Fimm sækja um embætti hæstaréttardómara

Vegna skyld­leika við einn umsækj­anda hefur Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra ákveðið að víkja sæti við með­ferð máls­ins.

Fimm manns sóttu um emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag. Þann 28. febr­úar síð­ast­lið­inn aug­lýsti dóms­mála­ráðu­neytið laust til umsóknar eitt emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands og rann umsókn­ar­frestur út þann 16. mars 2020.

Skipað verður í emb­ættið hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hefur lokið störfum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

[adspot]

Umsækj­endur um emb­ættið eru:

  1. Aðal­steinn E. Jónasson, dóm­ari við Lands­rétt
  2. Davíð Þór Björg­vins­son, dóm­ari við Lands­rétt
  3. Jóhannes Sig­urðs­son, dóm­ari við Lands­rétt
  4. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir, rík­is­sak­sókn­ari
  5. Sigurður Tómas Magn­ús­son, dóm­ari við Lands­rétt

Áslaug Arna víkur sæti

Vegna skyld­leika við umsækj­and­ann Jóhannes Sig­urðs­son hefur dóms­mála­ráð­herr­ann, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ákveðið að víkja sæti við með­ferð þessa máls. Hefur for­sæt­is­ráðu­neytið þegar verið upp­lýst um það og þess farið á leit að for­sæt­is­ráð­herra hlut­ist til um að öðrum ráð­herra verði falin með­ferð máls­ins, segir á vef Stórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár