Trump fyrirskipar árás á Sýrlandsher

Bretar og Frakkar taka þátt í aðgerðum.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur fyr­ir­skipað árás á Sýr­lands­her í Sýrland, en skot­mörkin sem ráð­ist er á, eru sögð vera efna­vopna­geymslur og skot­pallar, þaðan sem efna­vopnum á að hafa verið skotið á dög­unum.

Bretar og Frakkar taka þátt í aðgerð­unum en skot­mörkin eru nærri borg­inni Damaskus, og hafa árásir þegar verið gerðar.

Í ávarpi sagði Trump að ein­blínt yrði á eyða efna­vopnum stjórn­ar­hers Bashars al-Assads Sýr­lands­for­seta, sem Trump hefur kallað „skepnu“.

Ráðamenn í Dam­askus hafa stað­fast­lega neitað að bera ábyrgð á efna­vopna­árás­inni í Douma.

Þá hafa stjórn­völd í Rúss­landi varað vest­ur­veldi við hern­að­ar­að­gerðum í Sýr­landi og sagt slíkt geta leitt til enn stærri átaka, enda staðan í landin um margt flókin.

Sergei Lavrov utan­ríks­ráð­herra Rúss­lands full­yrðir að efna­vopna­árásin hafi verið svið­sett, og segir leyni­þjón­ustur, meðal ann­ars Breta, hafa komið að því verki. Hann segir Rússa ekk­ert hafa komið að árásinni og segir ekk­ert benda til þess að Sýr­lands­her hafi gert það.

Hafa Rúss­ar hótað því að skjóta niður þær eld­flaug­ar sem beint yrði gegn her­sveit­um Sýr­lands. Eng­ar fregn­ir hafa enn borist af við­brögðum Rússa við árás­um Banda­ríkja­manna, Breta og Frakka.

Íbúa­fjöldi í Sýrlandi er um 20 millj­ónir og ástandið í land­inu er víða skelfi­legt eftir margra ára borg­ara­styrj­öld. Talið er að meira en 10 millj­ónir manna, um helm­ingur íbúa­fjöld­ans, sé á flótta, ýmist utan landamæra eða innan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár