Alda Hrönn með stöðu sakbornings

Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, aðal­lög­fræð­ingur hjá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur stöðu sak­born­ings í rann­sókn setts hér­aðs­sak­sókn­ara. Þetta kemur fram á vef RÚV, og er stað­fest af Lúðvíki Berg­vins­syni, settum sak­sókn­ara.

Alda Hrönn er sökuð um að hafa mis­beitt lög­reglu­valdi við rann­sókn á LÖKE-mál­inu, en tveir sak­born­ingar í mál­inu kærðu hana fyrir rangar sak­ar­giftir og brot í starfi í apríl. Við rann­sókn LÖKE-máls­ins var Alda Hrönn yfir­lög­fræð­ingur hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum.

Alda Hrönn sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í gær, þar sem kom fram að hún vísi alfarið á bug öllum ásök­unum sem séu til­efni rann­sókn­ar­innar á sér. „Sú aðkoma sem ég hafði að umræddu máli féll undir starfs­skyldur mínar í mínu fyrra starfi.“ Rann­sóknir á brotum lög­reglu­manna í starfi hafi verið á for­ræði Rík­is­sak­sókn­ara sam­kvæmt lögum, en emb­ætti Rík­is­sak­sókn­ara hafi óskað eftir aðstoð lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum við með­ferð máls­ins. „Ég kom ein­göngu að umræddu máli sem lög­lærður full­trúi. Rannsókn máls­ins leiddi til þess að emb­ætti Rík­is­sak­sókn­ara höfð­aði saka­mál á hendur lög­reglu­mann­inum sem lauk með því að Hæsti­réttur Íslands sak­felldi hann fyrir brot í starfi,“ sagði Alda Hrönn. Hún sagði lög­bundna þagn­ar­skyldu koma í veg fyrir að hún geti tjáð sig frekar, en að hún hafi rækt starfs­skyldur sínar af fyllstu fag­mennsku og í sam­ræmi við með­ferð slíkra mála. „Ég hef skiln­ing á að fólk leiti réttar síns finn­ist því á sér brotið. Á hinn bóg­inn þykir mér hart að sæta rann­sókn fyrir það eitt að sinna starfi mínu í sam­ræmi við starfs­skyldur mínar.“

Bent er á það á vef RÚV, að lög­reglu­mað­ur­inn sem var dæmdur var aðeins dæmdur fyrir að deila per­sónu­upp­lýs­ingum til félaga síns á Facebook, í máli sem tengd­ist ekki upp­lýs­ingum úr LÖKE-kerfi lög­regl­unnar. Veiga­mesti ákæru­lið­ur­inn í LÖKE-mál­inu var felldur niður þar sem gögnin sem ákæran byggð­ist á reynd­ust ekki rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár