Íslendingar eiga þúsund milljarða erlendis - 32 milljarðar eru á Tortóla

Eignir Íslend­inga erlendis dróg­ust lít­il­lega saman í fyrra. Mikil styrk­ing krón­unnar og aukið inn­flæði til að taka þátt í fjár­fest­ingum hér­lendis spilar þar rullu. Tugir millj­arða eru geymdar á lág­skatt­ar­svæðum og yfir 100 millj­arðar króna eru með „óflok

Mynd: Pexels.com
Mynd: Pexels.com

Íslend­ingar áttu sam­tals 1.004 millj­arða króna í beinni erlendri fjár­muna­eign um síð­ustu ára­mót. Það er aðeins lægri upp­hæð en lands­menn áttu utan lands­stein­anna ári áður, þegar hún nam 1.067 millj­örðum króna. Stærsti hluti þeirra eigna er í félögum sem skráð eru til heim­ilis í Hollandi (324 millj­arðar króna), Bret­landi (213 millj­arðar króna) og Lúx­em­borg (98 millj­arðar króna] sem allt eru þekktar fjár­mála­mið­stöðvar. Íslend­ingar eiga lík­a ­tölu­verðar eignir í þekktum lág­skatta­svæðum á borð við Bresku Jóm­frú­ar­eyj­arn­ar. Þar eiga Íslend­ingar 32,2 millj­arða króna. Bein fjár­muna­eign Íslend­inga þar hefur auk­ist mikið frá því fyrir hrun, en í árs­lok 2007 áttu Íslend­ingar 8,6 millj­arða króna á eyj­un­um, en fræg­ust þeirra er Tortóla. Geng­is­fall krón­unnar skýrir aukn­ing­una að ein­hverju leyti.

Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Seðla­banka Íslands um beina fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis.

Skrán­ingu á erlendri fjár­muna­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­an. Nú eru gefnar upp­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­muna­eign Íslend­inga er á Cayman-eyjum, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­tí­us. Það er ekki hægt leng­ur. Alls eru eiga Íslend­ing­ar „óflokk­að­ar“ eignir upp á 111 millj­arða króna.

Fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis hefur verið að drag­ast saman á und­an­förnum árum í krónum talið. Þar hefur áhrif að fallandi gengi krónu eftir banka­hrunið 2008 hafði mikið áhrif á eign­ina til hækk­unar. Mestar voru þær tæp­lega 1.600 millj­arðar króna í lok árs 2012 þegar krónan var enn afar veik. Umfang beinnar fjár­muna­eignar Íslend­inga erlendis hafði þá 6,5 fald­ast í krónum talið frá árinu 2004, þegar þjóðin átti um 245 millj­arða króna af beinum eignum í öðrum löndum.

Krónan hefur vita­skuld styrkst mikið á und­an­förnum tveimur árum. Frá byrjun árs 2015 hefur hún styrkst um 25 pró­sent gagn­vart evru, 16,5 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal og um 43 pró­sent gagn­vart breska pund­inu, en þar á Brexit hlut að máli.

Íslenskir ráð­herrar með eignir í aflands­fé­lögum

Erlend fjár­muna­eign Íslend­inga hefur verið í kast­ljósi heims­ins í kjöl­far frétta úr gagna­leka frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca sem gerður var opin­ber í apríl. Í þeim kom fram að um 600 Íslend­ingar teng­ist um 800 aflands­fé­lögum sem koma fram í skjöl­unum. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­skipta­vini Lands­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­göngu­liði Kaupþing og Glitnir not­uðu, en sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans sem þekktu vel til í starf­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins.

Á meðal þeirra Íslend­inga sem koma fram í gögn­un­um, og eru með tengsl við aflands­fé­lög, eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og nokkrir stjórn­mála­menn af sveit­ar­stjórn­ar­stíg­inu.

Kjarn­inn hafði ítrekað beint fyr­ir­spurnum til Sig­urðar Más Jóns­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um hvort ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands, eða fjöl­skyldur þeirra, ættu eignir erlend­is. Hinn 15. mars 2015 voru fyr­ir­spurnir sendar til upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar þar sem fyrr­nefnd fyr­ir­spurn var borin upp. Sá sem svar­aði fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, skrif­stofu­stjóri innan þess, neit­aði að svara fyr­ir­spurn­inni, og sagði það ekki í verka­hring for­sæt­is­ráðu­neyts­ins að gera það, og lög krefð­ust þess ekki. Fyr­ir­spurnin var ítrekuð í nokkur skipti, eftir að eft­ir­grennslan rit­stjórnar benti til þess að ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands ættu hugs­an­lega eignir erlend­is, sem hvergi hefði verið greint frá. Fyr­ir­spurnir Kjarn­ans báru ekki árang­ur.

Í Panama­skjöl­unum var einnig að finna stjórn­endur úr líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og fjöl­marga ein­stak­linga sem hafa verið áber­andi í íslensku við­skipta­lífi á und­an­förnum árum. Þar á meðal voru Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Ingi­björg Pálma­dótt­ir, Lýður og Ágúst Guð­munds­syn­ir, Finnur Ing­ólfs­son, Sig­urður Bolla­son, Hannes Smára­son, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son ofl. Hluti þessa hóps er skráður með lög­heim­ili erlend­is.

Hafa getað fengið virðisaukningu og keypt upp íslenskar eignir

Líkt og áður sagði hefur styrk­ing krón­unnar haft áhrif á heild­ar­virði erlendrar fjár­muna­eignar Íslend­inga á und­an­förnum árum, og gert það að verkum að það hefur lækkað um tæp­lega 600 millj­arða króna frá árs­lokum 2012. En það getur líka spilað inn í að hún lækki að Íslend­ingar hafa verið að ferja fé erlendis frá heim til að fjár­festa hér­lendis.

794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands á meðan þau voru í boði, frá febr­úar 2012 til febr­úar 2015. Peningar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ingin, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna. Þegar Kjarninn hefur spurst fyrir um hverjir það eru sem hafa notið þess­arar leiðar hefur Seðla­bank­inn svarað því til að sér sé ekki heim­ilt að greina frá nöfnum þátt­tak­enda í gjald­eyr­is­út­boðum sínum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um Seðla­banka Íslands.

Bjarni Benediktsson var einn þeirra sem gagnrýni fjárfestingaleið Seðlabankans opinberlega og sagði að í henni fælist aðstöðumunur. Bjarni var einnig einn þeirra stjórnmálamanna sem var opinberuð með aflandsfélagatengsl í Panamaskjölunum. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Bjarni Bene­dikts­son var einn þeirra sem gagn­rýni fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans opin­ber­lega og sagði að í henni fælist aðstöðu­munur. Bjarni var einnig einn þeirra stjórn­mála­manna sem var opin­beruð með aflands­fé­laga­tengsl í Panama­skjöl­unum. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Gagnrýni á fjár­fest­ing­ar­leið­ina kom úr mörgum áttum, áður en ákveðið var að hætta útboðum hennar. Bjarni Bene­dikts­son gagn­rýndi hana meðal ann­ars fyrir að vera ósann­gjarna. Í sam­tali við Kjarnann í febr­úar 2014 sagði hann leið­ina fela í sér aðstöðumun milli inn­lendra og erlendra aðila.

Einungis fyrir efnað fólk

Fjöl­miðlar hafa verið dug­legir við að segja fréttir af þeim aðilum sem blasað hefur við að hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina við að flytja pen­inga erlendis frá til lands­ins. Félög í eigu þeirra aðila hafa þá oftar en ekki ráð­ist í skulda­bréfa­út­gáfu sem sömu aðilar hafa keypt fyrir krón­urnar sem þeir fá fyrir gjald­eyr­inn sinn, og þar með hefur ákvæði um bind­ingu í verð­bréfum verið full­nægt. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Jóns Ólafs­sonar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, Ólafs Ólafs­sonar, Hjör­leifs Jak­obs­sonar, Ármanns Þor­valds­sonar, Kjartans Gunn­ars­sonar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wernerssona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unnar.

Fjár­fest­ing­ar­leiðin var ein­ungis fyrir efnað fólk. Lengi vel þurfti við­kom­andi að eiga að minnsta kosti 50 þús­und evrur sem hann vildi skipta í krónur til að taka þátt en sú upp­hæð var lækkuð í 25 þús­und evrur allra síð­ustu mán­uð­ina sem hún var við lýði. Lengst af þurfti því að minnsta kosti að eiga and­virði um sjö millj­óna króna í reiðufé til að taka þátt.

Ákveðin skil­yrði voru fyrir því að mega fara í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Á meðal þeirra er að fjár­festir­inn væri raun­veru­legur eig­andi þeirra fjár­muna sem hann ætlar sér að flytja inn til lands­ins. Auk þess er óheim­ilt að flytja fjár­muni fyrir hönd ann­ars eða ann­arra aðila. Annað skil­yrði var að fjár­festir lægi„ekki undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot, ákærður af hand­hafa ákæru­valds eða kærður til lög­reglu af Seðla­bank­anum, og máli vegna þess sé enn ólokið hjá ákæru­valdi eða lög­reglu“.

Skil­mál­unum var þó breytt í des­em­ber 2012 þegar því var bætt inn að þeir aðilar sem lágu undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot mættu ekki heldur taka þátt í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.

Engar tak­mark­anir voru hins vegar á þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni fyrir aðila sem voru til rann­sóknar eða jafn­vel í ákæru­ferli hjá öðrum emb­ættum en gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Þannig gat ein­stak­lingur setið í dóms­sal að morgni þar sem honum var gefið að hafa framið stór­kost­lega efna­hags­glæpi. Síðdegis gat hann tekið þátt í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­bank­ans og tryggt sér tug­pró­senta­af­slátt af íslenskum krónum. Um kvöldið gat hann keypt sér íslenskt fyr­ir­tæki fyrir þessar sömu krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár