Samherji þarf að selja sig út úr færeyskum sjávarútvegsfyrirtækjum

Samherji hefur sjö ár til að selja sig út úr fær­eysku útgerð­ar­fyr­ir­tæki eftir að ný lög sem banna eign útlend­inga á slíkum tók gildi þar í landi. Laga­breyt­ingin gæti þýtt upp­sögn á frí­versl­un­ar­samn­ingi Íslands og Færeyja.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Aðsend

Um nýliðin ára­mót tók gildi ný lög í Færeyjum sem gera það að verkum að erlendu eign­ar­haldi á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum þar í landi verður úthýst. Samhliða verður kvóta­kerfið sem þar hefur verið við lýði tekið upp og upp­boðs­leið inn­leidd.

Þessar breyt­ingar munu hafa bein áhrif á eitt íslenskt fyr­ir­tæki, sjáv­ar­út­vegs­ris­ann Samherja, sem á útgerð­ar­fyr­ir­tækið Fram­herja í Færeyjum, sem það stofn­aði árið 1994 Fram­herji gerir út þrjá tog­ara í Færeyjum. Samherji hefur nú sjö ár til að losa sig út úr fær­eysku útgerð­inni.

Frá þessu er greint í Fiski­fréttum.

Víðtækasti fríverslunarsamningurinn

Í umfjöllun Fiski­frétta segir að breyt­ingin á rétti erlendra aðila til að eiga í fær­eyskum útgerðum geri það að verkum að end­ur­skoða þarf frí­versl­un­ar­samn­ing Íslend­inga og Fær­ey­inga, Høy­vík­ur­samn­ing­inn, sem gerður var árið 2005. Samkvæmt þeim samn­ingi er litið á Ísland og Færeyjar sem eitt efna­hags­svæði, og er þetta víð­tæk­asti frí­versl­un­ar­samn­ingur sem Íslend­ingar hafa gert við annað ríki, að und­an­skildum samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið um Evrópska efna­hags­svæðið.

Þurfa mögulega að segja upp samningnum

Í blað­inu segir að ef Íslend­ingar fáist ekki til að end­ur­skoða samn­ing­inn þá þurfi Fær­ey­ingar annað hvort að segja honum upp eða breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­lögum sínum aftur þannig að hætt yrði við að koma Íslend­ingum út úr fær­eyskri útgerð.

Í athuga­semdum sem Gísli Baldur Garð­ars­son, lög­maður Samherja, sendi fær­eyska þing­inu 19. júní í fyrra sagði hann lít­inn vafa á að laga­breyt­ing­arnar brytu í bága við frí­versl­un­ar­samn­ing­inn. „Hugs­an­lega er fær­eyska rík­is­stjórnin með frum­varpi þessu að boða upp­sögn samn­ings­ins við Ísland,“ skrif­aði Gísli Baldur.

Högnuðust um 86 milljarða á sex árum

Samherji er stærsta útgerð­­ar­­fyr­ri­tæki lands­ins. Á árunum 2011 til og með 2016 hefur fyr­ir­tækið hagn­­ast um 86 millj­­arða króna. Hagn­að­ur­inn árið 2016 var 14,3 millj­arðar króna.

Tekj­ur Sam­herja, sem er sam­­stæða fé­laga sem flest starfa á sviði sjá­v­­­ar­út­­­vegs, hér­­­lend­is sem er­­lend­is, námu þá um 85 millj­­örðum króna og var hagn­aður fyr­ir af­­skrift­ir og fjár­­­magnsliði um 17 millj­­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár