Kapphlaup kauphallanna um útboð Saudi Aramco

Saudi Aramco, rík­is­ol­íu­fyr­ir­tæki Sádi-arabíu, hyggst hefja fyrsta hluta­bréfa­út­boð sitt í byrjun 2018. Virði fyr­ir­tæk­is­ins er talið vera á bil­inu ein til tvær billjónir Banda­ríkja­dala og mun útboðið verða stærsta fyrsta útboð verð­bréfa í sög­unni.

Saudi Aramco var stofnað árið 1933 þegar stjórn­völd í hinu nýlega sam­ein­uðu kon­ung­dæmi Sádi-arabíu veittu banda­ríska olíu­fyr­ir­tæk­inu Standard Oil of California leyfi til að hefja leit að olíu­auð­lindum í land­inu. Fyr­ir­tækið tók upp nafnið Aramco (Arab American Oil Co.) árið 1944 og var rekið í sam­vinnu­fyr­ir­komu­lagi á milli banda­rískra olíu­fyr­ir­tækja og stjórn­valda í Sádí-Arabíu þangað til það var þjóð­vætt á níunda ára­tugnum og breytti nafn­inu í Saudi Aramco. Olíu­birgðir Saudi Aramco eru metnar á um 260 millj­ónir tunna og er Sádi-arabía stærsti olíu­fram­leið­andi í heimi og dælir út um það bil 10 millj­ónir tunnur á dag.

Mohammad bin Salman Al Saud, krón­prins, varn­ar­mála­ráð­herra og for­stöðu­maður efna­hags- og þró­un­ar­ráðs Sádi-arabíu, til­kynnti í fyrra að hann bjóst við að virði Saudi Aramco næmi um tvær billjónir Banda­ríkja­dala en grein­endur hafa nýlega metið virðið á rúma billjón. Bin Salman til­kynnti einnig að stjórn­völd myndu selja um 5% af fyr­ir­tæk­inu í fyrsta útboði verð­bréfa og und­ir­strik­aði að olíu­brunn­arnir myndu halda áfram að vera í eigu stjórn­valda. Útboðið er mik­il­vægt skref fyrir stjórn­völd til að pen­inga­væða hluta af eignum sínum sem eru alls metnar á um 3 billjónir Banda­ríkja­dala og er það stór hluti af stefnu­mótun krón­prins­ins til að draga úr vægi olíu­geirans í hag­kerfi lands­ins. Tekjur af útboð­inu munu renna til þjóð­ar­sjóðs (e. sover­eign wealth fund) lands­ins og mun helm­ingur þeirra renna beint til upp­bygg­ingu á iðn­aði í land­inu.

Kapphlaupið mikla

Vegna stærðar útboðs­ins mun Saudi Aramco þurfa að leita utan land­stein­anna til að finna áfanga­stað fyrir skrán­ing­una til við­bótar við Tadawul-kaup­höll­ina í Riyadh, höf­uð­borg Sádi-arabíu. Kaup­hallir um allan heim hafa því staðið í ströngu við að reyna að laða að sér útboðið. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafði Xavier Rolet, yfir­mann kaup­hall­ar­innar í London, með í föru­neyti sínu nýlega í fund­ar­höldum í Riyadh til að tala fyrir London sem áfanga­stað fyrir útboðið. Það sama var uppi á ten­ingnum í opin­berri heim­sókn kon­ungs Sádí-Arabíu, Salman bin Abdulaziz, til Japans þar sem Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, bað kon­ung­inn íhuga kaup­höll­ina í Tokyo fyrir útboðið. Þá eru við­ræður í gangi á milli Sádi-arabíu og kaup­hall­ar­innar í New York og Salman bin Abdulaziz hefur einnig verið í við­ræðum nýlega í Pekíng þar sem stjórn­völd hvetja Saudi Aramco til að velja kaup­höll­ina í Hong Kong.

Mik­il­vægi fyrsta útboðs verð­bréfa fyrir stærstu alþjóð­legu kaup­hall­irnar hefur auk­ist á und­an­förnum árum en með skrán­ingu fyr­ir­tækja í kaup­höllum fylgja skrán­ing­ar­gjöld sem eru að miklu leyti und­an­þegin sveiflum í fjár­mála­kerf­inu og stöðugt mik­il­væg­ari tekju­lind fyrir kaup­hall­irnar. Þar að auki eru þau leið fyrir kaup­hallir til að styrkja orð­spor sitt sem fjár­mála­mið­stöð og auð­velda aðgengi að fjár­fest­ingum til mik­il­vægra fyr­ir­tækja fyrir inn­lenda fjár­festa. Útboð af stærð­argráðu Saudi Aramco hefur einnig stjórn­mála­legt vægi fyrir landið sem verður fyrir val­inu; fyrir kaup­höll­ina í London væri skrán­ingin skýrt dæmi um áfram­hald­andi mik­il­vægi London sem fjár­mála­mið­stöð eftir Brexit, fyrir kaup­höll­ina í Tokyo væri skrán­ingin jákvætt ummerki fyrir hag­kerfi sem hefur átt í basli í ára­tugi og er mik­il­vægur mark­aður fyrir sádí-arab­íska olíu, fyrir kaup­höll­ina í Hong Kong myndi skrán­ingin vera enn eitt ummerki um auk­andi umsvif Kína í alþjóða­fjár­mála­heim­inum, og fyrir New York myndi skrán­ingin sýna alþjóð­legt mik­il­vægi kaup­hall­ar­innar á tíma þar sem margir myndu halda því fram að orð­spor Banda­ríkj­anna bíði hnekki vegna kosn­ingar Donald Trump til for­seta.

Á sama hátt og mik­il­vægi útboðs­ins er mis­mun­andi á milli kaup­halla eru kostir og gallar hverrar kaup­hallar fyrir sig mis­mun­andi fyrir Saudi Aramco. Greiðslu­flæðið (e. liquidity) er mest í kaup­höllum New York og London en skrán­ing í þeim fylgja líka víð­tæk­asta eft­ir­litið og strangar kröfur um gegn­sæi í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Sádí-Arabía er stærsta við­skipta­land Japans á inn­fluttri olíu og hefur kaup­höllin í Tokyo sam­keppn­is­hæft greiðslu­flæði sam­an­borið við aðrar kaup­hallir í Asíu en ólík­legt þykir að að Tokyo verði fyrir val­inu vegna áhættu tengt stöð­ug­leika jap­anska yens­ins. Kína er í auknum mæli háð inn­flutn­ingi á olíu eftir því sem þar­lendar olíu­auð­lindir fara dalandi en útboðið er tæki­færi fyrir Sádi-arabíu að auka við mark­aðs­hlut­deild sína í land­inu með því að skrá Saudi Aramco í Hong Kong en það myndi auka aðgengi fyr­ir­tæk­is­ins að kín­verskum stofn­ana­fjár­festum.

Þegar vanda skal valið

Fyrsta útboð verð­bréfa Saudi Aramco er stórt skref fyrir Sádi-arabíu og hvert svo sem valið á kaup­höll verður mun útboðið leiða til krafa til gagn­sæis í rekstri krúnu­djásns kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Til­gang­ur­inn með útboð­inu snertir ekki ein­ungis fram­tíð lands­ins og kon­ungs­fjöl­skyld­unnar heldur einnig Mið­aust­ur­lönd í víð­ari skiln­ingi. Með útboð­inu er Sádi-arabía að reyna ann­ars vegar að und­ir­búa hag­kerfi sitt fyrir fram­tíð án þeirra gríð­ar­legu olíu­tekna sem það hefur í dag og sam­tímis við­halda því rausn­ar­legu vel­ferð­ar­kerfi sem stuðlar að stöð­ug­leika í landi þar sem mann­rétt­inda­brot eru tíð og þar sem stjórn­völd standa í ströngu við að heyja lang­vinnt umboðs­stríð (e. proxy war) við Íran víðs vegar í Mið­aust­ur­löndum, meðal ann­ars í Jemen.

Það er ekk­ert venju­legt við útboðið á Saudi Aramco mun það að sem hluti af efna­hags­legri þróun Sádi-arabíu hafa bein áhrif á örygg­is­mál í Mið­aust­ur­löndum, og óbein áhrif á alþjóða­ör­yggi, en valið á kaup­höll hefur efna­hags­legt, stjórn­mála­legt, og ekki síst tákn­rænt, mik­il­vægi bæði fyrir þá kaup­höll sem verður fyrir val­inu og þær sem verða það ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár