„Ekki má hringla með marklínuna“

Dóms­mála­ráð­herra vonar að stjórn­ar­and­stöð­unni „auðn­ist ekki að slíta í sundur þá ein­ingu sem ríkt hefur meðal lands­manna í bar­átt­unni gegn veirunni“. Samhliða útbreiddri bólu­setn­ingu þurfi að slá nýjan takt og „leggja grunn að eðli­legu lífi á ný“.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Sumir leið­togar stjórn­ar­and­stöð­unnar mæla fyrir því að „loka land­inu“, með til­heyr­andi stór­auknu atvinnu­leysi og tekju­tapi sam­fé­lags­ins. Minna fer fyrir til­lögum um aðrar leiðir til að skapa störf,“ skrifar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra í grein í Morg­un­blað­inu í dag. Galopin landa­mæri séu „ekki skammar­yrði“ heldur „eðli­legur hluti þess að búa í frjálsu sam­fé­lagi“.

Hún segir að sömu stjórn­mála­leið­togum finnst „ekk­ert til­töku­mál“ að settar verði á mjög víð­tækar tak­mark­anir á frelsi almenn­ings, jafn­vel til langrar fram­tíðar. Upp­hróp­anir af því tagi lýsi „upp­gjöf og úrræða­leysi“ og fái „von­andi engan hljóm­grunn“ meðal kjós­enda í haust.

[adspot]

„Ég vona að stjórn­ar­and­stöð­unni auðn­ist ekki að slíta í sundur þá ein­ingu sem ríkt hefur meðal lands­manna í bar­átt­unni gegn veirunni,“ skrifar ráð­herr­ann. Talað sé um stefnu­leysi á sama tíma og „virtir sér­fræð­ingar“ hrósi rík­is­stjórn­inni fyrir vand­virkni og hóf­semi. Gagn­rýnin snú­ist fyrst og fremst um of að fljótt hafi verið farið í aflétt­ingar inn­an­lands og látið af skimun bólu­settra inn í landið. „Í þessu flest við­snún­ingur af hálfu stjórn­ar­and­stöð­unnar,“ skrifar Áslaug Arna, „enda byggðu ákvarð­an­irnar á til­lögu sótt­varna­læknis. Hingað til hafa þessar sömu raddir lagt mikið upp úr að fylgja til­lögum hans í einu og öllu.“

[links]Ráð­herr­ann skrifar að stöðugt verði að end­ur­meta aðgerðir, sér í lagi eftir „vel­heppn­aðar og víð­tækar“ bólu­setn­ingar hér­lendis. „Þegar 90 pró­sent full­orð­inna ein­stak­linga eru orðin bólu­sett þarf að slá nýjan takt í umræð­una, end­ur­meta aðstæður og leggja grunn að eðli­legu lífi á ný.“

Sótt­varna­að­gerðir hafi hingað til gengið vel, en þær nýj­ustu hafi „eðli­lega“ komið flatt upp á marga. „Ráð­staf­anir sem við ætlum ekki að búa við til lengri tíma.“

Aðgerð­irnar gilda til 13. ágúst og skrifar ráð­herr­ann að gripið hafi verið til þeirra vegna óvissu um alvar­leg veik­indi bólu­settra. „Það er ánægju­legt að sjá að 97% af þeim sem nú smit­ast eru ein­kenna­lausir. Með því er stærsta áfang­anum náð, enda mark­miðið ekki að telja smit til lengri tíma – heldur að koma í veg fyrir útbreidd alvar­leg veik­indi og sporna við álagi á heil­brigð­is­kerfið.“

Áslaug Arna skrifar að í aðgerðum gegn far­aldr­inum verði mark­miðin að vera skýr. „Ekki má hringla með marklín­una. Nú þegar árang­ur­inn verður met­inn af bólu­setn­ingum sjáum við von­andi þær jákvæðu nið­ur­stöður sem stefnt var að. Við höfum alltaf stefnt að því að bólu­setn­ing­arnar geri okkur kleift að færa dag­legt líf okkar allra til eðli­legs horfs með frelsið að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár