Milljarðaábati af rafvæðingu Herjólfs og Sævars

Að mati Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands er það þjóð­hags­lega hag­kvæmt að raf­væða þær ferjur sem eru hluti af þjóð­vega­kerf­inu. Raf­væð­ing Herjólfs og Hrís­eyj­ar­ferj­unnar Sævars mun minnka losun koltví­sýr­ings um 175 þús­und tonn á árunum 2020 til 2049.

Nýr Herjólfur er tvinnskip og gengur að hluta til fyrir olíu en að mestu fyrir rafmagni. Hann brennir um 2.500 lítra af olíu á viku en til samanburðar brenndi gamli Herjólfur 55 þúsund lítra af olíu á viku.
Nýr Herj­ólfur er tvinn­skip og gengur að hluta til fyrir olíu en að mestu fyrir raf­magni. Hann brennir um 2.500 lítra af olíu á viku en til sam­an­burðar brenndi gamli Herj­ólfur 55 þús­und lítra af olíu á viku. Mynd: Vegagerðin

Núvirtur ábati af því að láta ferj­urnar Herjólf og Sævar ganga fyrir raf­magni að hluta til eða að öllu leyti er um sjö millj­arðar króna umfram kostnað sam­kvæmt útreikn­ingum Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands. Mat Hag­fræði­stofn­unar nær til ára­bils­ins 2019 til 2040. Herj­ólfur siglir nú þegar að mestu á raf­magni en stefnt er að því að hanna nýja Hrís­eyj­ar­ferju árið 2024 og gerir Hag­fræði­stofnun ráð fyrir því í útreikn­ingum sínum að hún muni taka við af núver­andi ferju árið 2029. Stefnt er að því að nýja ferjan muni ein­ungis ganga fyrir raf­magni í áætl­un­ar­sigl­ingum milli Hrís­eyjar og Árskógs­sands.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar er mat lagt á þær aðgerðir sem finna má í aðgerða­á­ætlun Stjórn­valda í lofts­lags­málum. Í aðgerða­á­ætl­un­inni eru kynntar 48 aðgerðir en í skýrsl­unni er mat lagt á kostnað og ábata 23 þeirra. Ekki er lagt mat á 25 aðgerðir vegna þess að sumar þeirra eru enn í mótun eða í und­ir­bún­ingi og áhrif ann­arra aðgerða sem ekki er lagt mat á eru óljós. Meðal þeirra aðgerða sem mat er lagt á er orku­skipti ferja sem eru hluti af þjóð­vega­kerf­inu.

Líkt og áður segir gengur Herj­ólfur fyrir raf­magni að stórum hluta og von er á nýrri Hrís­eyj­ar­ferju. Óvíst er hvenær hún kemst á flot en Hag­fræði­stofnun gerir ráð fyrir að ferjan verði farin að sigla árið 2029, fimm árum eftir að hönnun ferj­unnar hefst. Hönnun Herjólfs hófst árið 2014 og hann hóf sigl­ingar fimm árum síðar. „Ekki hefur verið hugað að orku­skiptum í hinum ferj­unum þremur, Gríms­eyj­ar­ferj­unni Sæfara, Mjóa­fjarð­ar­ferju og Breiða­fjarð­ar­ferj­unni Baldri og því er ekki fjallað um þær hér,“ segir í skýrsl­unni.

Herjólfur brennir 2.500 lítrum af olíu á viku samanborið við 55 þúsund áður

Herj­ólfur sem nú siglir milli lands og eyja er tvinn­skip og gengur því bæði fyrir raf­magni og olíu. Að jafn­aði brennir Herj­ólfur 2.500 lítrum af olíu á viku á ferðum sínum en ef hann væri ein­ungis knú­inn með olíu myndi hann brenna 35 þús­und lítrum á viku. Til sam­an­burðar brenndi gamli Herj­ólfur 55 þús­und lítrum af olíu á viku. Nýi Herj­ólfur losar því ríf­lega 4.500 færri koltví­sýr­ingsí­gildistonnum á ári heldur en sá gamli. Ábatinn af minni losun koltví­sýr­ings nemur 18-70 millj­ónum króna á ári frá 2019 til 2030 miðað við núver­andi verð og spá um verð á mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir.

Við þetta bæt­ist sparn­aður við rekstur enda er raf­magnið mun ódýr­ara en olían. „. Ef Herj­ólfur gengi ein­ungis fyrir olíu mundi það kosta 248 millj­ónir fyrsta árið og síðan þeim mun meira eftir því sem olíu­verð hækkar. Þar spar­ast allt frá rúmum 240 millj­ónum króna á ári upp í tæpar 400 millj­ónir miðað við áætl­aða olíu­notkun og verð­hækkun á olíu. Raf­magnið kostar hins vegar um 33 millj­ónir á ári miðað við 7,8 krónur á kWh og 4.200.000 kWh á ári.“

Þannig er núvirtur ábati af því láta Herjólf ganga fyrir raf­magni 3,7 millj­arðar umfram kostnað en gert er ráð fyrir að skipið end­ist í 20 ár.

Rafvæðing geti styrkt byggðir

Núvirtur ábati af nýjum Sævari er met­inn 3,1 millj­arður sam­kvæmt útreikn­ingum Hag­fræði­stofn­unar. Sömu for­sendur liggja að baki um verð á raf­magni, olíu og los­un­ar­heim­ildum. Munur er á sigl­inga­á­ætlun skip­anna og er Herj­ólfur að með­al­tali 22 pró­sentum lengur í sigl­ingum á degi hverjum. Sævar mun aftur á móti ein­ungis vera knú­inn raf­magni ólíkt Herjólfi.

Við raf­væð­ingu þess­ara ferja spar­ast 8.500 tonn á ári af koltví­sýr­ingsí­gildum þegar nýr Sævar verður kom­inn á flot. Þangað til spar­ast 4.500 tonn á hverju ári. „Í heild­ina spar­ast um 175 þús­und tonn á árunum 2020 til 2049. Ábati umfram kostnað er um 30 þús­und krónur á hvert tonn af koltví­sýr­ingsí­gildum sem spar­ast og er það áður en áhrif af losun kolefnis eru metin til fjár,“ segir í skýrsl­unni.

Við mat á félags­legum áhrifum aðgerða í lofts­lags­málum segir að orku­skipti ferja geti styrkt þær byggðir þar sem ferju­sigl­ing­anna nýtur við. „Ódýrara virð­ist vera að knýja ferjur með raf­magni en olíu. Ef minni rekstr­ar­kostn­aður skilar sér í lægra far­gjaldi njóta íbúar í grennd við ferj­urnar þess mest. Straumur ferða­manna gæti líka auk­ist og byggðin styrkst við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár