Tvöföldun í gagnaverum á Íslandi

Búrfellsvirkjun.
Búr­fells­virkjun. Mynd: Landsvirkjun

Mikill vöxtur hefur verið í gagna­verum á Íslandi und­an­farið. Samkvæmt mati Lands­virkj­unar tvö­fald­að­ist eft­ir­spurn í þeim geira í fyrra og er orku­notkun nú um 30 MW. Mörg gagna­vers­fyr­ir­tæki hafa sýnt áhuga á að koma til Íslands en ávallt ríkir mikil leynd yfir slíkum verk­efnum og fyr­ir­tækin eru ekki mikið fyrir að tjá sig opin­ber­lega um hvað þau eru að gera. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Harðar Arn­ar­sonar, for­stjóra Lands­virkj­unar, á fundi með fjöl­miðlum og grein­ing­ar­deildum á mörk­uðum í morgun.

Hörður sagði gagna­verin vera að koma sterk inn, og iðn­að­ur­inn væri kom­inn til að vera hér á landi. Það sé ánægju­legt og kom­inn sé sterkur und­ir­liggj­andi vöxtur í gagna­ver­unum. Þau séu áhuga­verð við­bót­ar­iðn­grein, sem muni svo í fram­tíð­inni nýta meiri orku en áliðn­að­ur­inn á heims­vísu.

Hörður sagð­ist einnig hafa miklar áhyggjur af flutn­ings­kerfi raf­orku og nefndi meðal ann­ars í því sam­hengi að það væri erfitt að fara með gagna­ver út af stór-Reykja­vík­ur­svæð­inu einmitt vegna flutn­ings­kerf­is­ins.

Vilja fleiri inn á markaðinn

Mikil umfram­eft­ir­spurn er eftir raf­orku á Íslandi og Lands­virkjun annar ekki heild­ar­eft­ir­spurn iðn­aðar. Það þýddi þó ekki að rétt væri að leggja saman öll verk­efni sem menn vildu ráð­ast í og reyna að mæta þeirri eft­ir­spurn. „Sá tími er lið­inn á Íslandi og ég held að hann komi aldrei aftur,“ sagði Hörður. Það sé sama hversu mikið sé virkjað, það verði alltaf umfram­eft­ir­spurn eftir raf­orku.

Hörður sagði að það væri kannski óvenju­legt á sam­keppn­is­mark­aði, en Lands­virkjun vill sjá að það fari fleiri aðilar í það að byggja virkj­anir hér á landi. Fyr­ir­tækið er það eina sem hefur byggt virkj­anir á land­inu frá árinu 2008. Að auki vilji fyr­ir­tækið sjá að fleiri kostir verði settir í nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar, en þess væri beðið að sjá hvaða til­lögum verði skilað þess efnis í vor.

Hörður segir að það sé einnig mjög óvenju­legt að fyr­ir­tækið standi í tveimur virkj­unum á sama tíma, en bæði Þeista­reykja­virkjun og stækkun Búr­fells­virkj­unar eru nú í bígerð. Hann sagði að bundnar væru vonir við það hjá Lands­virkjun að Hvamms­virkjun yrði næsta virkjun sem ráð­ist yrði í að stækkun Búr­fells­virkj­unar lok­inni, en áætlað er að sú virkjun verði komin í rekstur vorið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár