚV verða með útsend­ingar frá Hljóm­skála­garð­inum og gert er ráð fyrir leik­tækjum fyrir börn og veit­inga­að­stöðu meðan á útsend­ingum stendur.

Hvetja til huggulegrar stundar við Vesturbæjarlaugina

Að auki verður hægt að horfa á leiki Íslands, þar á meðal leik­inn gegn Argent­ínu á morgun, við Vest­ur­bæj­ar­laug í boði Brauð&co, Haga­vagns­ins, Kaffi­húss Vest­ur­bæjar og Mela­búð­ar­innar. Í til­kynn­ingu segir að verið sé að standa fyrir skemmti­legu „Vest­ur­bæjar-áhorfi“ á leiki íslenska liðs­ins.

Gísli Marteinn Bald­urs­son einn eig­enda kaffi­húss­ins seg­ist hvetja alla Vest­ur­bæ­inga til að koma þangað og horfa saman á leik­ina og hvetja lands­liðið til dáða. Hann hvetur einnig fólk til að koma með teppi og jafn­vel tjald­stóla með sér til að hafa það huggu­legt. „Við sjáum þetta sem kjörið tæki­færi fyrir hverfið og fjöl­skyldur til að gera eitt­hvað skemmti­legt saman og skapa góðan hverf­isanda. Nú er bara að hugsa hlý­lega til veð­urguð­anna og fá smá hlé á rign­ing­unni og þá getum við átt frá­bæra og eft­ir­minni­lega upp­lifun í hverf­inu okkar.“

Allir alls staðar að horfa saman á HM

Sýnt verður frá leikj­um ís­lenska liðs­ins á risa­skjá neðst í Gil­inu á Ak­ur­eyri. Settur verður upp 15 fer­metra risa­skjár neðst í gil­inu, rétt eins og þegar Ak­ur­eyr­ar­vaka er. Þar geta Ak­ur­eyr­ing­ar safn­ast sam­an og horft á leiki Íslands. Í norð­lenska blað­inu Viku­dagur var greint frá því að á leik­dögum yrði mikið um dýrðir bæði fyrir og eftir leiki liðs­ins, sem og í hálf­leik.

Hótel Laugar hyggst sýna alla leiki frá mót­inu á risa­skjá, en sýn­ingin er inn­an­dyra.

Í raun má gera ráð fyrir að hring­inn í kringum landið muni Íslend­ingar hóp­ast við skjái hvar sem þeir eru fyrir eða verða settir upp! Inni í stofu, á öld­ur­húsum, úti á fjölda­sam­komum eða í tauga­á­falli í fóst­ur­stell­ing­unni í ein­rúmi uppi í rúmi.

Getur brugðið til beggja vona með veðrið

Veð­ur­spáin fyrir morg­un­dag­inn, þegar sýnt verður utandyra á fyrr­greindum stöðum frá leik lands­liðs okkar við Argent­ínu rétt upp úr hádegi, er mis­jöfn.

Eins og sjá má er víða spáð rign­ingu á morgun, mis­mik­illi þó. Spáin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ekk­ert stór­kost­leg, en Veð­ur­stofan spáir nokkuð mik­illi úrkomu. Þess skal þó getið að frændur okkar Norðmenn spá minni úrkomu á leik­tíma á vef­síð­unni yr.no. Spáð er ein­hverri rign­ingu fyrir norðan á Akureyri svo þeir sem ætla út að horfa þar, rétt eins og fólkið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ætti að vera í pollagall­anum líkt og þeir bræður Jón og Friðrik Dór Jóns­synir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár