Yfirtaka N1 á Festi heimiluð

Fyrsti sam­runi olíu­fyr­ir­tækis og smá­sölu­fyr­ir­tækis eftir opnun Costco hefur verið sam­þykktur. Búist er við nið­ur­stöðu úr öðrum slíkum sam­runa á næstu dögum.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1
Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri N1 Mynd: Samsett

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti kaup N1 á öllu hlutafé í Festi hf. með skil­yrðum sem N1 féllst á með eft­ir­lit­inu, eins og kom fram í til­kynn­ingu frá Kaup­höll­inni í gær­kvöldi. Skil­yrðin eru þau sömu og N1 lagði til fyrir mán­uði síðan, að við­bættri sölu á stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í Staldr­inu og Vatna­görðum. Málið gæti haft þýð­ingu fyrir fyr­ir­huguð kaup Haga á Olís, en vænta má nið­ur­staðna úr þeirri yfir­töku á næstu dögum.

Skil­yrðin sem N1 og Sam­keppn­is­eft­ir­litið féllust á til að yfir­taka olíu­fyr­ir­tæk­is­ins á smá­sölu­fé­lag­inu voru eft­ir­far­andi:

  1. Að aðgengi nýrra end­ur­selj­enda að fljót­andi elds­neyti í heild­sölu yrði aukið
  2. Að aðgengi að þjón­ustu hjá Olíu­dreif­ing­unni, sem N1 á 60% í, yrði aukið. 
  3. Sala á stöðvum Dælunnar við Fells­múla og Staldrið í Reykja­vík, auk Hæð­ar­smára 8 í Kópavogi
  4. Sala á tveimur sjáfs­af­greiðslu­stöðvum undir merkjum N1 við Salaveg í Kópavogi og Vatna­garða í Reykja­vík
  5. Sala á verslun Kjarvals á Hellu.

Þessi skil­yrði eru lík til­lög­unum sem N1 lagði fram til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir rúmum mán­uði síðan til að liðka fyrir yfir­tök­una, en sölu á sjáfs­af­greiðslu­stöðv­unum í Staldr­inu og Vatna­görðum hefur verið bætt við. [adspot]

Samkvæmt til­kynn­ingu N1 í Kaup­höll­inni nemur kaup­verð olíu­fyr­ir­tæk­is­ins á Festi 23,7 millj­örðum króna, en það greið­ist ann­ars vegar með afhend­ingu tæp­lega 80 milljón hluta í N1 á geng­inu 115 og hins vegar með 14,6 millj­arða í reiðufé. N1 munu einnig greiða vexti af öllum skuldum Festis fra 28. febr­úar síð­ast­lið­inn og munu eig­endur smá­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins eign­ast 24,1% alls hluta­fjár N1, en sölu­bann verður á þeim hlutum út árið.

Rúmlega tvöföld framlegð

Við yfir­tök­una er spáð að fram­legð N1 muni rúm­lega tvö­fald­ast á þessu rekstr­ar­ári, en búist er við að hún nemi um 7,5 millj­örðum króna. Af þeirri upp­hæð er búist við að 500-600 millj­ónir króna munu verða til vegna sam­legð­ar­á­hrifa fyr­ir­tækj­anna tveggja.

Fyrsta af þremur

[links]Yfir­takan er fyrsti sam­run­inn sem gengið hefur í gegn af þremur sem fyr­ir­hug­aðir voru í fyrra milli olíu­fé­laga og smá­sölu­fyr­ir­tæki. Hinar tvær voru kaup Haga á Olís og Skelj­ungs á Basko. Eins og Kjarninn greindi frá í fyrra um málið var þessi ætl­aða sam­þjöppun við­brögð við þeim breyt­ingum sem opnun Costco og H&M hafði á íslenskan smá­sölu­markað.

Ekki hafa hin kaupin enn gengið eftir, en Vísir greindi frá því að Skelj­ungur hafi ákveðið að slíta samn­inga­við­ræðum sínum um kaup á Basko fyrir tveimur vikum síðan. Þar sagði Valgeir M. Bald­urs­son, for­stjóri Skelj­ungs kaupin vera háð ýmsum for­sendum og fyr­ir­vörum sem ekki gengu eftir.

Fyr­ir­huguð kaup Haga á Olís eru hins vegar enn til skoð­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í mán­uð­inum mun koma í ljós á næstu dögum hvort sam­run­inn fari í gegn eða ekki, en það veltur á því hvort Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykki til­lögur Haga. Þær til­lögur fela í sér sölu á tveimur Bón­usversl­unum, einni fast­eign félags­ins þar sem rekin er Bón­usverslun, tveggja bens­ín­stöðva Olís auk einnar stöðvar ÓB. Fari svo að eft­ir­litið fall­ist ekki á þessar til­lögur verður sam­run­inn ógildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

olíufélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár