Styður ríkisstjórnin loftárásirnar í Sýrlandi?

Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­irs­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafa komið sér undan að svara því beint hvort þau styðji loft­árásir Banda­ríkja­manna, Breta og Frakka á Sýrlandi í nótt.

„Öll NATO ríkin lýstu yfir fullum stuðn­ingi við aðgerð­irnar í gærnótt,“ segir í til­kynn­ingu frá NATO vegna loft­árása Banda­ríkj­anna, Breta og Frakka á Sýrland í nótt.

[links]Banda­rík­in, Bret­land og Frakk­land hófu í nótt hern­að­ar­að­gerðir gegn sveit­um Bashars al-Assads Sýr­lands­for­seta, og virð­ast skot­mörkin hafa verið þrjú. Sergei Rudskoi, rúss­neskur hers­höfð­ingi sagði á blaða­manna­fundi í Moskvu að 103 flug­skeytum hafi verið skotið að her­stöðv­unum, en ein­ungis 32 hafi valdið skaða.

Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­irs­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafa komið sér undan að svara því beint hvort þau styðji árás­irnar. Í sam­tali við RÚV í dag sagði Katrín að þau hafi lagt á það áherslu að ná sam­stöðu innan örygg­is­ráðs­ins um aðgerðir sem grípa ætti til. Árás­irnar hafi verið við­búnar fyrst ekki sú sam­staða náð­ist ekki í vik­unni.

Katrín sagði Vinstri græn alltaf hafa talað fyrir frið­sam­legum lausnum og geri enn. Þegar Katrín var enn spurð hvort hún styðji árás­irnar, svar­aði hún: „Við höfum ekki lýst sér­stökum stuðn­ingi við þessar aðgerðir, rík­is­stjórnin, en við höfum sagt að þær hafi verið við­búnar.“

Guð­laugur skrif­aði á Twitter-síðu sína í morgun að hóf­stilltar og mark­vissar aðgerð­irnar væru skilj­an­legar í ljósi aðgerð­ar­leysis örygg­is­ráðs­ins. Í hádeg­is­fréttum RÚV var Guð­laugur spurður hvort Ísland ætli að lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerð­irnar. Hann svar­aði því til að staðan yrði rædd hjá NATO í dag og síðar á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Við höfum sett mjög skýr skila­boð eins og fram hefur komið í dag en við eigum eftir að sjá hvernig þessi mál þró­ast.“

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður Vinstri grænna lýsti yfir sér­stakri ánægju með það í dag að að rík­is­stjórn Íslands hafi ekki lýst yfir stuðn­ingi við árás­ina. „Þrjú ríki taka sig til og gera árás á það fjórða, ákvörðun tekin fram­hjá öllum alþjóða­stofn­unum. Ég mun aldrei styðja slíka aðgerð. Ég er frið­ar­sinni og styð ekki stríð,“ skrif­aði Kolbeinn á Facebook síðu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár