Telur Haga enn vera markaðsráðandi

Sam­keppn­is­yf­ir­litið lítur svo á að inn­koma Costco í fyrra hafi ekki breytt mark­aðs­ráð­andi stöðu Haga á smá­sölu­mark­aði.

Hagar hafa meðal annars lagt til að selja tvær Bónusverslanir til að koma samrunanum í gegn.
Hagar hafa meðal ann­ars lagt til að selja tvær Bón­usversl­anir til að koma sam­run­anum í gegn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Opnun Costco í fyrra breytti ekki mark­aðs­ráð­andi stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta kemur fram í nýrri frétt Sam­keppn­is­yf­ir­lits­ins, en einnig er fjallað um málið í Frétta­blað­inu í dag.

Kaup Haga á Olís og DGV

[links]Sam­keppn­is­yf­ir­litið hefur til skoð­unar kaup Haga á Olíuverzlun Íslands hf. og fast­eigna­fé­lags­ins DGV, en fyrri rann­sókn á sam­run­anum hófst í sept­em­ber í fyrra og lauk í byrjun mars fyrr á þessu ári. Á meðan rann­sókn stóð yfir and­mælti eft­ir­litið sam­run­anum og sagði hann ekki verða sam­þykktan án skil­yrða.

Í byrjun mars senda Hagar þá frá sér til­lögur til að upp­fylla skil­yrði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en að mati stofn­un­ar­innar komu til­lög­urnar of seint fram og hætt var við sam­run­ann. [adspot]

Þremur vikum seinna sendu Hagar nýja sam­runa­til­kynn­ingu og er í reglu­legum sam­skiptum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í kjöl­farið til að finna ásætt­an­leg skil­yrði sem þyrftu að liggja fyrir svo sam­run­inn gæti átt sér stað. Síð­ast­lið­inn föstu­dag sendu Hagar svo loka­til­lögur sínar að skil­yrðum, en þær fela í sér sölu á tveimur Bón­usversl­unum, einni fast­eign félags­ins þar sem rekin er Bón­usverslun, tveggja bens­ín­stöðva Olís auk einnar stöðvar ÓB. Í bréfi sem fylgdi til­lögum Haga, segir fyr­ir­tækið að gengið sé mjög langt í til­lög­unum og telja engin rök liggja fyrir um strang­ari aðgerðir til að gera sam­run­ann mögu­legan.

Á mánu­dag­inn sendi svo Sam­keppn­is­eft­ir­litið frá sér bréf til hags­muna­að­ila sam­run­ans þar sem leitað var sjón­ar­miða þeirra á þessum til­lögum. Í bréf­inu kynnti eft­ir­litið einnig frum­mat sitt eftir rann­sókn á áhrifum inn­komu Costco, en sam­kvæmt frummat­inu breytti opnun banda­ríska smá­söluris­ans ekki mark­aðs­stöðu Haga í fyrra.

Sjón­ar­mið hags­muna­að­il­anna eiga að ber­ast á næstu dögum og hafa þau áhrif á það hvort eft­ir­litið sam­þykki til­lög­urnar eða ekki. Fari svo að eft­ir­litið fall­ist ekki á þær verður sam­run­inn ógildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár