Píratar vilja að ríkið segi upp samningi við kirkjuna um laun presta og kirkjujarðir

Þing­flokkur Pírata vill að rík­is­stjórnin segi upp samn­ingi rík­is­ins við þjóð­kirkj­una um laun presta og kirkju­jarðir. Ríkið hefur greitt yfir 33 millj­arða til kirkj­unnar frá því að sam­komu­lagið tók gildi árið 1997.

Allir þingmenn Pírata eru flutningsmenn þingsályktunartillögunnar.
Allir þing­menn Pírata eru flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar. Mynd: Birgir Þór

Þing­flokkur Pírata vill að rík­is­stjórnin segi upp samn­ingi ríkis og kirkju um laun presta og kirkju­jarðir. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis hefur verið lögð fram og eru allir þrír þing­menn flokks­ins flutn­ings­menn.

Þar er lagt til að rík­is­stjórnin hefji und­ir­bún­ing að upp­sögn sam­komu­lags við þjóð­kirkj­una um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar frá árinu 1997. Þá er lagt til að stefnt verði að því að sam­komu­lag­inu og öðrum tengdum samn­ingum verði end­an­lega slitið fyrir árs­lok 2020.

33,5 milljarðar frá ríkinu síðan 1997

Fram hefur komið í fréttum und­an­farin ár að prestar sem nýta hlunn­indi kirkju­jarða sem þeir búa á fái sam­tals tugi millj­óna króna árlega í arð af þeim. Í við­tali við Kastljós árið 2014 sagði Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, að þetta fyr­ir­komu­lag væri ekki sann­gjarnt, einkum þegar haft er í huga að margar sóknir á lands­byggð­inni eigi i fjár­hags­erf­ið­leikum.

Í fyrra hafði ríkið greitt rúm­lega 33 millj­arða króna til þjóð­kirkj­unnar á grund­velli sam­komu­lags­ins frá því að það tók gildi árið 1997. Þó hefur aldrei verið gert verð­mat á jörð­unum sem ríkið eign­að­ist með sam­komu­lag­inu og eng­inn listi er til yfir þær. Fram kom á mbl.is að litið sé á sam­komu­lagið sem fulln­aðar­upp­gjör á kirkju­jörð­unum en engu að síður er ríkið skuld­bundið til að greiða af jörð­unum ótíma­bundið sam­kvæmt því.

Ríkið ekki kannað lögmæti til fullnustu

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata segir að stærstan hluta 20. aldar hafi óvissa ríkt um eign­ar­hald kirkju­jarða. Þegar sam­komu­lag milli íslenska rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar var und­ir­ritað 10. jan­úar 1997 hafi verið horft til álits­gerðar kirkju­eigna­nefndar frá árinu 1984 og umfjöll­unar um þær eignir sem þar voru teknar fyrir. Þá hafi ríkið ekki kannað til fulln­ustu lög­mæti fyrri samn­inga, né heldur hvaða jarðir til­heyrðu þeim, mats­verð þeirra og rekstr­ar­upp­gjör var engu síður gerður samn­ingur um áfram­hald­andi skuld­bind­ingar rík­is­ins við þjóð­kirkj­una.

Rúmur tími til verksins

Birgitta segir í pistli á síðu Pírata að flutn­ings­menn til­lög­unnar telja ljóst að ríkið sé löngu búið að greiða fyrir þær kirkju­jarðir sem það fékk afhentar með sam­komu­lag­inu um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar frá árinu 1997. Ríkið hafi nú þegar greitt um 1,5 millj­arð á ári vegna sam­komu­lags­ins.

„Í til­lög­unni er gert ráð fyrir rúmum tíma til verks­ins. Verði til­lagan sam­þykkt kæmi það til kasta þings­ins á næsta kjör­tíma­bili að sam­þykkja þær laga­breyt­ingar sem gera þarf til að umræddu sam­komu­lagi rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar verði end­an­lega slitið,“ segir Birgitta.

Hér er hægt að nálg­ast yfir­lit yfir jarðir kirkj­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár