RÚV vill hlut í hagnaði kvikmyndaframleiðenda

Kvik­mynda­fram­leið­endur telja RÚV reyna að ná til sín end­ur­greiðslum vegna kvik­mynda­gerðar með breyttum samn­ings­skil­málum. RÚV vill nota hagnað sjálf­stæðra fram­leið­enda af sjón­varps­efni til að fjár­festa í inn­lendri dag­skrár­gerð.

Samtök iðn­að­ar­ins (SI) og Samband íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda (SÍK) saka Rík­is­út­varpið um að blása út eign­ar­hlut sinn í aðkeyptu dag­skrár­efni. Það sé gert með því að reikna fram­leiðslu­kostnað út frá heild­ar­kostn­aði að frá­dreg­inni end­ur­greiðslu. Samtökin segja skil­mála­breyt­ingar á samn­ingum við sjálf­stæða fram­leið­endur hafa verið gerðar án aðkomu þeirra.

Breyt­ing­arnar fel­ast fyrst og fremst í því að í stað þess að RÚV greiði ein­göngu fyrir sýn­ing­ar­rétt greiðir fyr­ir­tækið nú ann­ars vegar fyrir sýn­ing­ar­rétt og hins­vegar fyrir eign­ar­hlut í dag­skrár­efn­inu.

Með því að eign­ast eign­ar­hlut í verk­efn­unum fær RÚV jafn­framt hlut­deild í mögu­legum hagn­aði sem verður af verk­efn­unum. Þann hagnað hyggst fyr­ir­tækið svo nota til að fjár­magna inn­lenda dag­skrár­gerð.

Vilji meira fyrir minna

Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri hug­verka­sviðs SI, hefur haldið utan um málið fyrir hönd sam­tak­anna. Hún segir að mik­il­vægt sé að kom­ist verði að sátt um það hvernig aðkomu RÚV að fram­leiðslu dag­skrár­efnis sé háttað og að ef fyr­ir­tækið eigi að eign­ast hlut­deild í þeim verk­efnum sem þeir kaupi sýn­ing­ar­rétt­inn að þurfi allir aðilar að kom­ast að sam­komu­lagi um hvernig eign­ar­hlut­ur­inn skuli reikn­aður.

[adspot]Birgir Sig­fús­son, fram­kvæmda­stjóri miðla hjá RÚV, segir fyr­ir­tækið telja þetta fyr­ir­komu­lag fela í sér betri með­ferð á opin­beru fé en það fyr­ir­komu­lag að borga ein­göngu fyrir sýn­ing­ar­rétt. Bæði SI og SÍK segja hins­vegar að með því að reikna end­ur­greiðslur inn í eign­ar­hlut sinn sé RÚV að teygja sig í fjár­magn sem ætlað er sjálf­stæðum fram­leið­endum. End­ur­greiðsl­urnar geta numið hund­ruð millj­óna vegna sér­stak­lega stórra verk­efna.

Birgir neitar því í sam­tali við Kjarnann að RÚV hafi nokkurn tím­ann leit­ast eftir hlut­deild í end­ur­greiðsl­unum. Hann segir þó að fyr­ir­tækið hafi í ein­hverjum til­vikum reiknað eign­ar­hlut sinn í aðkeyptu dag­skrár­efni að teknu til­liti til end­ur­greiðsl­unnar, það sé þó ekki algilt verk­lag.

Aðilar innan kvik­mynda­iðn­að­ar­ins sem Kjarninn ræddi við segja að RÚV sé ekki ein­ungis teygja sig í opin­bert fjár­magn sem ætlað sé til að styðja við sjálf­stæða kvik­mynda­gerð, heldur sé fyr­ir­tækið að reyna að fá meira en borga minna. Heim­ildir Kjarnans herma að í að minnsta kosti einu til­viki hafi RÚV farið fram á að eign­ast 40 pró­senta hlut í einu verk­efni þrátt fyrir að greiða ein­göngu fimmtán pró­sent af heild­ar­kostn­aði við fram­leiðslu þess. Slíkur eign­ar­hlutur hleypur á hund­ruðum millj­óna. Birgir neitar því alfarið að RÚV hafi nokkurn tím­ann farið fram á eða eign­ast svo stóran hlut í verk­efnum sem það hefur verið með­fram­leið­andi að.

Fjármagn ætlað í sýningarrétt

Sú skoðun virð­ist ríkj­andi innan kvik­mynda­iðn­að­ar­ins að óeðli­legt sé að fyr­ir­tæki í eigu hins opin­bera, sem fái fjár­magn af fjár­lögum hvers árs sé að sækja á þennan hátt í fjár­magn sem ætlað sé til að styðja við sjálf­stæða fram­leið­endur. Birgir segir að RÚV telji sig alls ekki vera á gráu svæði og að fyr­ir­tækið fylgi lögum og reglum að öllu leyti. Loka­tak­markið sé ávallt að styðja við sjálf­stæða, inn­lenda kvik­mynda­gerð.

Þeir sem Kjarninn ræddi við innan kvik­mynda­iðn­að­ar­ins segja að fjár­magnið sem RÚV fái á fjár­lögum hvers árs sé ætlað til kaupa á sýn­ing­ar­rétti en ekki til fjár­fest­ingar í kvik­mynda­gerð. Árið 2018 fékk RÚV rúma fjóra millj­arða af fjár­lögum auk þess að sækja sér yfir tvo millj­arða af aug­lýs­ingafé. Þetta mikla fjár­magn, auk þess að RÚV hefur skyldu sam­kvæmt lögum til að kaupa inn­lent dag­skrár­efni, gerir það að verkum að fyr­ir­tækið er langstærsti kaup­and­inn að inn­lendu efni.

[adspot]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er upp­lifun margra fram­leið­enda sú að RÚV neyti afls­muna við samn­inga­gerð og not­færi sér stærð sína á mark­aðnum til að þrýsta á fram­leið­endur. Það eigi sér­stak­lega við um fram­leið­endur heim­ilda­mynda þar sem RÚV sé eina sjón­varps­stöðin á Íslandi sem kaupi og sýni heim­ilda­myndir.

Sigríður vill ekki taka svo djúpt í árinni en segir að erfitt sé fyrir fram­leið­endur að standa á móti jafn stórum aðila á mark­að­inum og RÚV er. Það eigi sér­stak­lega við um minni fram­leið­endur.

Það kemur Birgi á óvart að þetta sé upp­lifun ein­hverra innan kvik­mynda­iðn­að­ar­ins og segir hann að RÚV eigi í miklu og góðu sam­starfi við alla fram­leið­endur. Hann segir einnig að Sjónvarp Símans sé orð­inn stór aðili í kaupum á inn­lendu efni og því sé stærð­ar­mun­ur­inn ekki jafn mik­ill og áður.

Aðilar verði að vera sammála

Birgir segir að ástæða þess að RÚV fari fram á eign­ar­hlut í verk­efn­unum sé að þannig geti fyr­ir­tækið betur stutt við inn­lendan kvik­mynda­iðnað. Það sé ávallt enda­tak­markið með því að fjár­festa í dag­skrár­gerð í stað þess að kaupa ein­göngu sýn­ing­ar­rétt og að þessi háttur feli í sér betri með­ferð á opin­beru fé.

Hann segir að fyr­ir­tækið hafi skuld­bundið sig til að nýta þann hagnað sem mögu­lega geti skap­ast til þess að fjár­festa enn frekar í inn­lendri dag­skrár­gerð. Til þess hafi þó ekki enn komið þar sem um hafi verið að ræða verk­efni sem ekki hafi verið arð­bær.

Sigríður segir að þó að þessi verk hafi ekki skilað hagn­aði enn sem komið er sé verið að hugsa til fram­tíðar. Eftir því sem íslenskur kvik­mynda­iðn­aður verður virt­ari séu meiri líkur á að þau skili hagn­aði og að þeir aðilar sem eigi hlut að máli verði að vera sam­mála um hvernig þeim hagn­aði sé ráð­stafað.

Hún segir að SI og SÍK hafi fengið þær upp­lýs­ingar á fundum með RÚV að nota eigi þann hagnað sem fyr­ir­tækið hafi af verk­unum til að efla sjón­varps­sjóð sem eigi að nota til fjár­magna inn­lenda dag­skrár­gerð í fram­tíð­inni.

Gæti talist ríkisstyrkur

Í lög­fræði­á­liti sem SI og SÍK lét gera fyrir sig kemur fram marg­vís­leg gagn­rýni á þetta fyr­ir­komu­lag RÚV. Meðal ann­ars geti það talist til rík­is­styrkja að RÚV eign­ist hlut­deild í verk­unum, þar sem fyr­ir­tækið komi ekki að öðru leyti að skipu­lagn­ingu eða fram­leiðslu en því að leggja til fjár­magn og taki ekki það sem kallað er „veru­leg fjár­hags­leg áhætta“.

Teljist fram­lag RÚV vera rík­is­styrkur geti það skapað fram­leið­endum marg­vís­leg vand­ræði þegar kemur að fjár­mögnun þeirra þátta og kvik­mynda sem verið er að fram­leiða. Í fyrsta lagi verði það til þess að lækka þann stofn sem end­ur­greiðslan úr rík­is­sjóði reikn­ast af. Í öðru lagi geti það orðið til þess að ekki fáist fjár­mögnun úr Creative Media Europe, evr­ópskum sjóði sem íslenskir fram­leið­endur geta sótt um styrki úr, þar sem reglur sjóðs­ins banni að verk sem fengið hafi fjár­magn frá ríki fái styrki úr sjóðum þess. Í versta falli geti þetta orðið til þess að fram­leið­endur verði að end­ur­greiða þá styrki sem þeir hafa fengið.

Í sam­tali við Kjarnann segir Sigríður að telj­ist fjár­fest­ing RÚV vera rík­is­styrkur sé þetta tif­andi tíma­sprengja. Um sé að ræða umtals­verðar upp­hæðir sem gæti reynst erfitt fyrir fyr­ir­tæki að greiða til baka og koma verði í veg fyrir að slíkar aðstæður skap­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár