Sigurður Ingi segir nú að vistun eigna á aflandseyjum sé óeðlileg

Nýr for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar segir að síð­ustu rík­is­stjórnum hafi mis­tek­ist að ná sam­tali við þjóð­ina. Í síð­ustu viku sagði hann ekk­ert að því að geyma fé á lág­skatt­ar­svæðum. Nú segir hann það óeðli­legt.

Sigurður Ingi Jóhannsson þegar tilkynnt var endanlega um að hann yrði næsti forsætisráðherra íslensku þjóðarinnar.
Sigurður Ingi Jóhanns­son þegar til­kynnt var end­an­lega um að hann yrði næsti for­sæt­is­ráð­herra íslensku þjóð­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag að sú umsýsla að Íslend­ingar skyldu áfram vista eigur sínar á aflandseyjum eftir hrunið sé „vissu­lega ekki ólög­leg en óeðli­leg er hún.[...]Ljóst er að það er lög­legt. Þannig er þetta fyrst og síð­ast sið­ferðis­legt álita­efni. Mitt fyrsta verk í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á föstu­dag var að láta kanna hvort við gæt­um bannað Íslend­ing­um að vista pen­inga í lág­skatta­ríkj­um. Fyrstu svör sér­fræð­inga eru þau að vegna m.a. jafn­ræðis­reglu EES-samn­ings­ins sé það ekki hægt."

Á fimmtu­dag í síð­ustu viku sagði hann hins vegar úr ræðu­stóli Alþingis að ekk­ert væri að því að eiga eignir á lág­skatta­svæðum ef þeir sem slíkar eigi greiði skatta af þeim eignum. Það væri lög­legt á Íslandi og alþjóð­lega. Það sé hins vegar veru­lega mikið að því þegar menn noti slík félög til að kom­ast hjá greiðslu skatta og til að fela fé. Hann hvatti alla þá sem „orðið hafa fyrir því“ að fela pen­inga eða svíkja undan sköttum að gera hreint fyrir sínum dyrum.

Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið í dag segir Sigurður Ingi að nú sé brýn­ast að byggja að nýju traust milli stjórn­mála­manna og þjóðar. Eftir því sé kallað. „Verk­efnið er vanda­samt en ég mæti því af fullri auð­mýkt." For­sæt­is­ráð­herr­ann segir að rík­is­stjórn hans muni kalla fjöl­marga til sam­ráðs við sig á næstu vikum til að leysa stóru málin sem framundan eru. Meðal þeirra sem kall­aðir verða til eru full­trúar stjórn­ar­and­stöðu. Þetta sé liður í því að end­ur­heimta traust milli almenn­ings og stjórn­mála­manna.

Traust á stjórn­mála­menn og stofn­anir stjórn­mál­anna hrap­aði í kjöl­far Kast­ljóss-þáttar fyrir átta dögum þar sem aflandseign íslenskra ráða­manna var opin­beruð. Í könnun sem Félags­vís­inda­stofnun gerði í byrjun síð­ustu viku var spurt hvort umfjöll­unin hefði dregið úr trausti á nokkrum ráð­herrum eða stofn­unum. 78 pró­sent sögðu að hún hefði dregið úr trausti sínu gagn­vart Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og 67 pró­sent að hún hefði dregið úr trausti sínu á Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 62 pró­sent treystu Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra síður eftir þátt­inn og 70 pró­sent misstu traust gagn­vart rík­is­stjórn­inni. Traust aðspurðra til Alþingis dróst saman hjá 63 pró­sent lands­manna og traust til stjórn­mála almennt dróst saman um 67 pró­sent. Fylgi stjórn­ar­flokk­anna hríð­féll einnig í flestum könn­unum sem birtar voru í síð­ustu viku og stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina fór niður í 26 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­uðu engu að síður nýja rík­is­stjórn undir for­sæti Sigurðar Inga í lok síð­ustu viku, en lof­uðu kosn­ingum í haust. Enn á eftir að nefna dag­setn­ingu í þeim efnum.

Sigurður Ingi segir við Morg­un­blaðið að ef til vill hafi síð­ustu rík­is­stjórnum mis­tek­ist að ná sam­tali við þjóð­ina. „Ein­hverra hluta vegna höfum við ekki fundið rétta tón­inn. Rík­is­stjórn mín mun því á næst­unni kalla stjórn­ar­and­stöð­una og fleiri til sam­ráðs um ýmis mál sem þarf að leysa, svo sem afnám hafta og hús­næð­is­málin, svo ég nefni nokkur stór verk­efnin sem þarf að ljúka, áður en kosið verður í haust. Að nokkrir mán­uðir líði uns kosið sé er ágætur tími. Við þurfum að gefa lýð­ræð­inu svig­rúm til að und­ir­búa sig, bæði nýjum stjórn­mála­hreyf­ingum og þeim sem fyrir eru."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár