Aðstoðarmaður utanríkisráðherra skipaður í stjórn Íslandsstofu

Ný stjórn Íslands­stofu hefur verið skipuð. Fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair er nýr stjórn­ar­for­maður og annar eig­andi KOM tekur einnig sæti í stjórn­inni. Nýr fram­kvæmda­stjóri verður ráð­inn á næst­unni.

Borgar Þór Einarsson, Friðjón R. Friðjónsson, Björgólfur Jóhannsson og Jens Garðar Helgason eru allir komnir í stjórn Íslandsstofu.
Borgar Þór Ein­ars­son, Friðjón R. Frið­jóns­son, Björgólfur Jóhanns­son og Jens Garðar Helgason eru allir komnir í stjórn Íslands­stofu. Mynd: Samsett

Björgólfur Jóhanns­son, sem sagði af sér sem for­stjóri Icelandair fyrir skemmstu, er nýr stjórn­ar­for­maður Íslands­stofu. Auk hans voru Hildur Árna­dóttir, vara­for­maður, Ást­hildur Othars­dóttir og Jens Garðar Helgason, for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, öll til­nefnd af Samtökum atvinnu­lífs­ins. Þá voru Áshildur Braga­dóttir og Borgar Þór Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, til­nefnd í stjórn­ina af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra skip­aði Friðjón R. Frið­jóns­son, einn eig­anda KOM almanna­tengsla og mið­stjórn­ar­mann í Sjálf­stæð­is­flokknum, í stjórn­ina.

Íslands­stofa er sam­starfs­vett­vangur atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda og hefur það hlut­verk að auka gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­innar með þrótt­miklu starfi í þágu íslenskra útflutn­ings­greina.

Eitt af fyrstu verkum stjórn­ar­innar verður að ráða nýjan fram­kvæmda­stjóra Íslands­stofu, en Jón Ásbergs­son, sem hefur gengt starf­inu frá árinu 2010, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Staða fram­kvæmda­stjóra verður aug­lýst á næstu dögum.

Í til­kynn­ingu segir að hlut­verk Íslands­stofu sé að „vera sam­starfs­vett­vangur atvinnu­lífs, hags­muna­sam­taka, stofn­ana og stjórn­valda um stefnu og aðgerðir til þess að auka útflutn­ings­tekjur og hag­vöxt. Enn fremur að veita alhliða þjón­ustu og ráð­gjöf til allra útflutn­ings­greina í því skyni að greiða fyrir mark­aðs­setn­ingu og útflutn­ingi á vöru og þjón­ustu og að laða erlenda ferða­menn til lands­ins með sam­ræmdu kynn­ingar- og mark­aðs­starfi. Þá er Íslands­stofu ætlað að laða erlenda fjár­fest­ingu til lands­ins og upp­lýsa erlenda fjár­festa um kosti Íslands og að styðja við kynn­ingu á íslenskri menn­ingu, vörum og þjón­ustu erlendis.“

Björgólfur, nýr stjórn­ar­for­maður, segir spenn­andi tíma vera framundan hjá Íslands­stofu. „Gríð­ar­margt hefur áunn­ist á und­an­förnum árum undir for­ystu Jóns Ásbergs­sonar sem hefur unnið óeig­in­gjarnt starf, af miklum metn­aði og fag­mennsku. Það var ein­dregin ósk nýrrar stjórnar þegar ljóst var að Jón vildi láta af starfi fram­kvæmda­stjóra að hann myndi áfram ljá okkur krafta sína í nýju hlut­verki. Nú horfum við til fram­tíðar og það er ljóst að breytt rekstr­ar­form gefur okkur tæki­færi til að halda áfram að sækja fram af krafti fyrir íslenskt atvinnu­líf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íslandsstofa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár