Losun Evrópulanda jókst í fyrsta sinn síðan 2010

Nýtt los­un­ar­bók­hald Evr­ópu­sam­bands­ins í lofts­lags­málum þykir sýna fram á að hægt er að draga úr losun um leið og stuðlað er að hag­vexti.

Vindmyllugarður í svissnesku Ölpunum.
Vind­myllu­garður í sviss­nesku Ölpunum. Mynd: EPA

Sam­an­lögð losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Evr­ópu­sam­band­inu og Íslands jókst í fyrsta sinn síðan árið 2010 árið 2015. Aukn­ingin nemur 0,5 pró­sentum milli áranna 2014 og 2015.

Tölur og yfir­lit um losun hvers og eins lands er áætluð út frá los­un­ar­bók­haldi ein­stakra landa sem skilað var í ár fyrir árið 2015.

Auknum sam­göngum í Evrópu er kennt um meiri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Fram­farir í orku­spar­neytn­ari sam­göngu­tækjum duga ekki til þess að stemma stigu við auknar sam­göngur, hvort sem það er á landi eða í lofti.

[links]Vega­sam­göngur valda fimmt­ungi allrar meng­unar Evr­ópu­landa. Losun frá þessum geira jókst annað árið í röð, nú um 1,6 pró­sent árið 2015. Losun frá flug­sam­göngum innan Evrópu nemur um fjórum pró­sentum af heild­ar­los­un­inni. Þar jókst los­unin um 3,3 pró­sent.

Umhverf­is­stofnun Evrópu fjallar um þetta á vef sínum.

Þar segir enn fremur að aukn­ingin los­un­ar­innar sé lítil í sam­an­burði við mesta hag­vöxt í Evrópu síðan árið 2007. Árið 2015 nam hag­vöxtur 2,2 pró­sentum. Árið áður hafði losun í Evrópu minnkað um fjögur pró­sent.

Á árunum 1990 til 2015 hefur Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) tek­ist að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 22,1 pró­sent, sam­kvæmt los­un­ar­bók­haldi sam­bands­ins. Markmið ESB var að minnka losun um 20 pró­sent til árs­ins 2020, á seinna skuld­bind­ing­ar­tíma­bili Kyoto-bók­un­ar­innar. Á sama tíma hefur hag­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins vaxið um 50 pró­sent.

„[...] sem sýnir að efna­hags­vöxtur til langs tíma er mögu­legur um leið og dregið er úr útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­undar,“ segir í frétt Umhverf­is­stofn­unar Evrópu.

Helstu ástæður þess að losun hefur minnkað í Evr­ópu­sam­band­inu er sagðar vera áhrif Evr­ópu­lög­gjafar og lög­gjafar ein­stakra landa um lofts­lags­mál. Aukin reglu­setn­ing hefur leitt til auk­innar notk­unar end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa, notk­unar umhverf­is­væns elds­neytis og fram­farir í orku­sparn­aði.

Þá hafa kerf­is­lægar breyt­ingar í átt að þjón­ustu­mið­aðra hag­kerfis stuðlað að því að losun er minni. Það þarf hins vegar ekki að þýða að los­unin hafi horfið, heldur hefur vöru­fram­leiðsla færst frá Evrópu til ann­arra heims­hluta á tíma­bil­inu.

Aðrar ástæður sem taldar eru til eru áhrif efna­hags­hruns­ins árið 2008 og mild­ari vetur sem hafa gert orku­þörf til hús­hit­unar minni.

[adspot]

Bretland best og viðskiptakerfið virkar

Aðrar nið­ur­stöður los­un­ar­bók­halds­ins fyrir árið 2015 sýna að Bretland stendur sig best í minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Mest aukn­ing los­unar var hins vegar frá Spáni, Ítalíu og Hollandi.

Við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir – sem Ísland er aðili að í gegnum EES-samn­ing­inn – virð­ist jafn­framt virka til þess að knýja á um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Í það minnsta ef þeir geirar sem falla undir við­skipta­kerfið eru bornir saman við þá geira sem ekki falla þar undir. Minnkun útstreymis frá geir­unum sem falla undir kerfið nam 0,7 pró­sentum á milli ára árið 2015 (þar eru flug­sam­göngur milli landa und­an­skildar), sam­an­borið við geirana sem ekki falla undir við­skipta­kerfið þar sem útstreymi jókst um 1,4 pró­sent.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár